Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 23

Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 23
Spurningar Iþróttablaðsins Hverníg er aöstaöa þeirra? 1 2 3 4 Hvaða íþróttamannvirki eru þegar á staðnum, hvernig er ástand þeirra og eru þau fullnægjandi fyrir íþróttastarfiðí í bæjarfélaginu. Hefur verið íþróttaaðstaða til þess aö nemendur grunnskólastigsins fengju lögboðna íþrótta- kennslu? Hverjar hafa verið helztu framkvæmdir við íþrótta- mannvirki undanfarin tvö ár? Hvað er framundan hjá bæjarfélaginu í gerð íþróttamannvirkja? Isfirðingar hafa löngum átt marga frábæra skíðamenn, enda má segja að skíðaíþróttin sé þar ,,þjóðaríþrótt“. Fremstur í flokki margra góðra skíða- manna sem komið hafa frá ísafirði er þó ugglaust Sigurður Jónsson, sem er nú að komast í fremstu röð skíðamanna í heiminum, þótt ungur sé að árum. ísa- fjörður Bolli Kjartansson, bæjarstjóri á fsafirði svaraði spumingum blaðsins: 1. spurning: A) Sundhöll (16%x8 metrar) íþróttasalur (22x11 metrar) B) Iþróttavöllur (knattspyrnuvöllur) — malarvöllur á Torfunesi. (Aðal íþróttasvæði framtíðarinnar — tveir vellir og hlaupabrautir). C) Skíðamannvirki á Seljalandsdal — tvær lyftur, skíðaskáli og fleira. D) Félagsheimilið í Flnífsdal (samkomu- salur notaður) Vöntun er á stórum íþróttasal, graavelli, frjálsíþróttaaðstöðu. 2. spurning: Já. 3. spurning: Slitlag lagt á Torfunesvelli svo og var unnið að ræsagerð þar. Að öðru leyti er um viðhald að ræða á þeim mannvirkjum sem eru í eigu bæjarins. 4. spurning: Áframhaldandi uppbygging á Torfunes- svæðinu (þ.e. grasvöllur, malarvöllur og frjálsíþróttaaðstaða). Minni sparkvellir í hverfunum. 23

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.