Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2020, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 23.01.2020, Blaðsíða 8
Tillögur að bættu starfi í leikskólum Reykjanesbæjar – Aðeins þriðjungur starfsfólks með leikskólakennaramenntun Reykjanesbær, líkt og fjöldi annarra sveitarfélaga, hefur í mörg ár verið töluvert frá því að uppfylla lágmarksviðmið um mönnun leikskóla með fagmenntuðum einstaklingum. Í leikskólum bæjarins er um 33% hlutfall starfsfólks með leikskólakennaramenntun. Fræðsluráð telur að til þess að leikskólar bæjarins verði áfram eftirsóknarverðir vinnustaðir sé fullt tilefni til að grípa til aðgerða í samræmi við tillögur starfshóps sem gerði skýrslu um bættar starfsaðstæður í leikskólum bæjarins. Þetta kemur fram í fundargerð fræðsluráðs frá fundi þess 6. desember en þar segir að í skýrslu starfshóps séu margar gagnlegar tillögur til að styrkja starf í leikskólum bæjarins. Umbætur í leikskólastarfinu Þau umbótatækifæri sem greind eru í skýrslu starfshópsins snúa að um- hverfi leikskólakennara, leiðbeinenda, stjórnenda í leikskólum sem og þeirra barna sem sækja leikskóla. Fræðsluráð mun fylgja því eftir að unnið verði að umbótum í leikskólastarfi á grunni skýrslunnar, ráðið leggur einnig áherslu á að skýrslan sem slík sé ekki enda- punktur í því verkefni að betrumbæta starfsaðstæður nemenda og starfsfólks í leikskólum heldur upphafspunktur. Lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla kveða á um að 2/3 hlutar stöðugilda við kennslu, um- önnun og uppeldi barna í leikskóla skulu teljast til stöðugilda leikskóla- kennara. Reykjanesbær á langt í land til þess að uppfylla þær kröfur, auk þess sem meðalaldur leikskólakennarahóps- ins sé hár og nýliðun lítil. Reykjanesbær styður nú þegar við starfsmenn sem eru í námi í leikskólakennarafræðum með því að greiða þeim laun á meðan þeir fara í staðlotur og vettvangsnám, fjarvera kennaranemana getur þó verið áskorun fyrir leikskólana á meðan á námi stendur. Leikskólar lokaðir milli jóla og nýárs Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslu- sviðs að útfæra tillögu varðandi starfs- tíma leikskóla þ.e. að stefnt sé að því að vinnufyrirkomulag í leikskólum verði sambærilegra öðrum skólastigum, þá sérstaklega í grunnskólum. Fyrsta skrefið í því er að leikskólar bæjarins verða lokaðir á milli jóla og nýárs frá og með árinu 2020. Lokunin skuli ekki hafa áhrif á launakjör starfsfólks leik- skólanna. Ekki skal innheimta leik- skólagjöld þá daga sem leikskólar eru lokaðir. Fræðslusviði/sviðsstjóra fræðslu- sviðs er falið að greina kosti og galla þess að loka leikskólum í dymbilviku líkt og gert er á öðrum skólastigum. Greiningin skal meðal annars ná utan um nýtingu á leikskólaplássum þessa daga, viðhorfi foreldra til þess að leik- skólastarf sé skert að hluta eða öllu leyti í dymbilviku, viðhorf starfsfólks til lokunar að hluta eða öllu leyti í dymbil- viku sem og kostnaðargreining. Undirbúningstímar starfsfólks leikskóla Í skýrslunni segir að frá upphafi starfs- árs 2020 skuli undirbúningstími leik- skólakennara og deildarstjóra vera aukinn frá því sem hann er í dag. Þessu til viðbótar skal vera búið að rýmka heimildir leikskólastjóra vegna yfir- vinnugreiðslna fyrir undirbúning frá upphafi starfsárs 2020. Barnagildisviðmið Þá felur Fræðsluráð sviðsstjóra fræðslu- sviðs að kostnaðarmeta þær breytingar sem lagðar eru til í barnagildisvið- miðum í samræmi við tillögu starfs- hópsins. Að auki skuli framkvæma úttekt á hljóðvist hvers leikskóla, gefi úttekt tilefni til framkvæmda skulu þær kostnaðarmetnar og lögð fram umbótaáætlun. Stuðningur við starfsfólk í leikskólakennaranámi Fræðsluráð leggur til að Reykjanesbær endurgreiði starfsfólki sínu sem stundar nám samhliða vinnu í leikskólakennara- fræðum aðstöðu- og próftökugjald hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslu- sviðs að leita samstarfs við fræðslu- stofnanir í Reykjanesbæ (Keili og/eða MSS) með það að markmiði að bjóða upp á leikskólakennaranám í mennta- stofnunum bæjarins, eða aðstöðu til hópfjarnáms. Fræðsluráð skal upplýst um framgang í maí 2020. Fræðsluráð felur leikskólafulltrúa að framkvæma viðhorfskönnun hjá ófaglærðu starfsfólki leikskóla, til þess að komast að því hvaða atriði yrðu hvatning fyrir því að hefja nám í leik- skólakennarafræðum. Leikskólavist fyrir börn yngri en tveggja ára Fræðsluráð vill að fjármagn (fyrir húsnæði og rekstur) verði tryggt til stækkunar Hjallatúns auk eins leikskóla í Keflavíkurhverfinu, sem fræðslusvið gerir tillögu um, fyrir fjárhagsáætlunar- gerð ársins 2021. Einnig er lagt til að leikskólinn Völlur á Ásbrú nýti allt sitt húsnæði og að fjármagn verði tryggt í endurbætur á húsnæðinu ef þörf er á. Í tengslum við minnisblað hagdeildar Reykjanesbæjar um ungbarnaleikskóla í Reykjanesbæ felur fræðsluráð leik- skólafulltrúa að undirbúa erindisbréf fyrir faghóp sem hefur það að mark- miði að greina ítarlega kosti og galla annars vegar ungbarnaleikskóla og hins vegar að setja á stofn ungbarnadeildir í núverandi leikskólum. Erindisbréfið skal lagt fyrir næsta fund fræðsluráðs. Raunhæfar tillögur til úrbóta Hópurinn leggur fram í skýrslunni raunhæfar tillögur til að bæta starfs- umhverfi í leikskólum, börnum, leik- skólakennurum og öðru starfsfólki til heilla. „Það hefur komið í ljós á síðustu misserum að leikskólastigið er í vanda sem verður að leysa eigi þetta fyrsta skólastig barna að skila því hlutverki sem því er ætlað. Vöxtur leikskólans hefur verið mikill undanfarin ár. Sífellt yngri börnum er boðin leikskóladvöl án þess að faglærðum kennurum fjölgi um leið og kröfur um öflugt og faglegt leikskólastarf hefur aukist. Forsenda þess að vel takist til er að hlúa að mann- auði hvers leikskóla, því er mikilvægt að starfsaðstæður í leikskólum bæjarins verði með því besta sem gerist. Þann- ig mun leikskólastigið í Reykjanesbæ halda áfram að vaxa og dafna,“ segir í lokaorðum skýrslu starfshópsins um bættar aðstæður í leikskólum bæjarins. Bæjarstjórinn Kjartan Már bregður ásamt leikskólabörnum af leikskólanum Tjarnarseli við afhjúpun söguskilta við Strandleið fyrir nokkrum árum. FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS GEFÐU GÓÐ RÁÐ Umsóknir merktar „Keflavík“ ásamt ferilskrá sendist á starf@apotekarinn.is fyrir 15. febrúar. Í APÓTEKARANUM KEFLAVÍK - lægra verð Við erum í næsta nágrenni! www.apotekarinn.is APÓTEKARINN ÓSKAR EFTIR LYFJAFRÆÐINGI TIL STARFA Í APÓTEKI OKKAR Í KEFLAVÍK. Í starfinu felst fagleg ábyrgð á afgreiðslu lyfja samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsölu. Ef þú hefur háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi, brennandi áhuga á þjónustu, ert jákvæður og opinn einstaklingur, þá gætum við verið að leita að þér. Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Stefánsdóttir, rekstrar- og mannauðsstjóri, gudbjorg@apotekarinn.is STARFSSVIÐ UPPLÝSINGAR 8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 23. janúar 2020 // 4. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.