Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 33

Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 33
——"“7——“ Leikmenn Liverpool-liðsins Leikmenn Liverpool-liðsins í vetur hafa verið eftirtaldir: Markverðir: Ray Clemence Hefur leikið með Liverpool frá ár- ínu 1967. Var áður hjá Scunt- horpe United. Hefur leikið 33 landsleíki fyrir England. Peter McDonnell Var keyptur til Liverpool frá Burn- ley, þar sem hann lék einn 1. deildar leik. Varnarmenn: Joey Jones Hann kom frá Wrexham til Liver- pool 1975. Greiddi Liverpool 100.000 pund fyrir hann. Hefur leikið 9 landsleiki fyrir Wales Brian Kettle Hefur leikið með Liverpool all- an sinn feril. Phil Neal: Hann kom til Liverpool frá North- ampton Town í október 1974. Keypti Liverpool hann fyrir 60.000 pund. Hefur leikið 9 landsleiki fyrir England. Tommy Smith: Hann hefur alltaf leikið með að það sé sérstök lífsreynsla að koma á heimavöll Liverpool, Anfield Road. Og hefur t.d. Ron Revie sagt eftirfarandi sögu. — Þetta skeði árið 1974, meðan ég var enn þjálfari Leeds United. Við áttum að leika við Liverpool undir lok keppninnar, og þegar að þessum leik kom höfðum við þegar tryggt okkur meistaratitilinn, — stolið honum af Liverpool, sem varð svo í öðru sæti. Ég man eftir hversu dauf stemmningin var í búningsherberginu okkar fyrir leikinn. Við vorum satt að segja skíthræddir við viðtökurnar sem við myndum fá þegar við kæmum út á völlinn. Ég reyndi að telja kjark í leikmenn mína og leggja þeim lífs- reglurnar. Láta sem ekkert væri, en vera samt fljótir að forða sér í búningsherbergin þegar leiknum lyki, a.m.k. ef fólkið færi að streyma út á völlinn. Ég varð var við að sumir leikmannanna voru skjálfandi þegar að því kom að við þurftum að fara út. Aðeins fyrirliðinn okkar Billy Bremner virtist vera í jafnvægi. En um leið og við birtumst stóð meginhluti þeirra 45.000 áhorfenda sem voru komnir til þess að sjá þennan leik á fætur, klappaði og Liverpool. Hefur leikið 1 landsleik fyrir England. Phil Thompson Hefur verið allan sinn feril hjá Liverpool. Hann á átta landsleiki fyrir England að baki. Emlyn Hughes: Keyptir frá Blackpool í febrúar 1967 fyrir 65.000 pund. Hefur leikið 50 landsleiki fyrir England. Alan Hansen: Keyptur af Partic Thistle sumarið 1977 fyrir 100.000 pund. Miðvallarleikmenn: lan Callaghan Hann hefur leikið með Liverpool síðan 1960 og á 3 landsleiki með enska landsliðinu að baki. Terry McDermott: Keyptur frá Newcastle United í nóvember 1974 fyrir 175.000 pund. Ray Kennedy: Hann kom til Liverpool frá Arsenal í júlí 1974. Greiddi Liverpool 180.000 pund fyrir hann. Á 9 landsleiki með enska landsliðinu að baki. kallaði í kór: Þið eruð sannir meistarar. Verið þið velkomnir. — Þessu gleymi ég aldrei, sagði Don Revie. Og það eru allir velkomnir á Anfield Road, þótt auðvitað beri allir þá von í brjósti að þeir fari þaðan sigraðir. Margar skemmtilegar sögur eru til um tilsvör og viðbrögð áhorfenda og áhangenda Liver- pool-liðsins, svo sem sagan um viðræður tveggja áhangenda sem áttu að hafa verið á þessa leið: — Hvað eigum við að gera, ef Drottinn kemur allt í einu hingað á Anfield, sagði annar. — Ætli það sé um annað að velja en að setja þá Kevin Keegan í vömina, svaraði hinn. Maðurinn á bak við velgengnina Maðurinn á bak við velgengni Liver- pool-liðsins á undanförnum árum er hinn hæruskotni þjarkur Bill Shankly, en hann sagði þegar hann tók við liðinu að hann \ Framherjar: Steve Heighway: Hann kom til Liverpool áriö 1970. Hefur leikið 16 landsleiki fyrir íra. John Toshack: Keyptur frá Cardiff City í nóvem- ber 1970 fyrir 110.000 pund. Hefur leikiö 30 landsleiki fyrir Wales. Hefur nú nýlega verið seldur frá Liverpool. Jimmy Case: Hann hefur verið allan sinn feril hjá Liverpool. Kenny Dalglish: Hann keypti Liverpool af Celtic Glasgow fyrir 450.000 pund sl. sumar. Hefur leikið 50 landsleiki fyrir Skotland. Alan Waddle: Hann keypti Liverpool af Halifax Town. David Fairclough: Hann hefur verið hjá Liverpool allan sinn feril. David Johnson: Keyptur af Ipswich Town í ágúst 1976 fyrir 200.000 pund. Hefur leikið þrjá landsleiki fyrir England. ætlaði sér að láta Liverpool verða fræga borg fyrir annað en Bítlana. Það hefur honum svo sannarlega tekizt, og notið til þess dyggilegrar þjónustu þjálfarans, Bob Paisley, sem þykir mjög fær maður í sínu starfi, þótt ekki hafi hann hátt um sig. Það er t.d. hans verk að leikmenn Liverpool hafa öðru vísi agareglur en flestir aðrir brezkir knattspyrnumenn. Þeir verða nefnilega fyrst og fremst að aga sig sjálfir. — Við skiptum okkur ekki af því sem leik- mennirnir gera utan vinnutíma síns, hefur Paisley sagt, — það eina sem við gerum kröfur til, er að þeir séu í góðu formi, og þeir vita það jafnvel betur en við, hvað þarf að gera til þess að svo megi verða. Hápunkturinn á frækilegum ferli Liver- pool-liðsins var sl. keppnistímabil, en þá munaði litlu að félagið hlyti eftirsóknar- verða þrennu, þ.e. enska meistaratitilinn, enska bikarmeistaratitilinn og Evrópu- meistaratitil félagsliða. — Þessir dagar í maí verða örugglega eftirminnilegustu dagar sem ég á eftir að lifa, sagði fyrirliði liðsins, Emlyn Hughes, þegar allt var afstaðið. Á ellefu daga tíma- 33

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.