Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.05.2020, Blaðsíða 57

Víkurfréttir - 20.05.2020, Blaðsíða 57
Leikmaður spyr hvaða lagaskyldu um framtíð kísilversins í Helguvík yrði ekki fullnægt samkvæmt sveitarstjórnarlögum ef íbúakosning færi fram, t.d. um fyrirsjáanleg versnandi loftgæði í Reykjanesbæ vegna eiturefna frá starfseminni? Snýst lagaskyldan um að úthýst hafi verið, á einhverjum tímapunkti til fimm manna stjórnar fjármálafyrirtækis í Reykjavík‚ lögbundnu leyfi til að ráða loftgæðum í bæjar- félaginu til frambúðar. Að það fái þar með mögulegan bótarétt ef íbúarnir neita að sættast á loftgæðin sem þeir boða. Mýta bæjarfulltrúanna Íbúafundur um aðgerðir í atvinnumálum, sem haldin var 14. maí síðastliðinn, var eins og vera ber upplýsandi og skilmerkilegur. Hann var haldinn í samræmi við sveitarstjórnarlög og vísað til þeirra í umræðu og svari við innsendri fyrirspurn um mögulega íbúakosningu. Kjarni hennar var „hver er raunveruleg ástæða þess að bæjarstjórn virðist ekki vilja halda íbúakosningu um málið?“ Bæjar- stjóri sem var til svara vísaði til 107. og 108. greina sveitarstjórnarlaga og hengdi hatt sinn á þessar tvær lagagreinar, fyrir ómöguleika íbúakosningar. Hann las meðal annars upp alla 3. málsgrein 108. gr. þar sem vísað er til 107. gr. um almennar atkvæðagreiðslur‚ sem lýkur með eftirfarandi orðalagi‚ „... eða tillögu sem gengur gegn lögum eða mundi leiða til þess að lagaskyldu yrði ekki fullnægt af hálfu sveitarfélagsins“. Hvaða mýta er í gangi? Hvernig hefur sveitarfélagið skuldbundið sig að lögum með samningum við einkafyrirtæki sem setur heilsu bæjarbúa að veði? Sveitarfélag- inu ber skylda til að upplýsa bæjarbúa ef svo er. Þ.e. ef það hefur gengist undir bótaskyldar skuld- bindingar sem ganga framar rétti íbúa til að anda að sér hreinna lofti en fyrirtækið boðar. Framleiðslan var stöðvuð vegna forsendubrests í mengun frá kísilverinu. Þrátt fyrir stöðugar mengunarmælingar‚ sem virtust ávallt undir lög- bundnum viðmiðunarmörkum, fann stór hópur íbúa fyrir miklum óþægindum og vanlíðan sem rakin var til kísilversins. Starfræksla kísilversins var stöðvuð vegna eituráhrifa sem hún hafði á íbúa. Loftgæði í bæjarfélaginu höfðu versnað svo að ekki var við unað. Forsendur loftgæða stóðust hvorki loforð né lagaskildu fyrirtækisins við íbúa Reykjanesbæjar né við opinbera eftirlitsaðila. Loftgæðin, grunnvatnið og ásýndin í brennidepli Nú eru komnir nýir eigendur. Jafnvel þeir full- yrða í frummatsskýrslu sinni um mat á umhverfis- áhrifum, með eftirfarandi niðurstöðu um heildar- áhrif við rekstur kísilversins. „Áhrif á umhverfisþætti eru metin frá því að vera nokkuð neikvæð á loftgæði, grunnvatn við full- byggða verksmiðju og ásýnd yfir í nokkuð jákvæð á atvinnustig samfélags á framkvæmdatíma og talsvert jákvæð á samfélag á rekstrartíma. Áhrif á aðra umhverfisþætti eru metin óveruleg.“ Þeir boða að loftgæði muni minnka og að starf- semin muni einnig hafa nokkuð neikvæð áhrif á grunnvatn og ásýnd bæjarfélagsins. Er mögulegt að það gangi gegn einhverjum lögum eða leiði til þess að sérstakri lagaskyldu við Arion banka verði ekki fullnægt af hálfu sveitar- félagsins ef bæjaryfirvöld virða vilja 20% þeirra sem kosningarétt eiga í sveitarfélaginu og æskja samþykktar íbúa í kosningum fyrir að heimila bankanum að minnka loftgæði, vatnsbúskap og ásýnd í sveitarfélaginu til frambúðar? Reykjanesbæ 18. maí 2020, Tómas Láruson. Loftgæðum Reykjanesbæjar úthýst til Arion banka Fimmtudagur 20. maí 2020 // 21. tbl. // 41. árg. VÍKURFRÉttIR á SUÐURNESJUM Í 40 áR // 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.