Alþýðublaðið - 30.12.1919, Blaðsíða 2
2
ALí’ÝÐUBLAÐIÐ
fulltrúunum það Ijóst, að þab hlýt-
ur jafnan að vera æði mikill halli
á því að láta togara veiða hér í
Ðóanum haustmánuðina, og flytja
til bæjarins.
Málinu lauk þannig, að tillaga
borgarstjóra Ólafs Lárussonar var
feld með svohljóðandi dagskrá, frá
Sveini Björnssyni:
„Bæjarstjórnin ályktar að bæta
Jóni bæjarfulltrúa Ólafssyni í nefnd
þá, sem bæjarstjórnin kaus 27. f.
m. til framkvæmda fiskkaupaá-
lyktun bæjarstjórnarinnar. í trausti
þess, að nefndin geri frekari til-
raunir til þess að útvega bæjar-
mönnum flsk, og leggi sem fyrst
fyrir bæjarstjórnina tillögur þar að
lútandi, tekur bæjarstjórnin íyrir
næsta mál á dagskrá. “ *
Þetta traust Sveins Björnssonar
á nefndinni brást þó, því hún hefir
engann fund haldið síðan Jóni Ól-
afssyni var bætt við hana.
Engum, sem á fundinum var,
mun hafa komið til hugar að Ól-
afur Lárusson flytti tillöguna í
öðrum tilgangi en þeim að útvega
bæjarmönnum fisk, og því síður
var ástæða til þess að ætla fylg-
ismönnum tillöguDnar það.
Jakob Möller var á fundinum
meðan þetta mál var rætt, og var
þess vegná kunnugt um alla mála-
vexti. Samt notar hann þetta mál
til árásar á Ó. F. á þann hátt,
sem fyr Yar getið.
Hvað er nú réttnefndur sá mað-
ur, sem þannig iýgur móti betri
vitund svíviröingum af verstu teg-
und um keppinaut sinn?
Hvað er Jakob réttnefndur?
Jakob...........?
Dm daginn og veginn.
Fargjald hækkar frá nýári um
50°/° með skipum Eimskipafélags
íslands. Ekki veit maðar orsök til
þessarar gifurlegu hækkunar, en
til þessa liggur vafalaust önnur
orsök en ágirnd. En það kemur í
ljós á sínum tíma. i.
* Það er ekki þýðingarmikið atriði,
en þó vert að geta þess hér, að með
dagskrá þessari voru brotinn fundar-
sköp bæjarstjórnarinnar, þar sem kosn-
ing í nefnd fór fram með dagskrársam-
þykt.
Au glýsingar.
Auglýsingum í blaðið er fyrst
um sinn veitt móttaka hjá Quð-
geir Jónssyni bókbindara, Lauga-
vegi 17 (bakhús). Sími 286 og á
afgreiðslunni á Laugavegi 18 b.
Prentvilla var í auglýsingunni
frá Landssímanum í blaðinu í gær.
í fyrstu máisgrein undir fyrir-
sögninni Símskeytagjöld stendur
19, í stað 10.
Stórhríð var á Norðurlandi í
gærdag, og hér var hið mesta
stórviðri af norðri, með frosti.
Grnllfoss fer héðan í dag kl. 4
áleiðis til Leith og Kaupmanna-
hafnar. Allmargt farþega fer að
sögn með skipinu.
Fótamentun. í gærkvöldi voru
haldnar dansskemtanir í þremur
eða fjórum skólum hér í bænum.
Var að sögn óvenju fátt um ung/
ar stúlkur á ferðinni, og sneru
því ungir menn þeir, sem ekki
voru svo lánsamir!! að komast á
„böllin“, heim á leið, og fóru í
„koju“, dauðleiðir á lífinu, og öf-
undandi sáran þá hina gæfusömu
skólapilta. Pótamentun er lika
bráðnauðsynleg, og ætti helzt al-
staðar að ganga á undan lestri,
og danssalir þá á undan lestrar-
stofum, enda eru í sumum skól-
um að eins til samkomusalir, en
engar lesstofur!! Máni.
Fyrirspurn
til húsaleigunefndar.
Hvers vegna leyflr húsaleigu-
nefndin einstökum mönnum að
breyta ágætum ibúðnm í skrif-
stofur og geymslupláss fyrir út-
lent glingur og skran, þegar svo
er hart á með húsnæði, að fólk
verður sama sem að liggja úti á
víðavangi. Hvort er nauðsynlegra
að hýsa fólk, sem ekkert þak heflr
yfir höfði sér, eða hitt, að fylla
húsin með glingri umboðssalanna?
Hvers vegna lætur húsaleigu-
nefndin þetta viðgangast?
Þessi íbúð, sem hér er átt við,
er í stóra steinhúsinu á Yestur-
götu 20. Spurull.
Hvenær lækkar það?
Snemma í haust hækkaði Mjólk--
urfélag Reykjavíkur verðið &
mjólkurlíter upp í 90 aura. Þessi
hækkun var gerð fyrirvaralaust,
og án þess að nokkur sýnijeg á-
stæða væri til þess fyrir hlutað-
eigendur, að gera hana. Enda
færði félagið enga aðra ástæðu eo
þá, að svo lítið væri framleitt af
mjólk, að ekki svaraði kostnaði
að selja hana fyrir það verð, er
hún áður var seld fyrir, en að-
sögn lét félagið það loforð fylgja
hækkuninni, að lækka mjólkur-
verðið jafnskjótt sem mjólkin yxi.
Fyrir jóliu auglýsti félagið, að
nú fengist mjólk aftur á ölluno
úrsölustöðum þess, en engin lækk-
un var þó auglýst jafnframt. Þótti
mörgum, sem hér brygði félagið
loforð sitt, en voru þó á hinn
bóginn ekkert hissa á því, þegar
þeir litu á fyrri framkomu þessa
sómafélags.
Öll framkoma Mjólkurfélagsins i
þessu máli hefir verið á einn veg.
og því til lítils sóma. Mjólkina
hefir það hvað eftir annað hækk-
að, þegar sízt gegndi, auðvitað
með það fyrir augum einungis,
að því er virðist, að nota sér
neyð fólks til þess að græða fé..
í raun og veru gæti þá félag
þetta verið til hins mesta gagns,
ef það hugsaði ögn meira um
það, að vera sanngjarnara í garð
bæjarfólagsins, sem það starfar í
og á tilveru sína að þakka.
Frá sjónarmiði hinnar. „frjálsu
samkepni", sem auðvitað þekkist
ekki á þessu sviði hér í bæ, þar
sem Mjólkurfélagið er eitt una
hituna, er ekkert við það að at-
huga, þó að mjólkin hækki og
lækki í hlutfalli við eftirspurnina..
En heppilegra væri þó það fyrir-
komulag, að ákveða mjólkurverðið
í eitt skifti fyrir öll á hverju ári,
því það hefir alt of oft sýnt sig,
að eftirkaupin >*þessa góða félags
hafa ekkr reynst sem happadrýgst.
í nafni barnanna, sem nú verða
annaðhvort að drekka vatn, bland-
að útlendu mjólkurlitu gutli, sem
enginn veit hvort nokkur snefilí
af mjólk er í og alls ekkert mjólk-
urbragð er að, eða þá vatn bland—