Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1943, Page 6

Íþróttablaðið - 01.02.1943, Page 6
2 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ sem efni stóðu til. Starfsemi Ferðafélagsins gaf þessum dreifðn hópum byr undir vængi, því skálar félagsins sköpuðu áð- ur óþekkta möguleika, en þó urðu brautryðjendur fjallaíþrótta að treysta mikið á ferðaliæfileik- ana þegar um jöklaferðir var að ræða, þar sem þeir höfðu mis- jöfn tjöld, lítilfjörlega sleða og takmai’kaða þekkingu á jöklun- um, flestir hverjir. Það var því eðlilegt, að fólk það sem þráði fjöllin og hjarn- breiður jöklanna, tæki liöndum saman um að skapa sér öryggi og hetri aðstæður til fjallaferða með því að byggja skála uppi á jöklum og efna til námskeiða í skíðatækni og klifuríþróttum. 1939 var fju'sta námskeiðið í háfjallaíþróttum lialdið í Kerl- ingarfjöllum og nágrenni þeirra. 1940 var fyrsti háfjallaskálinn byggður á Fimmvörðuhálsi milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls í um 1100 metra hæð. Eins og í'áðgert var í upphafi stendur að þess- um framkvæmdum íþióttafólk úr flestum íþróttafélögum Reykja- víkur, skátar og einstaklingar víðsvegar frá. Félagið var stofnað sem deild í Ferðafélaginu, eins og eðlilegt var, því þar með var eitt brenn- andi álmgamál „Félags allra landsmanna“, orðið að vei'uleika. Fjallafélag. Með línum þessum ætlaði ég ekki að hefja áróður fyrir þess- ari starfsemi meðal lesenda blaðsins, ég veit að íþróttafólki er nú yfirleitt ljóst, að þjálfun að vetrarlagi er skilyrði fyrir góð- um árangri á mótum sumarsins. En ég vildi benda á, að með því að tileinka okkur þessar fögru, íþróttir, höfum við auðgað íþróttalíf vort og þjóðlíf — úti- íþi'óttir eru líf boi'gai'búans, og fjallaferðalög treysta þau bönd milli sveita og sjávar, sem eigi mega slitna. — Hér er um þjóð- arvakningu að ræða — líkt og þegar ungmennafélögin endur- vöktu glímuna. — Við beitum íþróttum í þágu landkynningar. Straumur sá, sem áður leitaði afþreyingar í fei'ða- rölti um stórborgir álfunnar leit- ar nú til fjallanna, þetta er sig- ursöngur lífsins, en ekki flótti frá lífinu eins og sumir stór- borgaheimalningar álíta. Félag „Fjallamanna“ á eftir að

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.