Íþróttablaðið - 01.02.1972, Side 17
Gisli Halldórsson, forseti ISI, ávarpar 50. ársþing UMSB
Vilhjálmur Einarsson, skólastjóri í
Reykholti, sambandsstjóri UMSB,
setur 50. ársþingið.
Matthías Ásgeirsson, íþróttakennari
í Reykholti, sem íþróttaunnendum
er vel kunnur vegna afreka hans
í körfuknattleik og í fleiri íþróíta-
greinum er framkvæmdastj. UMSB.
Matthías var að vonum önnum kaf-
inn á þinginu, en í örstuttu samtali
sagði hann, að sér félli vel að vinna
að þessum málum. Starf sitt væri
einkum fólgið í þjónustu og fyrir-
greiðslu við sambandsaðilana í sam-
bandi við mót og ýmiskonar félags-
starfsemi. Aðspurður sagði hann
starfsíþróttir eiga miklum vinsæld-
um að fagna og væru þær greinilega
á upp leið
Hann kvaðst vilja þakka UMSB sérstaklega dugmikið og farsæll
starf. Skýrslur og reikningar á þinginu gefa nokkra hugmynd um
alla þá vitinu og fyrirhöfn, sem lægi að baki starfseminni. Forseti
ÍSÍ lét svo um mælt í tilefni þess að UMSB hefði sinn eigin fram-
kvæmdastjóra að sér væri ljós nauðsyn þess, að svo gæti verið hjá
sem flestum héraðssamböndum. a. m. k. hluta af árinu. Það væri
von sín og stjórnar ISI. að íþróttasambandið gæti aukið framlag
sitt til héraðssambandanna, svo þeim yrði þetta kleift fjárhagslega.
Minnti hann á og kvaðst vilja þakka það, að stjórnarvöld hefðu auk-
ið verulega fjárframlög til ÍSÍ og íþróttasjóðs. Sömuleiðis gæfu
Getraunir af sér vaxandi tekjur. — Þetta samanlagt ætti að gera
það að verkum, að hægt yrði að láta héraðssamböndunum í té aukna
fjárhagslega aðstoð. Hann kvað hugmyndir hafa komið fram um að
breyta um fyrirkomulag á tekjuskiptingu Getrauna, þannig að
íþróttahreyfingin bæri rninni hlut frá borði. Hann kvaðst þó vona
að slíkar hugmyndir næðu ekki franr að ganga. Styrkur Getrauna
væri ekki sízt til orðinn vegna mikillar vinnu hundruða sjálfboða-
liða í íþróttahreyfingunni, við sölu getraunaseðlanna og því mætti
ekki raska þeim grundvelli fyrir tekjuöflun, sem ætti rætur sínar
að rekja til þess starfs.
Forseti ÍSÍ gerði einnig trimm-starfsemina að umtalsefni og í
því sambandi staðreyndina um sífellt styttri vinnutíma og sem af-
leiðingu af því, nauðsynina á möguleikum til hollrar tómstunda-
iðkunar. Þar hefði trimm-starfsemin þýðingarmiklu hlutverki að
gegna og íþróttahreyfingin mikið verk að vinna, sem hann kvaðst
fullviss unr að ætti eftir að bera mikinn og góðan árangur.
Loks gat forseti ÍSÍ um skipulagsbreytingu í útgáfu íþróttablaðs-
ins. Hvatti hann til stuðnings við útgáfuna, svo að blaðið gæti orð-
ið sem virkastur tengiliður og vettvangur fyrir málefni íþróttahreyf-
ingarinnar í landinu.
ÍÞRÓTTABLAÖIÐ
49