Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 18
í svigkeppninni á Olympíuleikunum í Innsbruck gekk illa hjá Stenmark. Hann var í fremstu röð
eftir fyrri umferðina, en í seinni umferðinni fór svo sem sjá má af myndum þessum.
Stenmark
Nu ár Ingemar den störste! Þannig
hljóðuðu risastórar fyrirsagnir
sænsku blaðanna eftir að þeirra
maður: Ingemar Stenmark hafði
með ótrúlegri hæfni sinni borið sigur úr
býtum í svigkeppninni í Garmisch
Partenkircken á dögunum og þannig tryggt
sér annan heimsmeistaratitilinn á þessu
móti. Og á meðan á hinni æsispennandi
keppni stóð má segja að allt athafnalíf hafi
verið lamað í Svíþjóð. Menn lögðu frá sér
verkfæri sín, hvar sem þeir voru, og þyrptust
kringum útvarps- og sjónvarpstækin til þess
ð fylgjast með sínum manni. Jafnvel í
sænska þinginu var ástandiðnþannig að
ekki voru aðrir í fundarsalnum en þeir sem
nauðsynlega þurftu að vera þar, og þeir
brunnu í skinninu eftir að frétta úrslitin.
Eftir fyrri umferð svigkeppninnar var
Ingemar Stenmark í öðru sæti á eftir hinum
frábæra ítalska skíðagarpi Piero Gros, sem
sýnt hafði stórkostlega hæfni í hinni erfiðu
braut í fyrri ferðinni og farið hana á 51,29
sek. Tími Stenmarks var 51,56 sek. og
munurinn því nokkuð mikill þegar tveir
slíkir garpar eiga hlut að máli.
Alls voru keppendur í sviginu í Garmisch
Partenkircken 102 talsins. Meðal þeirra var
íslendingurinn Sigurður Jónsson, og hafði
hann rásnúmerið 46 í fyrri umferðinni.
Þegar að honum kom var því brautin tekin
að versna og grafast, en eigi að síður fór
hinn ungi ísfirðingur hana af miklum
glæsibrag og öryggi og náði 13. bezta tím-
anum sem náðist í fyrri umferðinni 54,77
sekúndum. Skipaði hann sér þar með í röð
hinna beztu, og var aðeins einn Norður-
landabúi að Stenmark undanskildum, sem
náði betri tíma í umferðinni: Thorsten
Jakobsson frá Svíþjóð. Sænski sjónvarps-
þulurinn sem lýsti keppninni lét mörg
hrósyrði falla um Sigurð meðan hann var í
brautinni: „Þessi piltur var talinn undra-
barn þegar hann kom fram á sjónarsviðið
og hann virðist ætla að standa við fyrirheit-
in“ sagði þulurinn, og gat þess jafnframt að
Sigurður æfði með sænska skíðalandslið-
inu.
Það var því mikil spenna ríkjandi er
seinni umferð svigkeppninnar hófst. Þegar
að Ingemar Stenmark kom, sannaði hann
strax að hann „ar den störste“. Að því er
virtist fór hann brautina gjörsamlega fyrir-
hafnarlaust, og þegar millitími hans var
gefinn upp var sýnt að hann átti mjög góða
möguleika á að sigra Piero Gros. Sænsku
þulirnir sem lýstu keppninni í útvarp og
sjónvarp hreinlega gengu af göflunum
meðan Stenmark var í brautinni, þannig að
erfitt var að skilja hvað þeir sögðu. Og lýs-
18