Íþróttablaðið - 01.02.1943, Síða 15
IÞRÓTTABLAÐIÐ
11
Nýtt heimsmet í spjótkasti 80,61 m..
Kaststíll McKenzie.
Á síðastliðnu sumri kom fram
í Banclaríkjunum nýr afburða-
maður í spjótkasti. Maður. þessi
víkur og Knattspyrnudómarafé-
laginu lét hann mjög til sín taka,
svo og í ýmsum nefndum, er
hann átti sæti i, viðvíkjandi
knattspyrnu eða öðrum íþrótta-
málum. Dugnaði hans, ósér-
plægni, samviskusemi og dreng-
lyndi var viðbrugðið í hverjum
leik og hverju máli, sem liann
var viðriðinn.
Hann var kvæntur Sigríði
Klemensdóttur frá Húsavík.
Hér er ekki vettvangur til að
minnast Ólafs að öðru leyti en
þvi, er viðkom starfsferli hans
á sviði íþrótta, en ég vil aðeins
taka það fram, að ég á enga ósk
betri íþróttamönnum til handa
en þá, að þeir taki sér hann til
fyrirmyndar í prúðmensku hans,
drenglund og festu í hverju máli
og hverjum leik. Þá verður lieiðri
íslenskra íþrótta og íþróttamanna
vel borgið.
Þ. J.
er litt kunnur og heitir Imarson
L. McKenzie, en hefur þó eftir
blaðafregnum að dæma, í sumar
sem leið, farið hvorki meira né
minna en 7 sinnum fram úr hinu
staðfesta heimsmeti Matti Jár-
vinens, sem er 77.23 m. (253 fet,
4y% þml.). Þann 12. júlí fór hann
fyrst fram úr þvi, og kastaði þá
vfir 80 metra, eða 80,22 m. (263
fet, 2V2 þml.), en lengst hefur
liann komið spjótinu 80,61 m.
(264 fet, 6 þml.).
Þótt merkilegt megi virðast,
hefur McKenzie ekki unnið af-
rek sin ó stórum mótum, þ. e.
mótum, þar sem „stjörnurnar“
keppa, lieldur á smámótum. Hann
vinnur í flugvélaverksmiðju i
Kaliforníu, North American Avia-
tion Co., og liefur keppt fyrir fé-
lag starfsmanna i verksmiðjunni
við starfsmenn ýmsra annara fyr-
irtækja, en slíkra móta er lítt
getið í blöðum.
McKenzie stundaði einu sinni
nám í Suður-Kaliforniu-háskól-
anum, og var þá nokluið góður í
spjótkasti, en ekkert ofurmenni.
Ilann hefur nú stundað þessa
íþrótt i 15 ár, og allt i einu í
sumar tók hann þessum geysi-
framförum. Þakkar liann það
því, að hann hefur lengt tilhlaup-
ið um 6 metra, úr 26 m. í 32.
Hafði hann þetta eftir hinum
fræga stangarstökkvara, Cornel-
íusi Warmerdam, sem sagðist
hafa tekið mikliun framförum
við að lengja atrennuna. En auk
þess segist McKenzie hafa mjög
sterkan framhandlegg', og sé ])etta
i sameiningu það, sem hafi gert sig
að heimsmetshafa.
McKenzie er hæði hár (1.88 m.)
og þrekinn (195 ensk pund að
þyngd, en ekki þyngir hann þó
liárið, því liann er sköllóttur).
Hann er 25 ára gamall, og ekki
ósvipaður Mussolini að sjá, nema
hvað hann er unglegri.
Verður gaman að sjá, hvað
þessi upprennandi „stjarna“ á
eftir að afreka, því ekki er ólik-
legt, að liann eigi eftir að bæta
sig, ef hann heldur áfram að æfa.
En liann hefur hug á að komast
í flotann, livað líður, og þá verð-
ur hann víst að leggja spjótkastið
á hilluna.
Loks skal þess getið, að Finn-
inn Urjö Nikkanen hefur kastað
lengra en Járvinen, þó hann hafi
ekki fengið afrek sitt staðfest
sem met, eða 78.70 m., og var
það gert 1938 eða 1939.
Milliríkjakeppni í hnefaleikum.
í jan. s.l. fór fram milliríkja-
keppni í hnefaleikum milli Svía og
Þjóðverja. Þjóðverjar unnu með
12 stigum( sex sigrum) gegn 4
(2 sigrum).
Þetta cr í 7. sinn, sem Sviar og
Þjóðverjar keppa sín á milli í
hnefaleik. Hafa Þjóðverjar unnið
4 sinnum, Svíar tvisvar, en einu
sinni orðið jafntefli.