Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 34

Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 34
bili var útkljáð hvað kom í okkar hlut af þeim titlum sem í boði voru. Við vorum satt að segja logandi hræddir að eins færi fyrir okkur og Leeds United árið 1973, er félagið var svo til búið að ná þremur titlum. En þá tapaði það meistaratitlinum til okkar, bik- armeistaratilinum til 2. deildar félagsins Sunderland og loks tapaði það svo Evrópu- bikarúrslitaleiknum fyrir ítalska liðinu Milan. Taugaspennan sem ríkti í herbúðum okkar þegar við gengum til leiks við West Ham United, þar sem við gátum tryggt okkur meistaratitilinn, var gjörsamlega ólýsanleg. Við þurftum jafntefli í þeim leik til þess að verða meistarar, og ég man ekkert hvað skeði á vellinum, utan þess að ekkert mark var skorað í leiknum. Við vorum örðnir meistarar. Næsta skref var úrslitaleikur bikar- keppninnar á Wembley, og eftir að vera orðnir meistarar töldum við okkur allar leiðir færar. Við værum búnir að sigrast á skrekknum og hlytum að sigra mótherjann, Manchester United. En það fór á annan veg, við töpuðum 1—2 og úrslitin urðu til þess að vekja hjá okkur efasemdir um ár- angur í leiknum sem eftir var. I Evrópu- bikarúrslitunum var mótherjinn ekki af verri endanum, Bayern Múnchen, áttum við möguleika gegn þeim? Þessa umreidda leiks verður lengi minnzt sem leiksins þar sem Kevin Keegan, lág- vaxnasti leikmaður vallarins, varð sá Staðreyndir um Liverpool Stofnað 1892 Heimílisfang: Anfield Road, Liver- pool 4 Sími: 009 44 51 2632361 Forseti: J.W. Smith Ritari: P.B. Robinson Framkvæmdastjóri: Bob Paisley. Deildaskipan Liverpool: 1893: 2. deild 1894— 1895:1. deild 1895— 1896:2.deild 1896— 1904:1. deild 1904— 1905:2. deild 1905— 1954: 1. deild 1954—1962:2. deild 1962— : 1. deild Titlar: Enskur meistari 1901,1906,1922, 1923, 1947, 1964, 1966, 1973, 1976 og 1977. Bikarmeistari: 1965 og1974 Evrópubikarhafi meistaraliða: 1977 UEFA-bikarmeistari: 1973 og 1976 Mestur sigur: 11—0 yfir norska liðinu Strömgodset í Evrópubik- arkeppni bikarhafa 17. september 1974. Mesta tap: 1—9 í leik við Birm- ingham City 11. desember 1954. Flestir leikir Flesta leiki fyrir Liverpool áður en þetta keppnistímabil hófst áttu eftirtaldir: lan Callaghan 614 Tommy Smith 445 Emlyn Hughes 419 Ray Clemence 306 Flest mörk fyrir Liverpool: Roger Hunt245 Hæsta verð fyrir leikmann: Kenny Daglish frá Celtic, Glasgow keyptur á 450.000 pund. Hæsta sala: Kevin Keegan seldur til Ham- burger SV fyrir 500.000 pund. stærsti. Úrslitin urðu 3—1 sigur Liverpool- liðsins, og það þótti bera af vestur-þýzka meistaraliðinu, þar sem þó var valinn mað- ur í hverju rúmi. Gleðinni sem ríkti í her- búðum „The Kops“ að unnum þessum sigrum verður ekki lýst með orðum. En í vetur hefur nokkurt bakslag komið hjá Liverpool, eins og raunar er ekki óal- gengt hjá meistaraliðum. Mestu munar þó hjá liðinu að nú hefur það ekki yfir neinum Kevin Keegan að ráða. Hann sem var áður allt í öllu, ekki aðeins á leikvellinum, heldur einnig utan hans, tók saman pjönkur sínar og flutti til Vestur-Þýzkalands, þar sem hann leikur með Hamburger SV. f haust leit reydnar út fyrir að Liverpool hefði fundið Framhald á bls. 50 Liverpool-liðið eins og það var skipað í haust: Efsta röð frá vinstri: Joey Jones, Phil Thomp- son, Ray Clemence, Alan Hansen og John Toshack. Miðröð: Ronnie Moran (þjálfari), Kenny Dalglish, David Fairclough, Ray Kenn- edy, David Johnson, Phil Neal og Joe Fagan (þjálfari). Fremsta röð: Jimmy Case, Ian Callaghan, Tommy Smith, Bob Paisley (fram- kvæmdastjóri) Emlyn Hughes, Steve Heighway og Terry McDermott. • ájr { Y .vl ’.J( -A VJ® ' *> jCflB lHR ^ jn i : : VT: A :í fi.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.