Víkurfréttir - 20.05.2020, Page 57
Leikmaður spyr hvaða lagaskyldu um framtíð kísilversins í Helguvík yrði ekki fullnægt samkvæmt
sveitarstjórnarlögum ef íbúakosning færi fram, t.d. um fyrirsjáanleg versnandi loftgæði í Reykjanesbæ
vegna eiturefna frá starfseminni? Snýst lagaskyldan um að úthýst hafi verið, á einhverjum tímapunkti
til fimm manna stjórnar fjármálafyrirtækis í Reykjavík‚ lögbundnu leyfi til að ráða loftgæðum í bæjar-
félaginu til frambúðar. Að það fái þar með mögulegan bótarétt ef íbúarnir neita að sættast á loftgæðin
sem þeir boða.
Mýta bæjarfulltrúanna
Íbúafundur um aðgerðir í atvinnumálum, sem
haldin var 14. maí síðastliðinn, var eins og vera ber
upplýsandi og skilmerkilegur. Hann var haldinn í
samræmi við sveitarstjórnarlög og vísað til þeirra
í umræðu og svari við innsendri fyrirspurn um
mögulega íbúakosningu. Kjarni hennar var „hver
er raunveruleg ástæða þess að bæjarstjórn virðist
ekki vilja halda íbúakosningu um málið?“ Bæjar-
stjóri sem var til svara vísaði til 107. og 108. greina
sveitarstjórnarlaga og hengdi hatt sinn á þessar
tvær lagagreinar, fyrir ómöguleika íbúakosningar.
Hann las meðal annars upp alla 3. málsgrein
108. gr. þar sem vísað er til 107. gr. um almennar
atkvæðagreiðslur‚ sem lýkur með eftirfarandi
orðalagi‚ „... eða tillögu sem gengur gegn lögum
eða mundi leiða til þess að lagaskyldu yrði ekki
fullnægt af hálfu sveitarfélagsins“. Hvaða mýta er
í gangi? Hvernig hefur sveitarfélagið skuldbundið
sig að lögum með samningum við einkafyrirtæki
sem setur heilsu bæjarbúa að veði? Sveitarfélag-
inu ber skylda til að upplýsa bæjarbúa ef svo er.
Þ.e. ef það hefur gengist undir bótaskyldar skuld-
bindingar sem ganga framar rétti íbúa til að anda
að sér hreinna lofti en fyrirtækið boðar.
Framleiðslan var stöðvuð vegna forsendubrests
í mengun frá kísilverinu. Þrátt fyrir stöðugar
mengunarmælingar‚ sem virtust ávallt undir lög-
bundnum viðmiðunarmörkum, fann stór hópur
íbúa fyrir miklum óþægindum og vanlíðan sem
rakin var til kísilversins. Starfræksla kísilversins
var stöðvuð vegna eituráhrifa sem hún hafði á
íbúa. Loftgæði í bæjarfélaginu höfðu versnað svo
að ekki var við unað. Forsendur loftgæða stóðust
hvorki loforð né lagaskildu fyrirtækisins við íbúa
Reykjanesbæjar né við opinbera eftirlitsaðila.
Loftgæðin, grunnvatnið
og ásýndin í brennidepli
Nú eru komnir nýir eigendur. Jafnvel þeir full-
yrða í frummatsskýrslu sinni um mat á umhverfis-
áhrifum, með eftirfarandi niðurstöðu um heildar-
áhrif við rekstur kísilversins.
„Áhrif á umhverfisþætti eru metin frá því að vera
nokkuð neikvæð á loftgæði, grunnvatn við full-
byggða verksmiðju og ásýnd yfir í nokkuð jákvæð
á atvinnustig samfélags á framkvæmdatíma og
talsvert jákvæð á samfélag á rekstrartíma. Áhrif
á aðra umhverfisþætti eru metin óveruleg.“
Þeir boða að loftgæði muni minnka og að starf-
semin muni einnig hafa nokkuð neikvæð áhrif á
grunnvatn og ásýnd bæjarfélagsins.
Er mögulegt að það gangi gegn einhverjum
lögum eða leiði til þess að sérstakri lagaskyldu við
Arion banka verði ekki fullnægt af hálfu sveitar-
félagsins ef bæjaryfirvöld virða vilja 20% þeirra
sem kosningarétt eiga í sveitarfélaginu og æskja
samþykktar íbúa í kosningum fyrir að heimila
bankanum að minnka loftgæði, vatnsbúskap og
ásýnd í sveitarfélaginu til frambúðar?
Reykjanesbæ 18. maí 2020,
Tómas Láruson.
Loftgæðum
Reykjanesbæjar
úthýst til Arion banka
Fimmtudagur 20. maí 2020 // 21. tbl. // 41. árg.
VÍKURFRÉttIR á SUÐURNESJUM Í 40 áR // 57