Fréttablaðið - 11.06.2020, Page 20
Krefjandi aðstæður eru enn
til staðar og heilsugæslan
hefur enn og aftur, með
öflugu starfsfólki sínu, sýnt
hvað í henni býr.
SÍÐASTA
VEIÐIFERÐIN
Þorsteinn
Bachmann
Jóhann
Sigurðarson
Hilmir Snær
Guðnason
Halldór
Gylfason
Þröstur Leó
Gunnarsson
Hjálmar
Hjálmarsson
NÚ Í BÍÓ
EKKI M
ISSA A
F
SKEMM
TILEGU
STU
GAMA
NMYN
D ÁRS
INS!
Fréttatíminn Helgi Snær, Morgunblaðið
Máni, Harmageddon
Mér líður eins og ég hafi verið rænd,“ er það fyrsta sem hún segir þegar við
setjumst niður í samtalsherberginu.
Þau höfðu verið einstaklega sam-
rýmd, hún og ástin í lífi hennar til
tuga ára, en nú var hann látinn.
Henni leið eins og hún hefði verið
rænd þessum litla tíma sem hún
hefði getað átt með manninum sem
í gegnum lífið varð smám saman
helmingurinn af henni sjálfri.
Hann hafði háð snarpa baráttu
við krabbamein og hrakað hratt
síðustu vikurnar. Undir venju-
legum kringumstæðum hefðu hún
og börnin hennar setið hjá honum
öllum stundum. Verið með honum
á spítalanum þessar síðustu tvær
vikur sem hann átti eftir ólifaðar.
Því miður urðu hins vegar þær
aðgerðir sem grípa varð til vegna
Covid-19 veirunnar til þess að svo
gat ekki orðið.
Þessi saga endurspeglar upp-
lifun margra þeirra sem undanfarið
hafa leitað til Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins í tengslum
við ástvinamissi á Covid-19 tíma-
bilinu.
Það er þakkarvert hversu vel
tókst til hér á landi við að ná stjórn
á útbreiðslu faraldursins og í raun
magnað að verða vitni að þeim
samhug sem ríkti og átti þátt í að
hefta hann með styrkri stjórn og
handleiðslu frá sérfræðingum, heil-
brigðisstarfsfólki og ráðamönnum.
Enginn þarf að efast um hve erfið
sú staða að þurfa að banna eða tak-
marka heimsóknir hefur verið fyrir
heilbrigðisstarfsfólk sem alla jafna
leggur mikla áherslu á að styðja og
hvetja aðstandendur til að vera í
nánd við mikið veika ástvini. Að því
sögðu er þó mikilvægt að færa í orð
þann fórnarkostnað og þær tilfinn-
ingar sem margir þeir sem misstu
ástvin í faraldrinum sitja eftir með.
Það er vel þekkt að í sorgarferlinu
getur það hjálpað og haft mikla þýð-
ingu fyrir þann sem syrgir að hafa
fengið tækifæri til að vera í nánd við
ástvin sinn vikurnar fyrir andlátið,
þegar á annað borð sá aðdragandi
gefst. Fyrir marga er þetta dýrmæt-
ur tími til samskipta þar sem hægt
er að tjá ást, væntumþykju, þakk-
læti og virðingu með eða án orða.
Þú vilt vera til staðar og gera allt
sem í þínu valdi stendur til að styðja
við ástvin þinn í gegnum þennan
tíma. Stundum gefst líka tækifæri
til að ræða mikilvæg og praktísk
mál. Þessu raskaði Covid-19 veiran.
Einnig hefur faraldurinn í mörgum
tilvikum breytt þeirri mikilvægu
athöfn sem jarðarförin er, þar sem
fjölskylda og vinir safnast saman
til að votta hinum látna virðingu
og sýna þeim sem honum voru
nánastir samkennd og stuðning.
Stuðningur og nánd við fjölskyldu
og vini er yfirleitt afar mikilvægur
þeim sem syrgir og má því búast
við að margir sem misstu ástvin á
þessum tíma hafi upplifað félags-
lega einangrun og einmanaleika í
meira mæli í takt við þær takmark-
anir sem settar voru um samskipti
og nánd.
Í sorginni er eðlilegt að upplifa
ólíkar og erfiðar tilfinningar. Þar á
meðal geta verið tilfinningar á borð
við reiði, sektarkennd og einmana-
leika. Þessar tilfinningar saman eða
einar og sér geta oft orðið til þess að
þyngja sorgina og úrvinnslu á henni
verulega. Það er hætt við að margir
þeir sem misstu ástvin á meðan tak-
markanir vegna faraldursins voru
sem mestar séu útsettari fyrir því að
upplifa slíkar tilfinningar í sorgar-
ferlinu.
Fyrir þig sem tekst á við sorg um
þessar mundir er mikilvægt að þú
munir að þú ert ekki ein/n um að
takast á við erfiðar tilfinningar og
hugsanir. Það er mikilvægt að þú
sýnir tilfinningum þínum og hugs-
unum umburðarlyndi og leitir leiða
til að hlúa að þér eins og þú best
getur. Að reyna eftir fremsta megni
að halda rútínu í dögunum og reglu
á svefni, hreyfingu og mataræði er
f lestum gagnlegt. Þannig styrkirðu
þá þætti í lífinu þínu sem þú getur
haft stjórn á sem oft er mikilvægt
þegar atburðir og breytingar verða
í lífinu sem ekki er ráðið við. Að
reyna að draga úr einangrun og
halda tengslum við þá sem þér líður
vel í kringum skiptir miklu máli.
Þú gætir einnig viljað íhuga að leita
þér utanaðkomandi stuðnings eða
hitta aðra sem standa í svipuðum
sporum.
R áðg ja fa rþjónu st a K rabba-
meinsfélagsins býður þeim sem hafa
misst ástvin úr krabbameini upp á
stuðningsviðtöl án endurgjalds og
aðgang að öllum námskeiðum og
föstum tímum sem boðið er upp á.
Hægt er að panta tíma í síma 800
4040 eða á radgjof@krabb.is. Einnig
er hægt að koma við án þess að gera
boð á undan sér.
Sorgarmiðstöð eru samtök sem
sinna fræðslu og ráðgjöf til syrgj-
enda og bjóða reglulega upp á
stuðningshópa. Hægt er að kynna
sér starf Sorgarmiðstöðvar á heima-
síðu þeirra www. sorgarmidstod.is
Mundu að eins óhugsandi og það
kann að hljóma núna segja f lestir
sem hafa farið í gegnum sorg í kjöl-
far ástvinamissis að með tímanum
verði góðu dagarnir f leiri en þeir
erfiðu. Hugsanir og tilfinningar
sem sækja á þig geta verið mis-
munandi frá einum tíma til annars.
Stundum geta tilfinningarnar orðið
mjög yfirþyrmandi og lamandi en
á öðrum tímum taka þær minna
pláss. Mikilvægast er að þú leyfir
þér að vera þar sem þú ert stödd eða
staddur á hverjum tíma fyrir sig, á
hverjum degi fyrir sig.
Sorgin á tímum COVID-19
Í sorginni er eðlilegt að upp-
lifa ólíkar og erfiðar tilfinn-
ingar. Þar á meðal geta verið
tilfinningar á borð við reiði,
sektarkennd og einmana-
leika.
Í COVID-19 faraldrinum breytti Hei l sug æ sla höf uðbor g a r-svæðisins skipulagi sínu nán-
ast á einni nóttu. Í hnotskun var
verkefni okkar að taka sýni úr ein-
staklingum með grun um COVID-
19 smit, fylgja eftir niðurstöðum en
halda samt áfram með allt sem við
gerum venjulega.
Nýjar áskoranir á hverjum degi
hafa tekið á hjá heilsugæslunni
eins og öðrum stofnunum og fyrir-
tækjum þessa lands. Áhugi og vilji
til að gera vel og hafa jákvæð áhrif
á heilsu, hefur drifið fólk áfram til
góðra verka.
Jafnhliða þessu þurfti að koma
í veg fyrir smit, bæði hjá skjól-
stæðingum okkar, sem margir eru
í áhættuhópum, og starfsmönnum.
Ákveðið var að skjólstæðingar
kæmu í bílum sínum að stöðv-
unum og starfsmenn kæmu út í
hlífðarfatnaði til að taka sýnin,
til að koma í veg fyrir smit. Einnig
skiptust stöðvar á um að taka sýni
í bílakjallara Hörpu um helgar og á
frídögum. Í Hörpu var því þétt dag-
skrá í kjallaranum þó engir væru
viðburðir í sölum.
Undanfarin ár hef ur mark-
visst verið unnið að því að opna
stöðvarnar og auka aðgengi að
þjónustunni. Núna þurftu þó allir
að hringja á undan sér svo hægt
væri að skipuleggja þjónustuna og
lágmarka fjölda á stöðinni. Flest
erindi voru leyst í gegnum síma
eða á mínum síðum Heilsuveru. Ef
skjólstæðingur þurfti að fá skoðun
heilbrigðisstarfsfólks voru gerðar
sérstakar ráðstafanir vegna ein-
staklinga sem gætu hugsanlega
verið smitaðir. Hjúkrunarmót-
takan var opin fyrir bráð erindi
og einnig var hægt að fá viðtal við
lækni ef ekki var hægt að leysa
vandann með öðrum hætti. Bráða-
þjónustan féll því aldrei niður þó
áherslurnar væru aðrar og aðgengi
að þjónustunni breytt.
Mæðravernd og ung- og smá-
ba r naver nd hélt á f ra m með
breyttu sniði, en heilsuvernd skóla-
barna lá að mestu leyti niðri.
Snemma í faraldrinum veiktist
starfsmaður á heilsugæslustöð og
annað starfsfólk þurfti að fara í
sóttkví í tvær vikur. Stöðinni var
lokað á meðan þó hluta af þjón-
ustunni væri sinnt í fjarþjónustu
s.s. í síma eða með rafrænum sam-
skiptum. Í kjölfarið var starfsfólki
á öllum starfstöðvum skipt í tvo
hópa sem voru til skiptis á stöðinni
og í heimavinnu. Þeir sem voru
heima sinntu fjarþjónustu, í stað
þess að vera með móttöku. Þetta
var til þess að einungis helmingur
starfsmanna myndi fara í sóttkví,
ef upp kæmi smit innan þess hóps
og stöðin gæti haldist áfram opin.
Tæknifólk stofnunarinnar þurfti
fyrirvaralaust að gera hundruðum
starfsmanna kleift að vinna heima
með aðgang að öllum kerfum.
Fyrsta vikan var gríðarlega stremb-
in, en skjólstæðingar og starfsfólk
sýndu aðdáunarverða þolinmæði
og aðlögunarhæfni, þó margir hafi
meðvitað þurft að draga andann
djúpt meðan mestu byrjunarörð-
ugleikarnir gengu yfir.
Ástandið var eldskírn fyrir raf-
ræna þjónustu heilsugæslunnar
sem hefur verið í vexti undan-
farið og mínar síður Heilsuveru
voru nýttar til hins ýtrasta til
þess að hafa samskipti við skjól-
stæðingana. Netspjall Heilsuveru
jókst stjarnfræðilega og var bætt
við fjölda hjúkrunarfræðinga til
að sinna því, ásamt því að auka
við opnunartímann alla daga vik-
unnar.
Í dag er ársfundur Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins þar sem
við förum yfir viðburðaríkt ár og
tökum stöðuna á því sem fram
undan er. Krefjandi aðstæður eru
enn til staðar og heilsugæslan hefur
enn og aftur, með öflugu starfsfólki
sínu, sýnt hvað í henni býr.
Heilsugæsluþjónusta á tímum COVID-19
Óskar
Reykdalsson
forstjóri
Heilsugæslu
höfuðborgar-
svæðisins
Lóa Björk Ólafs-
dóttir
hjúkrunarfræð-
ingur hjá Ráð-
gjafarþjónustu
Krabbameinsfé-
lagsins
1 1 . J Ú N Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð