Fréttablaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 37
myndskreyting Óskað er eftir tillögu að myndskreytingu fyrir dósina. Hún þarf að ganga upp á 90 x 90 mm flöt á milli Bríó vörumerkisins til vinstri og upplýsingatextans til hægri. Hægt er að nálgast sniðmát og upplýsingar á vef Borgar Brugghúss, borgbrugghus.is eða með því að senda póst á borgbrugghus@borgbrugghus.is. skil á tillögum Tillögur skal senda á borgbrugghus@borg- brugghus.is mánudaginn 17. ágúst í síðasta lagi, þegar sól er í hásuðri. dómnefnd og niðurstöður Verðlaunatillögur verða kynntar á vef Borgar Brugghúss í dögun föstudaginn 31. ágúst. Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum. verðlaun 407.413 íslenskar krónur. bríó áfengislausan vantar einkennismynd samkeppni á íslenska efnahagssvæðinu viltu gera bríó-mynd? borgbrugghus.is borgbrugghus.is Bríó Wheat Ale er áfengislaus bjór frá Borg Brugghúsi, sérlega ferskur og bragðgóður með Mosaic, Citra og Hallertauer Mittelfrüh humlum. Með tilkomu Bríó áfengislauss eru ákveðin tímamót í framleiðslu áfengissnauðra bjóra á Íslandi, en Bríó er sá fyrsti sem hægt er að kalla áfengislausan (e. alcohol free) þar sem hann inniheldur minna en 0,5% alkóhól af rúmmáli. Bjórinn er innblásinn af Bríó hefðinni sem fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir. Bríó var fyrsti bjórinn frá Borg Brugghúsi, ruddi brautina fyrir byltingu handverksbjóra á Íslandi og vann mörg af stærstu og eftirsóttustu bjórverðlaunum heims. Það er því ljóst að Bríó áfengislaus verður að líta vel út. Þar sem haldin var samkeppni á sínum tíma um myndskreytingu dósarinnar fyrir Bríó er vel við hæfi að endurtaka leikinn. Ertu með hugmynd?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.