Fréttablaðið - 11.06.2020, Side 30
Við förum með
opnum hug í
samtalið við bæjaryfirvöld
með það í huga að fá fram
jákvæða niðurstöðu.
Ingvar Már Gíslason, formaður KA
Þrátt fyrir að vita
hverjir skoruðu í
öllum leikjum þá veit
enginn hvenær mörkin voru
skoruð fyrr en 1985 eða svo
því það skrifaði þetta
enginn niður nema blöðin
og blöðin gátu ekki skrifað
þetta niður á réttum tíma.
1 1 . J Ú N Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Haukur Björnsson, gerði
frábært myndband um skoraðar
þrennur á Íslandi og birti á You-
tube undir heitinu Draumur knatt-
spyrnumannsins. Myndbandið
hefur farið sem eldur í sinu milli
manna og 20 mínútna langt mynd-
bandið er nánast of stutt. Húmor
og fræðsla um leið. Haukur lagði
mikið í myndbandið en hugmynd-
in kviknaði síðasta haust.
„Ég var að leita að þessum upp-
lýsingum um þrennur út af ein-
hverju samtali sem ég átti og þær
var hvergi að finna. Ég hafði gert
ráð fyrir að finna eitthvað á heima-
síðu KSÍ eða gúggla en ég fann bara
ekki neitt. Þá hugsaði ég hvort
við vissum í alvöru ekki um allar
þrennur sem hafa verið skoraðar
á Íslandi í fótbolta,“ segir Haukur.
Hann hóf leit sína með að hafa
samband við alfræðiorðabókina
Víði Sigurðsson, blaðamann á
Morgunblaðinu, sem hefur skrifað
bækurnar um íslenska knattspyrnu
undanfarin ár. Svo við skrifstofu
KSÍ en fékk litlar upplýsingar. „Víðir
á alls konar dót en ekki samansafn
af þrennum. Þannig að ég ákvað að
safna þessu saman sjálfur.“
Myndbandið er stórskemmti-
legt áhorfs og hnyttinn textinn
sem Haukur segir undir hittir
beint í mark. Atli Eðvaldsson
skoraði fyrstu þrennu sem tekin
er fyrir en hún kom 6. ágúst 1977.
Haukur útskýrir í myndbandinu
af hverju hann byrjaði ekki fyrr en
1977. Þar segir hann að fyrst íslensk
knattspyrna hafi ekki byrjað að
taka sig alvarlega fyrr en þá fannst
honum það góð tímasetning.
„Það var líka til að hafa einhvern
byrjunarpunkt. Ég vildi helst ekki
fara til ársins 1913 því ég var að
f letta bara gömlum Moggum til að
finna þetta.
KSÍ vefurinn er ekki búinn
að setja inn hluti fyrir árið 1985
annað en úrslit leikja en það vantar
markaskorara. Þannig að ég þurfti
að f letta upp í Mogganum hver
skoraði þrennu fyrir 1985.“
Íþróttafréttamenn fortíðar voru
f lestir ákaflega lélegir í sínu fagi og
fagmennska greinilega ekki komin
í stéttina. Í kaf la Hauks um hröð-
ustu þrennu sem skoruð hefur verið
í efstu deild segir að fjölmiðlar hafi
birt mjög misvísandi upplýsingar.
Morgunblaðið skráði þriðja mark
Péturs Péturssonar á 22 mínútu en
Vísir á 28 mínútu.
„Ég hafði samband við KSÍ um
að fá leikskýrslurnar í nokkrum
leikjum því það er misræmi milli
fjölmiðla. Mig vantaði réttar upp-
lýsingar því Mogginn var ekki eins
og Vísir og svo framvegis.
KSÍ sendi mér skilaboð úr þess-
um leikjum og það var því miður
ekki skráð markamínútan.
Þrátt fyrir að vita hverjir skor-
uðu í öllum leikjum þá veit enginn
hvenær mörkin voru skoruð fyrr
en 1985 eða svo því það skrifaði
þetta enginn niður nema blöðin og
blöðin gátu ekki skrifað þetta niður
á réttum tíma. Og þá veit enginn
hvenær þetta gerðist.“
Þetta 40 ára gamla þrennumet
stendur enn, en enn er deilt um
hver þriggja manna hafi sett það.
Haukur er nýútskrifaður frá
Bandaríkjunum með Master í Sci-
ence data sem Hugtakasafn Þýð-
ingamiðstöðvar utanríkisráðu-
neytisins þýðir sem vísindagögn.
Hann hefur því áhuga á tölfræði og
forritun og nýtti námið til að finna
allar þessar upplýsingar.
„Ég skrifaði kóða sem náði í alla
markaskorara frá ksi.is. Náði í
þrennurnar og þetta tók smátíma.
Ég ákvað að fara til ársins 1977 því
þá byrjaði tíu liða deild sem virkaði
sem góður byrjunarpunktur.“
benediktboas@frettabladid.is
Beint í mark með myndbandi
um allar þrennur í boltanum
Myndband Hauks Björnssonar, Draumur knattspyrnumannsins, fjallar um þrennur í efstu deild í fót-
bolta og hefur slegið í gegn á Youtube. Haukur er nýútskrifaður frá Bandaríkjunum og vildi hafa eitt-
hvað að gera í atvinnuleysinu. Hann undraðist upplýsingaskortinn um þrennur hjá KSÍ og á netinu.
Haukur Björnsson í Hafnarfirði þar sem hann naut veðurblíðunnar. Hann gerði stórkostlegt myndband um þrennur í íslenska boltanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍÞRÓTTIR Ingvar Már Gíslason for-
maður KA greindi frá því í ræðu
sinni um ársskýrslu félagsins að
ársvelta félagsins sé nú komin í 445
milljónir króna. Hann sagði einnig
að starfshópur á vegum bæjaryfir-
valda hefði skilað af sér skýrslu um
forgangsröðun í nýfjárfestingum
íþróttamannvirkja. Sett voru fram
ellefu verkefni til næstu 15 ára þar
sem grófur kostnaður var metinn á
um sjö milljarða króna.
Fram kemur í skýrslunni að verk-
efni á KA-svæði er raðað númer 3, 4
og 11 þar sem gervigras og stúka eru
númer 3 og félagsaðstaða númer 4,
en Akureyrarvöllur er sagður nán-
ast til skammar fyrir efstu deild.
„Skýrslan er mikið fagnaðarefni
fyrir okkur KA-menn og enn gleði-
legra að nú get ég greint frá því að í
vikunni barst mér staðfesting á því
frá bæjaryfirvöldum að búið væri
að ákveða að skipa vinnuhóp sem
samanstendur af fulltrúum bæjar-
stjórnar og fulltrúum KA til að hefja
formlegar viðræður um hvernig
standa má að uppbyggingu á félags-
svæði okkar. Þetta er afar jákvætt og
stórt skref í átt að bættri aðstöðu
fyrir alla okkar iðkendur og félags-
menn. Við förum með opnum hug í
samtalið við bæjaryfirvöld með það
í huga að fá fram jákvæða niður-
stöðu fyrir KA sem og Akureyringa
alla,“ sagði Ingvar í ræðu sinni. – bb
Gervigras í
KA-kortunum
FÓTBOLTI Sara Björk Gunnarsdóttir
batt endahnútinn á 5-0 sigur Wolfs-
burg á móti Arminia Bielefeld þegar
liðin mættust í undanúrslitum
þýsku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu kvenna. Sara Björk kom inn
á sem varamaður í leiknum á 73.
mínútu leiksins og skoraði fimmta
mark Wolfsburg skömmu fyrir
leikslok.
Í bikarúrslitaleiknum mætir
Wolfsburg liði Essen sem sem fer
svo fram í Köln 4. júlí næstkomandi.
Wolfsburg hefur orðið bikar-
meistari síðustu fimm árin og hefur
Sara Björk þar af leiðandi unnið tit-
ilinn öll þrjú keppnistímabilin sem
hún hefur leikið með þýska liðinu.
Sara mun kveðja Wolfsburg eftir að
yfirstandandi leiktíð lýkur og getur
kvatt liðið sem tvöfaldur meistari.
Þegar fjórar umferðir eru eftir af
þýsku efstu deildinni í knattspyrnu
kvenna hefur Wolfsburg, sem hefur
orðið Þýskalandsmeistari síðustu
fimm tímabilin, átta stiga forskot
á Bayern München á toppi deildar-
innar. Sara Björk hefur sömuleiðis
orðið landsmeistari með Wolfsburg
síðustu þrjú árin. – hó
Sara skoraði
síðasta markið
Sara Björk Gunnarsdóttir í leik með
Wolfsburg. MYND/GETTY
45
40
35
30
25
20
15
10
5
✿ Fjöldi þrenna eftir mánuðum 1977-2019
apríl maí júní júlí ágúst september október