Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1943, Qupperneq 5

Íþróttablaðið - 01.02.1943, Qupperneq 5
VII. árgangur Reykjavík, febr. 1943. 2. tölublað. Guðmundur EinarssDn írá Miðdal: ÍÞRÓTTIR FJALLANNA í>að er tiltölulega stutt síðan að íþróttafólk fór að lilakka til vetrarins. Þótt ýmsar inniíþróttir liafi verið iðkaðar meir að vetr- inum, þá var það sökum þess, að flestir höfðu þá hetra tóm til að stunda íþróttir en á sumrin, en heilsumáttur og töfrar vetrarins náðu fyrst til fólksins er skíða- tæknin varð almenn. Skíðatækni og nýjar aðferðir í vætrarferðalögum liafa nú skap- að nýja íþrótt á íslandi jökul- göngur. Ýmsir íslendingar hafa á síðasta aldarfjórðungi öðlazt reynslu og kunnáttu í að ferðast um hrattlendi, ís og klungur, með sleða, tjöld, byggja snjóhorgir (iglo) og jafnframt lært meðferð heztu tækja sem þekkt eru fyrir slíkar ferðir. Þessi dýrmæta reynsla er aðal- lega fengin frá Alpafjöllum og Skandinavíu. Á þennan hátt hef- ur íslenzk æska komizt í nánara samband við fegurð pólarvetrar- ins og tekið að nýju upp röskleg vetrarferðalög eins og áður tíðk- aðist, meðan ferðamenning var mest á söguöldinni. Frá landnámstíð hafa lands- menn stundað hjargsig og að ldifa hjörg við bjargfuglatekju, þessi íþrótt er nú minna iðkuð en áður og myndi ef svo stefn- ir, falla í gleymsku, eins og glím- an var fyrir 30 árum. Fyrir hina nýju íþrótt jöklanna er klifuríþróttin jafngild skíða- íþróttinni og með nútíma útbún- aði eru þessar tvær aðalíþróttir fjallanna þroskandi fyrir iðk- endur á horð við sund. Iðkendur fjallaíþróttanna voru fáir og dreifðir lengi, smáhópar, sem „lögðu í púkk“ og keyptu sér ýinsan nauðsynlegan útbún- að til útilegu á jöklum og fjöll- um, misjafnlega góðan eftir því

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.