Víkurfréttir - 20.05.2020, Blaðsíða 18
— Nafn:
Davíð Örn Óskarsson.
— Fæðingardagur:
11. apríl 1986.
— Fæðingarstaður:
Fæddur og uppalinn í Keflavík.
— Fjölskylda:
Já, á þrjú falleg börn með
yndislegri konu.
— Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór?
Ég var alltaf mjög spenntur fyrir
því að verða slökkviliðsmaður og
vaða inn í brennandi hús.
— Aðaláhugamál:
Ég mundi segja að aðaláhugamál
mitt í dag væri að spila bumbu-
bolta og hef ég saknað þess virki-
lega undanfarnar vikur. Einnig hef
ég brennandi áhuga á því að renna
mér á snjóbretti en geri lítið af því.
En aðaláhugamálið í dag er að vera
skapandi og að hafa gaman.
— Uppáhaldsvefsíða:
Ég heimsæki oftast visir.is og svo
VF.is þegar nýjasta tölublaðið
kemur á netið, þar á eftir kemur
karfan.is
— Uppáhalds-app í símanum:
Spotify á hug minn allan í sím-
anum.
— Uppáhaldshlaðvarp:
Get ekki gert upp á milli Í ljósi sög-
unar, Endalínunnar og Fílalag.
— Uppáhaldsmatur:
Ætli það sé ekki heimatilbúna
pítsan sem konan gerir.
— Versti matur:
Grjónagrautur.
— Hvað er best á
grillið?
Halloumi-ostur og
lambakonfekt
— Uppáhalds-
drykkur:
Kristall Lime, þessi
græni.
— Hvað óttastu?
Að vera fljótandi á opnu hafi og
vita ekki hvaða sjávardýr leynast
fyrir neðan.
— Mottó í lífinu:
A clean desk is the sign of a sick
mind
— Hvaða mann eða konu úr
mannkynssögunni myndir þú
vilja hitta?
Ég mundi vilja vera á einkatón-
leikum með Jeff Buckley og gott
partý eftirá.
— Hvaða bók lastu síðast?
50 ways to beat a Hangover.
— Ertu að fylgjast með
einhverjum þáttum í
sjónvarpinu?
Nei, ekki beint
að fylgjast með
neinum sérstökum
í línulegri dagskrá
— Uppáhalds-
sjónvarpsefni:
Heimildarmyndir og
spennutryllar.
— Fylgistu með fréttum?
Já, ég fylgist mjög vel með fréttum
á neti og í útvarpi, svo horfi ég á
kvöldfréttir.
— Hvað sástu síðast í bíó?
Sonic the hedgehog
— Uppáhalds-
íþróttamaður:
Ég horfði mikið
upp til MJ en í dag
er engin sérstakur
íþróttamaður
uppáhalds.
— Uppáhalds-
íþróttafélag:
Keflavík.
— Ertu hjátrúarfullur?
Nei, get því miður ekki sagt það.
— Hvaða tónlist kemur þér í
gott skap?
Góð 70’s Rock-tónlist
— Hvað tónlist fær þig til að
skipta um útvarpsstöð?
Ég er algjör alæta á tónlist og get
hlustað á hvað sem er en það eru
tvær hljómsveitir sem ég nenni
ekki að hlusta á það eru U2 og
Metallica.
— Hvað hefur þú að atvinnu?
Ég starfa sem markaðsstjóri Blue
Car Rental.
— Hefur þú þurft að gera
breytingar á starfi þínu vegna
COVID-19?
Já, í þessu ástandi sem hefur
skapast þá höfum við þurft að nýta
okkur úrræði ríkisstjórnarinnar og
farið í lægra starfshlutfall rétt eins
og öll önnur fyrirtæki sem starfa
ferðamannabransanum.
— Hvernig hefur þú verið að
upplifa árið 2020 hingað til?
Þetta ár hefur verið mikill rússí-
bani og mikið gengið á. Ég hef
þó náð að halda haus og horfa
með jákvæðni til framtíðar og
reynt eftir fremsta megni að vera
rólegur, sérðu ekki hvað ég er
rólegur. Viðurkenni þó að daginn
sem Trumparinn tilkynnti lokun
Bandaríkjanna og stóri jarðskjáft-
inn reið yfir Suðurnesin þá hélt
ég að heimsendir væri í nánd, ég
var lítill þá – en annars bara mjög
góður.
— Er bjartsýni fyrir sumrinu?
Já, bjartsýni fyrir góðu veðri og
samveru með fjölskyldunni.
— Hvað á að gera í sumar?
Ætla að skella mér í húsbílaferða-
lag og heimsækja vestfirði meðal
annars og ferðast um landið mitt.
— Hvert ferðu í
sumarfrí?
Mun væntanlega
eyða því á Íslandi,
vonandi þegar það
fer að hausta aftur
að maður skelli
sér kannski í smá
ferð erlendis, hver
veit?
— Ef þú fengir gesti utan
af landi sem hafa aldrei skoðað
sig um á Suðurnesjum. Hvert
myndir þú fara með þá fyrst og
hvað myndir þú helst vilja sýna
þeim?
Ætli ég mundi ekki fara með þá
á Villa svo rúnta með þau út á
Reykjanesskaga og enda í Sand-
vík í sólbaði og smá sundsprett í
sjónum. Nema þau þyrftu að fara
ein í sjóinn því ekki fer ég þangað.
Á einkatónleikum með Jeff Buckley
Davíð Örn Óskarsson saknar bumbuboltans og segir árið hafa verið eins og rússíbana.
Netspj@ll
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Halloumi o
stur
Borgari hjá
Villa
18 // VÍKURFRÉttIR á SUÐURNESJUM Í 40 áR
Fimmtudagur 20. maí 2020 // 21. tbl. // 41. árg.