Fréttablaðið - 29.07.2020, Side 14

Fréttablaðið - 29.07.2020, Side 14
2 9 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT ENSKI BOLTINN Þegar glugginn lokar hefur verið spilað í deildinni í nokkrar vikur, en keppni hefst þar 12. september næstkomandi. Félögin eru nú þegar farin að gera sig gildandi á félagaskiptamarkaðn­ um, en búist er við því að glugginn verði hófstilltur vegna fjárhagslegra áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn hefur haft á félögin. Fréttablaðið spáir og spekúlerar hvað sex efstu félögin í deildinni sem lauk um síð­ ustu helgi, muni gera á markaðnum. Liverpool Ríkjandi meistarar hafa misst tvo leikmenn í upphafi gluggans, en Dejan Lovren er farinn til Zenit frá Pétursborg og Adam Lallana skellti sér til Brighton. Bent White, sem var á láni hjá Leeds United frá Brigh­ ton síðasta vetur, er talinn líklegur til þess að leysa Lovren af hólmi. Brasilíski miðvallarleikmaðurinn Thiago Alcantara sem leikur með Bayern München er sterklega orð­ aður við Bítlaborgarliðið. Phil­ ippe Coutinho ku vilja snúa aftur á Anfield, en spurningin er hvort Jürgen Klopp vilji taka við honum aftur. Þá gæti Todd Cantwell verið fenginn til þess að fylla skarð Adam Lallana í leikmannahópnum. Manchester City Glugginn hjá Manchester City breyttist þegar alþjóðaíþrótta­ dómstóllinn sá til þess að þeir fengju að leika í Meistaradeild Evr­ ópu á næstu leiktíð. Pep Guardiola er sagður vilja styrkja varnarlínu sína og eru hans fyrrverandi læri­ sveinar David Alaba, Nathan Aké og Kalidou Koulibaly orðaðir við liðið. Guardiola ætlar svo að fá Ferr en Torres, leikmann Valencia, en hann getur leikið á vængnum, en þar missti Manchester City Leroy Sané, og inni á miðsvæðinu, í stað David Silva, sem er að öllum líkindum á leið til Valencia. Manchester United Ole Gunnar Solskjær er kominn með Manchester United í Meistara­ deildina á nýjan leik og mun líklega styrkja leikmannahópinn af kost­ gæfni. James Maddison og Jack Grealish hafa þráfaldlega verið orðaðir við félagið síðustu vikurnar. Svo er það talið nánast bókað að Jadon Sancho, leikmaður Borussia Dortmund, muni ákveða að semja við Rauðu djöflana. Franski varnar­ maðurinn Dayot Upamecano, sem leikur með RB Leipzig, er svo orðað­ ur við liðið. Ekki liggur fyrir hvort dvöl nígeríska framherjans Odion Ighalo verði framlengd á Old Traf­ ford, en ef svo verður ekki mun liðið leita sér að nýrri varaskeifu í fram­ herjastöðuna. Joshua King gæti komið til greina hvað það varðar. Chelsea Roman Abrahamovic hefur nú þegar opnað veskið, en Hakim Ziyech og Timo Werner koma til Chelsea í sumar. Þar með er framlína Chelsea orðin býsna sterk, en svo eru Chelsea og Bayer Leverkusen í viðræðum um kaup Lundúna liðsins á framherjanum Kai Havertz. Ben Chillwell, bak­ vörður Leicester City, gæti fært sig yfir til Chelsea og svo er Nathan Aké mögulega á leið aftur til liðsins sem hann lék með um skeið. Hverjir fara hvert í sumar? Félagaskiptaglugginn í ensku úrvalsdeildinni opn- aði á mánudaginn, en liðunum í deildinni verður heimilt að kaupa leikmenn fram í byrjun október. Philippe Coutinho er á leið frá Barcelona, en Bayern München vill ekki framlengja dvöl hans hjá félaginu. Ekki liggur fyrir hvar hann endar. MYND/GETTY Tottenham Hotspur José Mourinho fær nú sumarið til þess að koma sínu handbragði á liðið. Þýski varnarmaðurinn Matthi­ as Ginter, sem hefur verið kletturinn í vörn Borussia Mönchengladbach, er nefndur til sögunnar til þess að koma í stað Jan Vertonghen. Max Aarons gæti mætt til þess að hressa upp á bakvarðasveitina. Donny van de Beek, miðvallarleikmaður Ajax, er nefndur í slúðurpökkum tengdum Tottenham Hotspur. Að lokum er talið að Harry Kane fái félagsskap í framherjaflórunni og þar er Kósó­ vinn Vedat Muriqi, sem hefur raðað inn mörkum fyrir Fenerbache í Tyrk­ landi, líklegur kandídat. Sancho er á leið til Englands og Man. Utd. er líklegasti áfangastaðurinn. Aké er orðaður við Chelsea og City. Leicester City Brendan Rodgers gæti þurft að bregðast við því að missa sína lykil­ leikmenn og munu kaup hans vera í takti við hvaða leikmenn yfir­ gefa herbúðir félagsins. Leicester City er eitt þeirra fjölmörgu liða sem Coutinho er orðaður við, en þau viðskipti munu líklega ekki fara fram ef Maddison ákveður að halda kyrru fyrir hjá félaginu. Jamal Lewis mun mögulega bætast við í bakvarðasveit liðsins, William Car­ valho gæti komið til þess að bólstra miðsvæðið og Emiliano Buendia, sem lék vel með Norwich City, gæti hresst upp á sóknarleikinn. hjorvaro@frettabladid.is Maddison gæti farið í annað lið. ENSKI BOLTINN For ráðamenn Bour­ n emouth munu í vikunni ræða hvort félagið fari í skaðabóta mál á hend ur Hawk­Eye, en það er fyr ir­ tæk ið sem sér um marklínu tækn­ ina í ensku úr vals deild inni í knatt­ spyrnu karla. Bour nemouth féll úr úrvalsdeild­ inni um síðustu helgi, en liðið end­ aði einu stigi á eftir Ast on Villa, sem hafnaði í sætinu fyrir ofan fallsvæði deildarinnar. Rifjuðu menn þá fljót­ lega upp leik Aston Villa og Sheff ield United sem leikinn var fyrir tæpum mánuði síðan. Örjan Ny land, markvörður Ast on Villa, náði þá að grípa boltann, en datt með boltann í höndunum inn í markið. Michael Oliver, dómari leiksins, fékk hins vegar ekki meld­ ingu frá marklínutækninni um að boltinn hefði farið inn fyrir línuna. Á meðan á leiknum stóð kom hins vegar í ljós að boltinn var inni og for­ ráðamenn Hawk­Eye báðust form­ lega af sök un ar á mis tök un um eftir leikinn. Leiknum lauk með marka­ lausu jafntefli, en það stig auk ann­ arra varð til þess að Aston Villa hélt sæti sínu í úrvalsdeildinni. – hó Bournemouth íhugar að leita réttar síns Boltinn fór allur yfir línuna. KÖRFUBOLTI Karlalið Tinda stóls í körfubolta hefur fengið liðsstyrk. Stólarnir hafa samið við Lit há ann Ant an as Udras um að leika með lið­ inu. Það er staðarmiðillinn Feyk ir sem greinir frá þessu. Udras er reynd ur leikmaður sem get ur bæði leikið  sem mið­ herji og fram herji. Hann er 28 ára gam all og hef ur lengst af leikið í B­deild inni í heima land i sínu. Þar varð  hann meistari  með liðinu Sudu va árið 2017. Und an far nar tvær leiktíðir hef­ ur Udras spilað með Siauliai, liðinu sem Elvar Már Friðriksson leikur með næsta vetur, en það lið hafn­ aði í átt unda sæti af tíu liðum í efstu deild á síðustu leiktíð. – hó Stólarnir bæta við sig miðherja FÓTBOLTI Evrópska knattspyrnu­ sambandið, UEFA, ætlar ekki að grípa til aðgerða varðandi seinni leik Real Madrid og Manchester City í 16 liða úrslitum  Meistara­ deildar Evrópu, þrátt fyrir að smit haf i  greinst í leikmannahópi spænska liðsins. Mariano Diaz greindist með kórónaveiruna í gær, en leikmenn Real Madrid fara í skimun í vikunni. Eftir þá skimun verður ákvörðun tekin um framhaldið. Manchester City hafði betur í fyrri leiknum, 2­1, á Santiago Bernabéu. Seinni leikur­ inn er á dagskrá á Etihad­leikvang­ inum föstudaginn 7. ágúst. – hó UEFA hefur ekki áhyggjur af smitinu ennþá

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.