Fréttablaðið - 24.07.2020, Blaðsíða 11
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Ég kann ekki dæmin í smáatriðum, en mig rámar í allnokkur tilfelli þess að
útlendingar hafi komið okkur
eyjarskeggjum í uppnám í gegnum
tíðina með því að fara ófögrum
orðum um Ísland og Íslendinga.
Skýra mynd hef ég til dæmis í koll-
inum af poppstjörnunni Robbie
Williams yfirgefa landið við Leifs-
stöð með löngutöng á lofti og sví-
virðingar á vörum, en sá var ekki
par hrifinn af móttökum hér þegar
hann kom hingað og hélt tónleika
um árið. Mikil umræða skapaðist
um það hvað amaði að þessum
manni og hvers lags bjöllusauður
hann væri. Hann skyldi ekki teljast
til svokallaðra Íslandsvina, sem er
klúbbur sem við höfum stofnað
um alla fræga útlendinga sem
hingað koma í heimsókn og finnst
landið okkar frábært, að talið er. Ef
minnsti grunur leikur á að frægum
útlendingi líki ekki landið, fær
hann auðvitað ekki inngöngu.
Mér finnst hún almennt hafa
minnkað þessi viðkvæmni okkar
gagnvart því hvað öðrum finnst
um landið okkar og íbúa þess,
enda Íslendingar almennt orðnir
meiri heimsborgarar – allir alltaf á
Tene – og ferðamannastraumurinn
hingað til lands orðinn það mikill
í venjulegu árferði að ómögulegt
er að kippa sér upp við einstaka
óánægjuraddir. Þó er viðbúið að
skjálfta gæti ef útlendingur póstar
til dæmis óánægju með verð á
rúnstykkjum í íslenskum vega-
sjoppum. Við erum ætíð töluvert á
varðbergi gagnvart áliti annarra.
Goggunarröð viðkvæmninnar
Meginþorri fólks er auðvitað í
ágætu jafnvægi og kippir sér ekki
upp við samfélagsmiðlafærslur, en
það breytir ekki hinu að ákveðin
stemning er jú til staðar. Mér
hefur alltaf fundist ég lifa, sem
höfuðborgarbúi, í miðjunni á
goggunarröð: Landsbyggð-Reykja-
vík-heimsbyggðin. Landsbyggðin
er viðkvæm gagnvart Reykjavík.
Reykjavík, og restin af Íslandi, er
viðkvæm gagnvart heimsbyggð-
inni. Ísland er í raun Kópasker.
Við erum, Ísland allt, í samhengi
heimsins afskekkt sérviskuleg
byggð á hjara veraldar. Ef leik-
hópur kæmi hingað frá Danmörku
og dönsk leikkona myndi pósta á
Instagram að Ísland væri ömurlegt
land og að fólk skyldi ekki koma
hingað því hér væri ekkert nema
skítaveður og örfáar hræður í roki,
er ég hræddur um að hún myndi
uppskera töluverð leiðindi. Líklega
hótanir.
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
leikkona telst, vegna færslu á Insta-
gr am, ekki vera vinur Kópaskers
eða Raufarhafnar að sinni. Hún
fór ófögrum orðum um þessi þorp
og uppskar fyrir vikið botnlausan
skít. Hún var að djóka, sagði hún,
og baðst afsökunar, en fólk missti
sig samt. Það þarf ekki að eyða
mörgum orðum í það að fólk sem
sendi henni morð- og nauðgunar-
hótanir má gjarnan fara að huga
að sálfræðimeðhöndlun. Svona
munnsöfnuður og ofbeldishneigð
er auðvitað ekki í lagi. Íbúar, komi
hótanirnar þaðan, verða að passa
sig að sanna ekki færsluna.
Hörkuleg umræða
Viðkvæmni gætir sem sagt. Orð
fólks í kæruleysi hitta aðra inn
að kviku. Spurningin blasir við:
Hverju sætir? Af hverju er þessi
Ísland er Kópasker
ofurviðkvæmni til staðar? Leik-
kona lætur orð flakka á ferð í
appelsínugulri viðvörun. Er það
ekki bara hennar mál? Má ekki
horfa í gegnum fingur sér með
færslur fólks? Hugsa kannski, að
þetta hljóti að vera djók? Þurfa
íbúar Kópaskers, og Raufarhafnar
ef út það er farið, staðfestingu Þór-
dísar Bjarkar á því að þessir staðir
séu æðislegir? Þurfum við Íslend-
ingar staðfestingu Robbie Williams
eða annarra útlendinga á því að hér
sé fagurt? Vitum við það ekki sjálf?
Einnig má velta fyrir sér: Má
einhverjum vera illa við Kópasker?
Og í samhengi þjóðarinnar allrar:
Má fólki líka illa við Ísland? Má
bregða löngutöng á loft við brottför
á Leifsstöð?
Vitaskuld. Þótt alltaf sé betra að
fólk hafi hemil á dónaskap og sýni
lágmarkskurteisi, þá verða skiptar
skoðanir og stundum harkaleg
hreinskilni alltaf fylgifiskar frjálsra
samfélaga. Galdurinn er að læra að
lifa með því. Listafólk og stjórn-
málafólk, svo dæmi séu tekin, býr
við þetta harðræði umræðunnar
á degi hverjum. Kannski finnst
leikkonu og meðlim í Reykjavíkur-
dætrum ekkert tiltökumál að birta
palladóma í djóki um heilu þorpin.
Allt fólk sem vinnur að list er
undirselt dómum, oft harðneskju-
legu niðurrifi. Skotveiðileyfið er
algjört. Listafólk setur opið hjarta
sitt á svið, jafnvel til þess eins að
uppskera fýlulegan hundshaus
gagnrýnanda. Ég lagði allt í mína
fyrstu skáldsögu fyrir margt löngu
og sat með öran hjartslátt fyrir
framan sjónvarpið þegar fyrsti
dómurinn kom. Hann var svona:
„Það er táfýla af þessu.“ Morðhót-
anir sendi ég engar. Í stjórnmálum
var svo harkan engu minni. Kaldar
eru þar kveðjurnar.
Dómharka annarra og ónær-
gætni getur vissulega tekið á, en
ég held að lykilatriðið hljóti alltaf
að vera það, að maður reyni að
leiða mest af því hjá sér, en leiti
leiðsagnar í lífinu annars staðar:
Til þeirra sem maður treystir og til
eigin sannfæringar.
Kringlan · Glerártorg · kunigund.is
sérverslun með vandaðar gjafavörur
70% AFSLÁTTUR
allt að
Sjáðu öll
tilboðin á
kunigund.is
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F Ö S T U D A G U R 2 4 . J Ú L Í 2 0 2 0