Íþróttablaðið - 01.02.1972, Side 5
Iþróttasamband Islands
60 ára
Að morRTii aí'mælisdassins Iagði stjórn ÍSÍ blómsveiga
að leiðum þeirra Sigurjóns Péturssonar, er var aðal
hvatamaður að stofnun ÍSÍ, Axels V. Tuliniusar,
fyrsta forseta sambandsins og Benedikts G. Waage,
er var forseti samfellt í 36 ár og jafnframt var
afhjúpuð vangamynd af Benedikt, gerð af Ríkharði
Jónssyni, myndhöggvara. Viðstaddir voru einnig
nánir ættingjar Benedikts og vinir.
Á myndinni t. v. er minnisvarðinn en á hinni
myndinni stjórn og starfsmenn ÍSÍ við leiði Axels V.
Tuliniusar, talið frá vinstri: Gísli Halldórsson, Hannes
Þ. Sigurðsson, Sveinn Björnsson, Gunnlaugur J Briem,
Hermann Guðmundsson, Sigurður Magnússon,
Þorvarður Árnason.
28. janúar 1972
ÍSÍ minntist þessara tímamóta með ýmsum
hætti dagana 28. og 29. janúar s. 1. íþróttablaðið
birtir hér í máli og myndum helztu atriði
hátíðahaldanna.
> ■ JjÉL » \.
W|f3r *
J ÞRÓTTABLAÐIÐ
37