Alþýðublaðið - 30.12.1919, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 30.12.1919, Blaðsíða 3
1 3 ALÞÝÐUBLAÐIÐ cQCásetqfélagið heldur fund í Bárubúð föstud. 2. jan. kl. -7 síðdegis. Umræðuefni: Lagabreytingar og lagður fram samn- ingur togaramanna. _ f GÍfornin. að sykri. í nafni sjúklinga, sæng- "Hrkvenna og gamalmenna er hér EQeð skorað á Mjólkurfélag Reykja- Tíkur að lækka nú þegar mjólkur- verðið, sem nær engri átt að sé sanngjarnt, og reka þar með af aér það orð, sem af því fer, að fcað „lofi öllu fögru, en svíki svo Svo alt!“ Að öðrum kosti geri tað grein fyrir því með skýrum tölum, að það sé haft fyrir rangri *ök. Kvásir. Piparsveinar. (Aðsent.) Setjum svo, að einn alþektur þiparsveinn kæmi til mín á skrif- ■tofuna og spyrði mig, hvort eg «kki vildi ekki vera með að stofna »fagforeiningM“ (stétta- eða iðn- félag) fyrir piparsveina. Eg myndi auðvitað vera fús til þess, ein- hngis til að gæta hagsmuna stétt- arinnar. Eg myndi vinna fyrir fé- tagið eftir því, sem mínir litlu atarfskraftar leyfðu, efla viðgang Piparsveinastéttarinnar, sem mun Vera sú lang mest misskilda stétt keimsins. Af þeim ástæðum vildi eS mega lýsa lítilsháttar hag og ástæðum okkar, svo þá verði burtu kipt að nokkru þeim sleggju- dómum, sem við verðum að sæta. Eróðir menn halda því fram, að hafnið piparsveinn stafi frá þeirri Úð, er Hansastaðirnir höiðu í ^öndum sér mesta verzlun á Norð- ^rlöndum. Verzlunarsveinarnir hiáttu ekki kvænast, en vegna þess, er þeir m. a. seldu krydd, voru þeir nefndir piparsveinar. Bretinn nefnir piparsveina „bac- helor“ og finst mér það öllu göf- þgra nafn. Piparsveinar eru 'nauð- ®ynlegir í þjóðfólaginu, nauðsyn- ^egir til að halda jafnvægi á öllu. Þeir gera það með því, að benda ungum mönnum á hverja braut þeir skuli ekki fara. Að minsta kosti skoða eg hlutverk okkar þannig — því ekki er eg pipar- sveinn vegna þess, að mér hafl ekki boðist næg konuefni, eg gæti verið þrígiftur ef eg heíði viljað, bæði öllum þrem í einu, eða hverri á eftir annari. Þrjár stúlkur vildu alt af fara með mér í leik- húsið, sitja með mér á kaffihús- um etc., en svo mikils mat eg velferð meðbræðra minna, að eg hafnaði þeim öllum, tveim Gunn- um og einni Stóru Siggu, svo aðrir ungir menn gætu séð, hve ilt er að vera einn heima á kvöld- in, einn við borðið. Mér hefir oft dottið í hug, hve miklu eg hefi afneitað. Hugsum okkur t. d. hve dásamlegt það hlýtur að vera, að koma heim á kvöldin í heitt rúm, hátta hjá fallegri konu, t. d. með svart hár, já, en sú sæla! Lifa íyrst í tilhugalífi, stöðug stefnu- mót kl. 12 á júnínóttuin og gifta sig svo í miðjum október. Nei, þið ungu menn, sem standið á kveldin og kveðjið kærusturnar með kossi, hugsið til okkar pipar- sveinanna með þakklátum hug; okkur eigið þið það að þakka, að þið getið notið slíkrar sælu.--------- — — Stundum verður freistingin svo mikil, að eg fer að skifta í miðju og reykja cigarettur, já, og eg komst eitt sinn svo langt, að eg lét þá Halldór & Júlíus sauma mér föt eftir nýjustu tizku, eg heyrði svo mikið af þeim látið. Svo fór eg niður á Land — ekki leið á löngu, áður en ein fór að. taka eftir mér. Freistingin var mikil, veðrið var inndælt, milt og tunglsljós.----------------— Eg féll í draumkent ástand Eg gekk í anda suður Suðurgötu með stúlkunni. Mig langaði til að leiða hana, en kom mér ekki til þess. Svo tók hún í hönd mór. Eg skalf af geðshræringu. Eg varð ýmist ískaldur eða funheitur. Yið sett- umst niður og eg talaði hljóðlega við hana. Hún hallaði sér að mér og eg brann — en þá datt mér skyndilega í hug, hvort eg ætlaði að svíkja köllun mína. Eg stóð upp. Síðan hefi eg lokað augunum, þegar slíkt hefir komið fyrir og reynt að setja mór fyrir sjónir forlög heimsins, ef vór piparsvein- ar gerðum verkfall og tækjum fyrir að giftast. Þá myndi koma að þvi, að allir ungir menn »pipr- uðu“ og mannkynið lognaðist út af. Nú getið þið, ungu menn, hugsað ykkur betur um næst, er þér viljið hafa okkur að athlægi. Yið erum í raun og veru þeir \ menn, sem bezt fjölga mannkyn- inu. Stótt okkar er göfug ag nauð- synleg og því ber okkur að vernda hana með öflugum samtökum — t. d. að stofna alþjóðafélag pipar- sveinafélag (International Associ- ation of Bachelors). Jakob Jónsson. Sitt hvað úr sambandsríkinu. Sonnr Drachmanns. Sonur danska skáldsins Holgeir Drachmanns, Jens H. Drachmann, er nýkominn heim frá Ameríku eftir 15 ára veru þar. Hann er listmálari, en hefir í Ameríku að- allega lifað á því að skreyta hallir auðmanna. Annar sonur H. D. er ritstjóri hálfsmánaðarritsins „Tidskrift for Industri", Povl Drachmann, hann er einnig skáldsagnahöfundur. Þar hefir samt eplið fallið æði langt frá eikinni, því Povl Drachmann er hinn mesti auðvaldssinni, og hægri hönd Alex Foss, auðmanns- ins, sem mörg undanfarin árhefir lagt fé í hvert blaðið á fætur öðru, til þess að láta þau draga taum auðvaldsins (sama fyrir- brigði eins og við þekkjum með Mogga hér). Holgeir Drachmann er grafinn á Skaga. Þykir umgengnin við leiðið ekki sem bezt, og hefir oft verið kvartað undan því i dönsk- um blöðum, þó hún hafi auðvitað /

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.