Fréttablaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 6 4 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 8 . J Ú L Í 2 0 2 0 50% 25% ✿ Afstaða til Borgarlínu Mjög eða frekar hlynnt(ur) Hvorki né Mjög eða frekar andvíg(ur) Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú Borgarlínunni? n 27.7.2020 n 14.10.2019 ú t s a l a 27.07 – 16.08 sjáðu öll tilboðin á elko.is SAMGÖNGUMÁL Tæpur helmingur þeirra sem taka afstöðu er hlynntur Borgarlínu, en þrír af hverjum tíu eru andvígir. Þetta sýna niður- stöður nýrrar könnunar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið. „Í stuttu máli er ég bara mjög ánægður með þennan sterka stuðn- ing. Þetta er mikilvægt veganesti inn í næsta tímabil Borgarlínunnar sem er framkvæmdatímabil,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um niðurstöðurnar. Stuðningur við Borgarlínu dregst aðeins saman frá því í október á síð- asta ári þegar einnig var spurt um viðhorf til verkefnisins. Þá var rétt rúmur helmingur hlynntur Borgar- línu en um fjórðungur andvígur. Konur eru hlynntari Borgarlínu en karlar og stuðningurinn er meiri meðal yngra fólks en eldra. Þá er mun meiri stuðningur hjá þeim sem hafa lokið háskólanámi en öðrum. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru einnig mun hlynntari Borgarlínu en íbúar á landsbyggðinni. „Það kemur kannski ekki á óvart að stuðningurinn sé sterkastur þar sem framkvæmdirnar varða fólk mest og fyrstu áfangarnir eru,“ segir Dagur. Ef horft er til einstakra sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu reynist stuðningur við Borgarlínu mestur meðal Reykvíkinga. Rúm 57 prósent þeirra eru hlynnt Borgar- línu en tæp 29 prósent andvíg. Næstmestur stuðningur er í Kópavogi en þar er rétt rúmur helmingur hlynntur en rúmur fimmtungur andvígur. Í Hafnar- firði er tæpur helmingur hlynntur og tæpur fjórðungur andvígur. Í Mosfellsbæ er u skoðanir skiptari, en rúm 38 prósent þar eru hlynnt Borgarlínu og tæp 35 prósent andvíg. Tæpur þriðjungur Garðbæinga er hlynntur Borgar- línu en tæpur helmingur andvígur. Á Seltjarnarnesi eru 39 prósent hlynnt en 61 prósent andvígt. Könnunin sem send var á könn- unarhóp Zenter var framkvæmd 16. til 27. júlí. Í úrtaki voru 2.300 manns 18 ára og eldri en svarhlut- fall var rúmt 61 prósent. Gögnin voru greind eftir kyni, aldri og búsetu. – sar Ánægður með stuðninginn við Borgarlínu Töluvert fleiri eru hlynntir Borgarlínu en andvígir. Þó dregur aðeins úr stuðningi við verkefnið frá því síðastliðið haust. Borgarstjóri segir niðurstöðurnar mikilvægt veganesti inn í framkvæmdatímabilið. NEY TE NDUR „Það er heilmikil handavinna í kringum þetta,“ segir Skarphéðinn Berg Steinars- son ferðamálastjóri um stöðuna á Ferðaábyrgðasjóði. Áætlað er að Ferðaábyrgðasjóð- ur þurfi allt að 4,5 milljörðum króna en frá því opnað var fyrir umsóknir um lán í sjóðnum í síðustu viku hafa aðeins borist umsóknir um tvö- til þrjú hundruð milljónir króna að sögn ferðamálastjóra. – gar / sjá síðu 6 Fáar umsóknir í ábyrgðasjóðinn SJÁVARÚTVEGUR Veiði á makríl innan íslensku lögsögunnar hefur valdið vonbrigðum það sem af er vertíðar og nú er nánast allur f loti íslenskra skipa sem gerir út á makríl við veiðar í Smugunni. Eftir fjörugan föstudag í Smug- unni datt veiðin niður yfir helgina þó að eitthvað hafi áfram fengist, að sögn Baldurs Einarssonar, útgerðar- stjóra Eskju sem gerir út tvö skip á makríl. – thg / sjá síðu 4 Íslenski flotinn fór í Smuguna Fjölmenni var í gær í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal og nutu háir sem lágir góða veðursins og lystisemda garðsins. Við tjörnina, ekki fjarri hringekjunni, stóð Costco-fíllinn á sínum stað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.