Fréttablaðið - 26.06.2020, Page 12

Fréttablaðið - 26.06.2020, Page 12
Afgreiðslutímar á www.kronan.is Fáðu töfra innblástur á kronan.is/ töfrar OG PÚFF ... ANANAS Abra - kadabr - TÖFRAR Á TEINI! GÓÐUR Á G RI LL IÐ ANANA S Þegar kosningar eru á næsta leiti er það umræðuefnið þegar menn koma saman. Jú, ég kýs hann Guðna því hann er bara svo góður drengur, sagði svili minn. Og stendur sig þvílíkt vel, sagði mágkonan. Undir þetta verð ég að taka. Forsetinn er ekki valdagírugur og notar embættið rétt og til góðra verka. Hérlendis kjósum við einstaklinga til að fara með ýmis sameiginleg málefni okkar og bera þeir ábyrgð á hinu og þessu – fjórða hvert ár kjósum við til þings og veljum á þann hátt líka óbeint ráðherra, og sömuleiðis fjórða hvert ár til bæjarstjórnar. Hver og einn af hinum þjóðkjörnu fulltrúum hefur sitt hlutverk, þar á meðal er hlutverk forsetans alveg sérstakt, þó einstaka menn virðist ekki vita það. Guðni þekkir hlut- verk sitt í embætti. Hann leitast við að vera mjög gott sameiningartákn landa sinna. Að menn séu sáttir við hann og einnig eftir því sem hægt er kurteisir hver við annan. Um leið og hann hvetur til umræðu og skoðanaskipta. Og síðast en ekki síst til bjartsýni og góðra verka. Með hvatningunni fylgir þessi þægilega tilgerðarlausa hegðun forsetans sem er á sjónvarpsskjá rétt eins og hún væri í lítilli kennslustofu. Ég held líka að okkur Íslending- um finnist sérstaklega mikilvægt hvernig við könnumst við ýmislegt í fari Guðna af því það minnir okkur á okkur sjálf. Já, þetta íslenska. Sjálfsagt mætti hér nefna margt en eitt dæmi er hvernig Guðni tengir saman gamalt og nýtt, fortíð og nútíð og jafnvel framtíð.  Sagan, Íslendingasögurnar og jafnvel blessaður gamli, að ýmsum finnst ógeðslegi, maturinn okkar. Þarna er sagnfræðingurinn Guðni auðvitað á heimavelli. Og nútíminn, þessi þörf Íslendinga fyrir að fylgjast með, vera fyrst og best og f lest í að nota nútímatækni. Þar er forsetinn einnig öllum hnútum kunnugur. Annað dæmi er svo fjölskyldu- maðurinn Guðni, og þá líklega ekki síst krakkaskarinn. Þriðja dæmið væri svo auðvitað Guðni að plokka rusl, en samstarfsmaður minn sem hleypur gjarnan sér til heilsubótar rakst á hann eitt rólegt kvöld úti á Álftanesi við að tína rusl og snyrta til. Þetta kunnuglega hlýja viðmót og fullkomna tilgerðarleysi er það sem auglýsir forsetann einna best. Mætum öll og kjósum Guðna for- seta. Kjósum góðan forseta Um helgina fara fram forseta-kosningar í okkar 76 ára gamla lýðveldi. Tveir fram- bjóðendur hafa gefið kost á sér og annan þeirra þekki ég til margra ára og aðeins af góðu, Guðna Th. Jóhannesson sitjandi forseta. Líkt og langflestum Íslendingum finnst mér að Guðni og eiginkona hans, Eliza, hafi staðið sig frábærlega í embætti og almenn sátt ríkt um störf þeirra. Reyndar heldur mót- frambjóðandi hans öðru fram og beitir orðræðu sem ég man ekki eftir að hafi áður tíðkast í forseta- framboði hérlendis. Sem betur fer hefur Guðna tekist að forðast stór- yrði í kosningabaráttunni og orð- ræða hans verið bæði málefnaleg og yfirveguð. Kurteisi er Guðna í blóð borin og viðmót þeirra hjóna er einstaklega vinalegt og alþýð- legt. Guðna hefur sem forseta tekist að sameina fólk en ekki sundra, en það er eiginleiki sem sjaldan hefur verið eins mikil þörf fyrir og nú. Það er einmitt í mótvindi sem mest mæðir á forseta Íslands. Þar kemur Guðni sterkur inn – og það get ég fullyrt út frá eigin reynslu. Guðni kann að hlusta og hefur reynst mér og f leirum vel þegar á móti blæs.  Minnisstæð er ferð okkar á Hvannadalshnjúk fyrir þremur árum þar sem sofið var í tjaldi á miðjum Öræfajökli. Hæsti tindur Íslands, Hvannadalshnjúk- ur, var síðan toppaður á miðnætti en þangað hafði hann ekki komið áður. Þetta var krefjandi fjallaferð þar sem draga þurfti þungar púlkur á ferðaskíðum upp Öræfajökul. Þótt Guðni hefði nær enga reynslu af jöklaferðum reyndist þessi ferð honum tiltölulega auð- veld. Hann var í góðu líkamlegu formi en það var þó andlegur styrk- ur og mikil jákvæðni sem tryggðu að hópurinn náði takmarki sínu. Á næturstað gekk forsetinn í öll verk eins og aðrir leiðangursmenn. Á leiðinni heim náðum við líka að klífa Vestari Hnapp sem er fáfarinn snarbrattur tindur. Veðrið þessa daga var einstakt en það var félags- skapurinn sem stóð upp úr. Sérstak- lega þótti mér gaman að sjá Guðna takast af áræðni og jákvæðni á við krefjandi og framandi aðstæður. Slíka eiginleika viljum við sjá hjá forseta Íslands og ekki spillir fyrir hversu heilsteyptur Guðni er og að hann láti velferð allra Íslendinga sig varða. Ef við viljum ef la slík gildi mætum við á kjörstað og greiðum Guðna atkvæði okkar. Fjallhress forseti Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þetta var í gamla daga, en ég get ímyndað mér það út frá heim- ildum og sögum. Mér finnst eins og í gamla daga hafi svokallaðir sterkir leiðtogar verið einhvers konar per- sónuleikar sem fólk leit mikið upp til og dýrkaði jafnvel. Orð þeirra voru lögð á minnið. Fólk sat þögult við viðtækin, þaggaði niður í ung- viðinu, og hlýddi píreygt á ræður þeirra á örlagatímum. Járnvilji. Stáltaugar. Þannig orð eru talin lýsa svona leiðtogum. Hugsanlegt er að á ferð mannskepnunnar frá trúar- brögðum til meira trúleysis, einkum á Vesturlöndum, hafi þessir leiðtogar á upphafsáratugum lýðræðisins fyllt í tómið sem guðirnir skildu eftir. Þeir voru goðum líkir. Mér finnst ég greina í samtíma mínum stórbrotna breytingu á því hvernig almennt er talið að leiðtogar eigi að haga sér. Hinn sterki leiðtogi upp á gamla móðinn, í þeim löndum þar sem hann yfirleitt spriklar enn, er almennt til leiðinda og óþurftar nú til dags, sýnist mér. Áður fyrr var ekkert Google og engin Wikipedia. Bændur stofn- uðu jú bókaklúbba og fengu send nýjustu ritin, eins og norður í Þing- eyjarsýslum á 19. öld, en almennt má þó óhikað segja að aðgengi að vitneskju var mun minna áður fyrr. Í slíkum jarðvegi uxu alltumlykjandi leiðtogar mun betur en nú. Þeir gátu sagt fólki hvað væri að frétta, hvernig hlutirnir voru og í hvað stefndi. Jafn- vel logið því að mestu. Núna vita f lestir f lest. Orð leiðtoganna eru gúggluð í mauk. Fólk er núna upp til hópa leiðtogar í eigin lífi. Þjóð eins og Ísland er uppfull af leiðtogum. Af fólki sem veit töluvert og hefur á grunni þekkingar sinnar myndað sér lífsspeki og er síðan á grunni lífs- speki sinnar að stefna eitthvert í lífi sínu og hefur enga þörf fyrir það að hlusta á einhverja menn segja sér óumbeðið hvernig hlutirnir eru. Enn er þó þörf fyrir leiðtoga. Þörf- in er hins vegar öðruvísi. Nú á tímum er meira verið að tala um, held ég, að það þurfi eitthvert áreiðanlegt fólk til að sjá um sameignina. Mjög fáir nenna að sjá um sameignina en flestir átta sig á því að hún er mjög mikilvæg. Sem betur fer er til prýði- legt fólk sem er reiðubúið að gefa sig fram í þessi störf. Þetta fólk má mjög gjarnan hafa djúpa sýn og ólíka. Almennt held ég hins vegar að mjög fáir nenni að hafa í sameigninni eitthvert egó sem brestur í predik- anir fyrirvaralaust, þykist vita allt eða gerir skýlausar kröfur um holl- ustu við sig eða lítur svo á að nostrið við sameignina sé einhvers konar drottnandi hásæti í þúsund ára höll valdsins. Sá tími er liðinn. Mér finnst þetta góð þróun og ég vona að hún haldi áfram án teljandi bakslaga. Stjórnmál eiga að snúast um þjónandi leiðsögn. Fólk í leið- togasæti á að veljast til þeirra starfa af jafningjum, vegna þess að því er treyst vegna mannkosta sinna. Mörg gæfurík dæmi úr mann- kynssögunni höfum við vissulega um slíkt, sem hafa orðið farsælum leiðtogum nútímans innblástur. COVID-krísan hefur dregið fram kosti hinna þjónandi jafningjaleið- toga um allar jarðir. Víða á þessi breyting á leiðtogahugmyndinni í átt til meiri hlustunar, hógværðar og yfirvegunar þó enn undir högg að sækja. Hugmyndin um hinn fúl- lynda og yfirþyrmandi stálleiðtoga engist um í áhugaverðum dauða- kippum. Þegar hætta steðjar að hafa slíkir trumpar ekki reynst ráða við nokkurn skapaðan hlut. Útblásið egóið gerir þeim ókleift að hlýða á ráð annarra eða gefa skynseminni á einhvern hátt sjens. Auðmýkt, samhygð og virðing fyrir öðrum. Traust til þekkingar og vísinda. Húmor fyrir sjálfum sér. Þekking á sögunni. Víðsýni. Hroka- leysi. Einlægni. Eins og líklega annar hver maður, þá hef ég kannast við Guðna Th. Jóhannesson um langt skeið. Hann var nágranni minn í bernsku. Eldri bróðir vinar míns. Mér hefur alltaf fundist hann frá- bær náungi. Mér datt aldrei í hug að hann yrði forseti Íslands. Ekki frekar en honum sjálfum. En það er einmitt þetta sem ég á við. Tímarnir eru að breytast og mikið er það gott að við Íslendingar skulum vera komin svona langt í að átta okkur á þessu, sem ég held við höfum gert. Kannski fyrir löngu. Það er svo miklu betra fyrir alla að í leið- togastól veljist góð, yfirveguð mann- eskja, eins og Guðni, sem hægt er að treysta – þótt hann noti buff á höfuð- ið – frekar en einhver hrútþrjóskur forystusauður með ranghugmyndir eða loddari. Annað eins getur gerst. Leiðtogar Guðmundur Steingrímsson Í DAG Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir Inga Þórsdóttir prófessor og forseti Heil- brigðisvísinda- sviðs Háskóla Íslands Þetta kunnuglega hlýja við- mót og fullkomna tilgerðar- leysi er það sem auglýsir forsetann einna best. Ef við viljum efla slík gildi mætum við á kjörstað og greiðum Guðna atkvæði okkar. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9F Ö S T U D A G U R 2 6 . J Ú N Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.