Fréttablaðið - 26.06.2020, Qupperneq 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 4 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 6 . J Ú N Í 2 0 2 0
Tilboðsverð frá
3.190.000 kr.
hekla.is/volkswagensalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA
Einstaklega vel gerður
fyrir einstakt fólk
eins og þig
Hús á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu í Vesturbænum í Reykjavík gjöreyðilagðist í eldsvoða í gær. Slökkvilið, lögregla og sjúkraf lutningafólk var með mikinn við-
búnað á staðnum. Sex einstaklingar voru f luttir á sjúkrahús en ekki lágu fyrir upplýsingar um líðan þeirra þegar Fréttablaðið fór í prentun. Lögregla handtók þrjá á vettvangi
en ekki liggur fyrir hversu margir voru í húsinu þegar eldurinn kom upp. Samkvæmt frásögnum sjónarvotta stukku einhverjir íbúar út um glugga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
STJÓRNMÁL Mjög hafði þokast í
samningaviðræðum þingf lokka
um þinglok síðdegis í gær en þegar
Fréttablaðið fór í prentun stóð
afstaða til frumvarps Pírata um
afnám refsinga fyrir vörslu neyslu-
skammta fíkniefna enn í veginum.
Þingmenn Miðf lokksins höfðu
ekki fyrr lokið málþófi sínu en
Píratar röðuðu sér á mælendaskrá á
þingfundi síðdegis í gær og voru enn
að ræða orkumál þegar Fréttablaðið
fór í prentun. Píratar vilja fá mál
sitt um afglæpavæðingu fíkniefna-
neyslu til atkvæðagreiðslu á Alþingi
en stjórnarmeirihlutinn hyggst
leggja fram tillögu um að málinu
verði vísað til ríkisstjórnarinnar til
frekari meðferðar.
Frekara málþófi Miðf lokksins
var afstýrt með samkomulagi um
að fjárlaganefnd afgreiði sérstakt
framhaldsnefndarálit um frumvarp
tengt Borgarlínu þar sem komið er
til móts við sjónarmið Miðflokks-
ins. Afgreiðslu frumvarps um
skipun sendiherra, sem mætt hefur
mikilli andstöðu bæði stjórnarand-
stöðu og umsagnaraðila, verður
frestað fram á haust. Þá er unnið að
nokkrum breytingum á umdeildu
samkeppnislagafrumvarpi til að
liðka fyrir samningum um þinglok.
Birgir Ármannsson, formaður
þingf lokks Sjálfstæðisf lokksins,
segir þó enga samninga í höfn fyrr
en allir eru um borð. „Fyrirstaðan
núna er hjá Pírötum,“ segir Birgir.
Pírötum standi til boða að fá mál
sitt á dagskrá en þeir vilji líka ráða
afgreiðslu þess og þar strandi á
samningum sem annars hafi náðst
að mestu leyti milli þingflokka.
Venju samkvæmt er stefnt að
lokaafgreiðslu nokkurra þing-
mannamála við þinglok. Þar á
meðal eru mál Viðreisnar um gjald-
frjálsa sálfræðiþjónustu, mál Mið-
flokksins um gjaldfrjálsar krabba-
meinsmeðferðir, tillaga um aðlögun
innflytjenda að íslensku samfélagi
sem Samfylkingin lagði fram og
frumvarp Flokks fólksins um vísi-
tölutengingu bóta almannatrygg-
inga. Sem fyrr segir leggja Píratar
áherslu á fyrrnefnt frumvarp um
fíkniefni. Píratar sætta sig þó ekki
við að málinu verði vísað til ríkis-
stjórnarinnar. „Við viljum bara að
annaðhvort verði frumvarpið sam-
þykkt og gert að lögum eða þing-
menn hafni því í atkvæðagreiðslu,“
segir Halldóra Mogensen, formaður
þingflokks Pírata. – aá
Þinglok stranda á fíkniefnastefnunni
Sendiherrafrumvarpi verður frestað til hausts og breytingar gerðar á samkeppnismáli til að liðka fyrir þinglokum. Koma á til móts
við Miðflokkinn um Borgarlínumálið. Allt strandar á Pírötum sem vilja atkvæðagreiðslu um afnám refsinga fyrir vörslu fíkniefna.
Við viljum bara að
annaðhvort verði
frumvarpið samþykkt og
gert að lögum eða þingmenn
hafni því í atkvæðagreiðslu.
Halldóra Mogensen, formaður
þingflokks Pírata
+PLÚS