Fréttablaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Þetta verður bara ég á gítar að spila nýja og frumsamda tónlist,“ segir tónskáldið og gít-arleikarinn Bjarni Már Ingólfsson, sem f lytur
tónleika í Mengi í kvöld.
Tónleikarnir eru hluti af List-
hópum Hins hússins þar sem
Bjarni samdi fimm verk sem hann
mun flytja í kvöld. „Ég hef verið að
semja hjá Hinu húsinu í sumar en
það verður líka annað efni sem er
ekki jafn glænýtt, en líka frá sjálf-
um mér.“
Í tónlist Bjarna kennir ýmissa
grasa en hún er í grunninn ansi
djössuð. „Þetta verður úr alls konar
áttum. Þótt þetta sé í grunninn ein-
hvers konar nútímadjass þá verður
líka eitthvað ambient og eitthvað
um spuna.“
Frá Smørum til New York
Bjarni er fæddur og uppalinn í
bænum Smørum í Danmörku en
flutti níu ára til Egilsstaða þar sem
tónlistarneistinn kviknaði fyrst.
„Ég byrjaði að læra á gítar tíu ára
og kynntist mínum fyrstu rokk-
plötum frá pabba og eldri bróður,“
segir Bjarni, sem var meðal annars
alinn upp á Guns N‘Roses og Deep
Purple. „Ég pikkaði upp alls konar
lög með þeim og spilaði daginn út
og inn.“
Það var svo í Tónskóla Eddu Borg
þar sem djassinn hreif Bjarna fyrst.
„Ég lærði hjá nafna mínum, Bjarna
Sveinbjörnssyni, sem kynnti mig
fyrir alls konar djass-stöndurum.
Það var einna helst spuninn sem
heillaði mig hvað mest.“
Bjarni útskrifaðist síðar með
burtfararpróf úr FÍH vorið 2018 þar
sem hann lærði hjá Ásgeiri Ásgeirs-
syni. „Þetta voru ótrúlega mótandi
ár þar sem ég kynntist nánast öllu
því fólki sem ég vinn og spila með
í dag.“
Eftir að Bjarni lauk námi við FÍH
var förinni haldið til New York þar
sem hann nam við skólann New
School. „Þar lærði ég meðal annars
hjá Steve Cardenas og Lage Lund,
sem eru tveir af mínum uppáhalds
gítarleikurum.“
Í dag býr Bjarni í Svíþjóð og hefur
lokið fyrsta ári bachelorsnáms síns í
Konunglega tónlistarháskólanum í
Stokkhólmi. Þegar kófið skall á flúði
Bjarni til Íslands en stefnir á að snúa
aftur til Svíþjóðar í lok ágúst.
Djassinn og klassíkin
Aðspurður um innblásturinn að
baki tónlistinni segir Bjarni að
hann komi úr ýmsum áttum. „Mest
af þessu er líklega ómeðvitað, frá
tónlistinni sem ég er að hlusta á
hverju sinni,“ segir hann. „Ég hlusta
mestmegnis á djass en eflaust er ein-
hver klassík þarna að baki líka.“
Meðal áhrifavalda Bjarna eru
Bill Frissell og Kurt Rosenwinkel,
en Bjarni segist líka sækja mikinn
innblástur til gamla tónlistarkenn-
ara síns, Skúla Sverrissonar.
Að tónleikunum loknum segist
Bjarni ætla að taka sér almennilegt
sumarfrí og gíra sig svo upp fyrir
veturinn. „Það er ekkert skipulagt
fram undan annað en að halda
áfram að spila og njóta lífsins.“
arnartomas@frettabladid.is
Innblásinn úr ýmsum
ómeðvituðum áttum
Tónlistarmaðurinn Bjarni Már Ingólfsson spilar í Mengi í kvöld
og ætlar þar að flytja nýja og frumsamda djasstónlist. Bjarni hefur
komið víða við og dregur innblástur sinn úr ýmsum ólíkum áttum.
ÞAÐ VAR EINNA
HELST SPUNINN SEM
HEILLAÐI MIG HVAÐ MEST
– MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019
Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar blaðið er
opnað!
Íslendingar lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali.*
Kannaðu dreiileiðir og verð í
síma 550 5050
eða sendu tölvupóst á
orn@frettabladid.is.
Útvegum einnig hagstæð
verð í prentun.
93.000
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Bjarni Már Ingólfsson pikkaði til dæmis upp lög með Deep Purple og spilaði dagana langa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð