Íþróttablaðið - 01.12.1993, Síða 6
III- 11
# §í
.
Texti: Þorgrímur Þráinsson
Myndir: Kristján Einarsson
í líkamsræktarstöðinni GYM 80
starfa tveir fílefldir og fagurvöðvaðir
áhugamenn um líkams- og heilsu-
rækt. Þeir eru EINKAÞJÁLFARAR og
þurfa ekki marga mánuði til þess að
breyta hálfbognum og væskislegum
skrifstofumanni í bísperrtann og
brjóstgóðan einstakling sem geislar
af sjálfsöryggi. Það er staðreynd að
flestir vilja vera stæltir og vel slípað-
ir en fæstir nenna að leggja það á sig
sem þarf til þess að öðlast harðan
kropp. Að auki þarf sjálfsaga og vissa
seiglu til þess að komast yfir erfið-
asta hjallann en eftir fyrstu vikurnar
kemur árangurinn í Ijós.
Einkaþjálfararnir heita JÓN
GUÐMUNDSSON og GUÐGEIR
JÓNSSON en þeir fylgja þeim sem
þeir þjálfa í gegnum allaræfingarnar,
kenna réttu tökin og sjá til þess að
menn haldi sér við efnið. Rétt matar-
æði er einna mikilvægast í þjálfun og
til þess að ná árangri verður að forð-
ast ákveðna fæðu. Sulta, smjör og
sósur eiga ekki upp pallborðið hjá
þeim sem vilja hafa línurnar í lagi.
Einkaþjálfararnir eru með þennan
þátt sömuleiðis á hreinu.
„Aðilar f einkaþjálfun námun betri
árangri á skemmri tíma en ella. Við
vinnum mjög markvisst, nýtum tím-
ann til fullnustu og sjáum til þess að
menn leggi sig fram," segja Jón og
Guðgeir í Gym 80.
— Hversu lengi væruð þið að
bæta 10 kg af vöðvum á einstakling
sem hefði ágæta líkamsbyggingu en
er afskaplega vöðvalítill?
„Það fer allt eftir því hversu vel
hann tekur við sér og hversu fljótir
við erum að átta okkur á honum.
Sömuleiðis ylti það á þvf hvort hann
tæki prótín, kolvetni og vítamín en
það myndi flýta fyrir því að hann
þyngdist og bætti á sig vöðvamassa."
— Skiptir miklu máli fyrir íþrótta-
menn að taka þessi aukaefni?
„Já, það skiptir miklu máli. íþrótta-
maður undir miklu álagi þarf að
borða mjög holla og góða fæðu á
réttum tíma og vítamín, steinefni og
ammínósýrurað auki. Menn geta lagt
meira á sig neyti þeir þessara auka-
efna og þeir ná sér fyrr eftir erfiðar
æfingar. Margir íslenskir körfuþolta-
menn nýta sér þá þekkingu sem við
búum yfir hvað varðar mataræði,
6