Fréttablaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 27
HUGMYNDIN MEÐ
ÞESSU ER AÐ VEITA
UMRÆDDUM HÓPUM AUKINN
SÝNILEIKA OG VIÐ VONUMST
TIL AÐ ÞEIR TAKI ÞESSU VEL.
Borg Brugghús hefur verið stoltur styrktaraðili Hinsegin daga undanfarin ár og framleitt hinsegin bjórinn Ástrík sem notið hefur
mikilla vinsælda og almennt verið
vel tekið í senunni eftir því sem við
höfum heyrt,“ segir Árni Theodór
Long bruggmeistari, sem hefur
bætt nýjum tón, Kysstu Mig Nr.T25,
í áfengt regnbogalitrófið.
„Til að dýpka þekkingu okkar
á hinsegin málum og sem tilraun
til að ýta undir frekari og meiri
umræðu um málefni hinsegin
fólks, ákváðum við að gefa nú einn
ig út nýjan hinsegin bjór á flöskum,“
heldur Árni áfram og bætir við að
Kysstu Mig sé frískandi og léttsýrt
öl „með gommu af kirsuberjum og
dass af vanillu“.
Áfeng fánaborg
Kysstu Mig streymir fram í öllum
regnbogans litum, svo ekki sé
fastar að orði kveðið, en hann fæst
í tíu mismunandi f löskum. „Vegna
þess að við vildum líka halda áfram
með hönnunarpælinguna á bak við
Ástrík teflum við nú fram fánum tíu
hinsegin hópa sem eiga sér fána sem
kannski ekki eru jafn þekktir meðal
almennings og regnbogafáninn sem
prýðir Ástríksdósina,“ segir Árni en
fánar kynsegin, tvíkynhneigðra,
intersex, bear, varalitalesbía, pan
kynhneigðra, fjölkynhneigðra, ein
kynhneigðra, trans og BDSM eru á
flöskunum.
„Við fórum þá leið að prenta þá
fána sem þessir tíu hópar kenna sig
við og smella þeim öllum á f lösk
urnar sem raðast svo handahófs
kennt í kippur og kassa. Þannig eru
meiri líkur en minni á að allir tíu
fánarnir séu í hverjum kassa. En þó
ekki öruggt. Hugmyndin með þessu
er að veita umræddum hópum auk
inn sýnileika og við vonumst til að
þeir taki þessu vel,“ segir Árni.
Sterkur leikur
„Við ákváðum bara að demba okkur
í þetta. Ég vissi ekki nákvæm
lega hvað ég væri að fara út í en
svo var þetta bara mjög skemmti
legt. Skemmtilegt að vekja athygli
á þessu og vera með,“ segir Katrín
Björk Kristjánsdóttir, sem svaraði
kalli meðvitaðra bruggmeistaranna
um að hjá þeim gæti skort á dýpri
skilning á málefnum og tilfinning
unum alls konar hinsegin fólks.
Katrín er í hópnum Hinsegin
Ladies Nights sem hefur það yfir
lýsta markmið að „koma saman
konum og kynsegin einstaklingum
sem heillast af konum á öllum aldri,
bi, pan, lesbíur, forvitnar og allt þar
á milli og utan“, eins og það er orðað.
Þangað barst erindi brugghúss
ins og „ég og kærastan mín, Guðný,
vorum „mega“ til,“ segir Katrín um
einfalda ástæðu þess að hún og
Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir tékk
uðu saman á kossinum merktum
T125.
Katrín segir það klárlega sterkan
leik hjá Borg að tef la fram f lösk
unum tíu. „Sérstaklega að setja
þetta á markaðinn í svona áberandi
umhverfi. Ég held að þetta opni
augu margra og að fólk vilji kynna
sér þetta betur þegar það sér þetta
svona,“ segir Katrín sem hefur lagt
blessun sína yfir bæði flöskurnar og
innihaldið.
Í lagi að spyrja
„Það er til alls konar. Það er mikil
vægt að vita það og ég held að þetta
geti opnað umræður í partíum. Það
er geggjað. Fólk kemur saman og
fær sér mismunandi fána,“ segir
Katrín og bætir við að hún hafi
fullan skilning á að fólk geti verið
feimið andspænis þeim litskrúð
uga fjölbreytileika tilverunnar sem
flöskurnar endurspegla.
„Ég held að málið sé bara að
spyrja fólk hvernig það vill skil
greina sig og opna þá umræðu
miklu meira. Fólk á ekkert að vera
feimið við að spyrja hvaða fornafn
fólk vilji nota eða hvernig það skil
greinir sig. Ég held það þurfi að
opna meira umræðuna um að það
sé bara í lagi að spyrja og fræðast,“
segir Katrín og efast ekki um að
ólíkar f löskurnar geti virkað sem
lóð á vogarskálarnar.
Spes en góður
„Við erum hrikalega ánægð með
niðurstöðuna að næstum öllu
leyti. En okkur tókst sem sagt að
klúðra litatónum í einum fánanum
í fyrstu framleiðslu og því ástæða
til að biðjast strax afsökunar á því,“
segir Árni.
„Þetta er fáni tvíkynhneigðra,
eða bisexual, og við vonumst til
að sá hópur fyrirgefi okkur þessi
mistök, sem við lofum að leiðrétta
fyrir næstu prentun.“
Katrín telur víst að afsökunar
beiðnin verði tekin gild en áréttar
mikilvægi þess að biðjast afsök
unar á mistökum sem þessum.
„En þetta eru bara mistök og fólk
er að læra,“ segir Katrín sem sjálf
er hæstánægð með f löskurnar og
ekki síður innihaldið.
„Við fengum að smakka og feng
um að taka kippu með heim. Við
erum með árlegan Pridebrunch
hjá okkur þannig að við ætlum
bara að nota bjórinn í það í ágúst.
Bjóða upp á þetta þar. Hann er
ótrúlega góður.
Ég er mjög hrifin af honum.
Hann er spes en hann er mjög
góður,“ segir Katrín og hvetur fólk,
í anda Kysstu Mig, til að „vera bara
dugleg að fræðast og vera opin fyrir
alls konar og fagna fjölbreytileik
anum.“
toti@frettabladid.is
Kossaflens í öllum regnbogans litum
Þótt Hinsegin dagar renni ekki upp fyrr en í ágúst er hinsegin bjórinn Kysstu mig byrjaður að streyma og til þess
að fagna fjölbreytileikanum sem aldrei fyrr sendir Borg brugghús bjórinn frá sér undir fánum tíu hinsegin hópa.
Bruggmeistararnir Halldór Darri Guðjónsson og Árni Theodór Long skála í Kysstu Mig að baki Katrínu Björk og Guðnýju Ljósbrá
Flöskurnar tíu skarta fánum sem hafa sést sjaldnar en regnbogafáninn sem allir þekkja. Þetta eru fánar kynsegin (non-binary), tvíkynhneigðra (bisexual),
intersex, bear, varalitalesbía (lipstick lesbian), pankynhneigðra (pansexual), fjölkynhneigðra (polysexual), einkynhneigðra (asexual), trans og BDSM.
2 6 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ