Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 12
„Ég er metnaðargjarn“
Eg var að fara af fótboltaæfingu hjá
Þrótti á Melavellinum er ég rakst
þar á Guðmund. Þá var hann
leikfimikennari minn í
Vogaskólanum, en þetta var rétt eftir að
hann kom frá Svíþjóð. Við strákamir
röbbuðum við Guðmund þama á vellinum
og umræðan snerist um frjálsíþróttir. Hann
fræddi okkur um ýmislegt og lét okkur
stökkva langstökk án atrennu þarna á
stéttinni. Það endaði með því að hann bauð
okkur að koma á æfingu upp í ÍR-húsinu,
en það að maður mætti þar leiddi smám
saman til þess að maður hóf að æfa
frjálsíþróttir en lét fótboltann lönd og leið.“
Þannig mælti frjálsíþróttamaðurinn Óskar
Jakobsson í spjalli við íþróttablaðið er hann
var að þvi spurður hvernig hann hefði
kynnzt og komið inn i frjálsíþróttir, en i dag
er Óskar íslandsmethafi í spjótkasti og mjög
frambærilegur kringlukastari og ágætur
kúluvarpari. Á undanförnum árum hefur
hróður hans farið víða, hann hefur staðið
sig mjög vel í landskeppnum, þ.á m. sigrað í
Evrópubikarkeppni, orðið
Skotlandsmeistari í kringlukasti og
silfurmaður þar í spjótkasti og kúluvarpi,
auk þess sem hann valdist til þátttöku í
síðustu Ólympíuleikum. Fór spjallið við
Óskar fram á heimili hans, en ásamt konu
sinni Jónu Jónsdóttur hefur Óskar komið
sér upp ágætis eigin húsnæði þrátt fyrir
S '
Óskar Jakobsson í
kringlukasti. (þeirri
grein hefur hann
náð öðrum bezta
árangri (slendings
frá upphafi, kastað
tæpa 60 metra.