Íþróttablaðið - 01.12.1993, Page 57
Slökun og einbeitin í karatetíma.
lega kallast karateþjálfarar. Auk okk-
ar er ég að tala um Karatefélag
Reykjavíkurog höfum við vinninginn
ef hægt er að tala um slíkt í því sam-
bandi. Við tókum strax þá stefnu að
starfrækja félagið af festu og fag-
mennsku og það hefur sannarlega
skilað sér. Hátt á þriðja hundrað
manns stunda nú karate hjá okkur og
er það svipaður fjöldi og í öðrum fé-
lögum á landinu samanlagt."
— Hver er reynslan af þeim er-
lendu þjálfurum sem hafa starfað
hér á landi?
„Staðreyndin er sú að iðkendur hjá
okkur vilja fremur íslenskan þjálfara
en erlendan og ástæða þess er sú að
ísak Jónsson, sem er að mínu mati
besti þjálfari landsins, er hann tvö-
faldur íslandsmeistari í tæknilegu
hlið karate. Við höfum verið með er-
lendan þjálfara síðan 1985 sem öll-
um líkar vel við en ísak hefur náð að
heilla krakkana upp úr skónum."
— Hvernig hefur ykkur vegnað á
mótum?
„Mjög vel því við eigum flesta sig-
urvegara á öllum mótum samanlagt.
Á síðasta íslandsmóti í kumite (frjálsri
aðferð) töpuðum við 2:3 gegn Kar-
atefélagi Reykjavíkur í sveit fullorð-
inna en það var í fyrsta skipti sem við
náðum sigrum gegn þeim í þeim
flokki. í fyrra töpuðum við 0:5 í sama
flokki og erum við því að sækja í
okkur veðrið. í unglingaflokkunum
höfum við yfirburði og innan fárra
ára verðum við allsráðandi á öllum
mótum. Helmingur landsliðsmanna í
kumite er í Þórshamri og við eigum
alla landsliðsmennina í kata."
— Getur fólk byrjað í karate hve-
nær sem er?
„Þeir, sem hafa áhuga á að byrja í
karate, fá sérkennslu í upphafi ogeftir
nokkrar æfingar geta þeir farið í
gegnum æfingar með öðrum sem eru
aðeins lengra komnir. Við tökum vel
á móti öllum.
Þórshamar er félag sem eflist með
ári hverju og við hugum að framtíð-
inni. Því betur sem okkur gengur
þeim mun háleitari markmið setjum
við okkur. Við viljum stöðugt fá fleira
fólk til æfinga og viljum stöðugt gera
betur á mótum. Svona félag verður
að reka sem fyrirtæki á félagslegum
grunni."
Fatndður sem
Skiðasamband
Islands velur fyrir
sig og sína,
ár eftir ár!
&
dubin