Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1972, Page 32

Íþróttablaðið - 01.02.1972, Page 32
Atli Steinarsson: Synti 200 metrana 6 ára — Islandsmet 13 árum síðar Rætt við Finn Garðarsson skriðsundsmann Snemma sumars árið 1958 var haldið námskeið fyrir börn í Bjarnarlaug á Akranesi. í þeim hópi bama sem námskeiðið sóttu vom tveir af beztu sundmönnum íslands í dag. Þeir trítluðu til námskeiðsins meðal annarra Finnur Garðarsson og Guðjón Guð- mundsson. Finnur á nú íslandsmetin í skriðsundi á vegalengdun- um frá 50—200 m bæði í stuttum (25 m) og löngum (50 m) braut- um Guðjón vann það afrek á s. I. ári að tryggja íslandi sigur í bringusundi í landskeppni við þrjár þjóðir. Finnur Garðarsson, - 5. á lista beztu íþróttamanna ársins 1971 — Við Gaui urðum fyrstir til að læra sund af þeirn sem á námskeiðinu voru. Og síðar um sumarið syntum við báðir -— þá 6 ára — 200 metrana í norrænu sundkeppninni. Þannig tók Finnur Garðarsson til orða er við ræddumst við á dögunum í tilefni þess að Iþrótta- blaðið vildi kynna þennan unga sundkappa svolítið nánar fyrir lesendum. — Það var dálítill áhugi á sundi á Akranesi þá. Bróðir Gauja (þ. e. Guðjón Guðmunds- son) var við æfingar og dró Gauja með sér og Gaui dró mig. Þann- ig atvikaðist það að ég hóf sund- æfingar reglulega. Ég var þá á áttunda ári og fyrstu þjálfurun- um, sem voru Magnús Kristj- ánsson og Jón Helgason til skipt- is, tókst að viðhalda áhuganum á sundi, sagði Finnur. Nú, 13 árum eftir að Finnur kom 6 ára til námskeiðsins á Akranesi, er hann í hópi lands- liðsmanna íslands í sundi og einn af beztu sprett-skriðsunds- mönnum Norðurlanda. Hann er nú bckaður fyrir fimm fslands- metum og hann varð í 5. sæti á lista yfir beztu íþróttamenn ársins í kjöri íþróttafréttaritara um áramótin. — Raunverulegur áhugi minn á sundi vaknaði þá er ég tók að ná árangri á sundmótum í Reykjavík, sem við strákamir á Akranesi vorum alltaf sendir til. 1965 er ég var 14 ára setti ég sveinamet í 100 m skriðsundi, 1 :o6.5 og á næstu tveimur árum. þá er ég var í aldursflokki drengja, tókst mér að bæta drengjamet Guðmundar Gísla- sonar í 50. 100 og 200 m skrið- sundi. Árið 1970 tókst mér síðan að jafna íslandsmet Guðmundar í 100 m skriðsundi á 50 m braut, 58.0 sek. en það met virtist ætla að verða erfitt að yfirstíga. — En það hafa aðeins revnzt tímabundnir erfiðleikar? — Já, árið eftir eignaðist ég mitt fyrsta íslandsmet. Það var nú skemmtileg tilviljun, að það 64 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.