Fréttablaðið - 24.07.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 6 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0
Hvers manns
straumur
Volkswagen e-Golf
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · hekla.is/volkswagensalur
Tilboðsverð
e-Golf Comfort
4.490.000 kr.
100%
rafmagns
bíll
VIÐSKIPTI Seðlabankinn mun
beita sér fyrir því að sjálfstæði
stjórnarmanna lífeyrissjóða verði
tryggt til frambúðar og eyða öllum
grunsemdum um skuggastjórnun.
Þetta segir Ásgeir Jónsson seðla-
bankastjóri í samtali við Frétta-
blaðið.
„Að mínu áliti þarf að stíga miklu
fastar til jarðar í því að tryggja sjálf-
stæði sjóðanna. Ég tel að regluum-
hverfi þeirra sé alltof veikt og að
Fjármálaeftirlitið þurfi öf lugri
heimildir til inngripa,“ segir Ásgeir.
Tilmæli stjórnar VR til stjórnar-
manna í Lífeyrissjóði verzlunar-
manna um sniðgöngu á væntanlegu
hlutafjárútboði Icelandair séu þörf
áminning um mikilvægi þess að
þétta varnir í kringum sjálfstæða
ákvarðanatöku innan lífeyrissjóða.
„Í gegnum tíðina hafa ýmsir
utanaðkomandi aðilar reynt að
hafa áhrif á fjárfestingar lífeyris-
sjóðanna. Þetta er ekki nýtt vanda-
mál og það mun dúkka upp aftur og
aftur,“ segir Ásgeir. Því sé mikilvægt
að tryggja sjálfstæði stjórnarmanna
til frambúðar.
Fulltrúaráð VR afturkallaði
umboð stjórnarmanna VR í stjórn
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sum-
arið 2019 og setti nýja stjórnarmenn
til bráðabirgða. Á þeim tíma beindi
Fjármálaeftirlitið þeim tilmælum
til Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
að endurskoða samþykktir sjóðsins
og voru öðrum lífeyrissjóðum send
sömu tilmæli.
Aðspurður segist Ásgeir vilja
fylgja þessum tilmælum eftir með
afdráttarlausum hætti og krefjast
svara um það hvernig sjóðirnir
ætli að koma í veg fyrir að umboð
stjórnarmanna geti verið aftur-
kallað fyrirvaralaust.
„Hvernig getur stjórnarmaður
verið sjálfstæður þegar hægt er að
skipta honum út hvenær sem er –
vegna þess að tilnefningaraðilanum
líkar ekki við ákvarðanir hans?“
spyr Ásgeir. „Það er óþolandi ef
sjóðsfélagar, sem eru að safna fyrir
ævikvöldi sínu, geta ekki gengið að
því vísu að fjárfestingarákvarðanir
séu teknar í samræmi við hagsmuni
þeirra.“
Auk þess mun Seðlabankinn
ræða við fjármála- og efnahags-
ráðuneytið og aðrar viðeigandi
stofnanir um að fjármálaeftirlit
bankans fái frekari heimildir til
inngripa. – þfh / sjá síðu 6
Þétta varnir í kringum sjóðina
Seðlabankastjóri segir að bankinn muni beita sér fyrir því að tryggja sjálfstæði stjórna lífeyrissjóðanna.
Kallar eftir öflugra regluverki og frekari heimildum til inngripa. Reynslan af skuggastjórn sé mjög slæm.
Ég tel að regluum-
hverfi þeirra sé
alltof veikt og að fjármála-
eftirlitið þurfi öflugri
heimildir til
inngripa.
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri
VIÐSKIPTI Sala á neftóbaki hefur
dregist verulega saman það sem af
er ári en á tímabilinu janúar til júní
seldust 13.991 kíló. Það er um 36 pró-
senta samdráttur milli ára. Þetta
kemur fram í svari ÁTVR við fyrir-
spurn Fréttablaðsins. Þetta er mikil
breyting en salan jókst um nokkur
prósent milli áranna 2018 og 2019.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoð-
arforstjóri ÁTVR, segir töluverðan
hagnað vera af sölu tóbaks hjá ÁTVR
á síðustu árum en neftóbakið sé hins
vegar ekki stór hluti af heildinni.
Spurð um hvað valdi þessum sam-
drætti segir Sigrún að nikótínpúð-
arnir sem nú eru í sölu hafi áhrif á
sölu neftóbaks. „Við höfum líka selt í
Fríhöfnina og hún hefur alveg dottið
út núna. En það má alveg giska á að
púðarnir hafi veruleg áhrif. Við
sáum það þegar þeir komu á markað-
inn að það var áberandi minnkun,“
segir Sigrún. – mhj
Neftóbakssala
hrynur milli ára
Ýmislegt hefur farið fram á Laugavegi í gegnum tíðina en líklega var það í fyrsta sinn í gær sem leikið var á f lygil undir berum himni á miðri götunni. Högni Egilsson tónlistarmaður f lutti
þar tónlist og gladdi geð tónleikagesta sem voru fjölmargir. Tónleikarnir eru hluti af svonefndum Uppsprettuviðburðum Vonarstrætis og Vínstúkunnar Tíu sopa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI