Fréttablaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 28
Núna í haust er því spáð af helstu tísku-miðlum erlendis að vinsælt verði að nota belti yfir jakka. Þannig gefst manni færi á að gefa útlitinu annað form, en undanfarið hafa víðir jakkar verið mjög vinsælir. Belti frá þekktum tískumerkjum koma mjög vel út yfir jakka og var það trend nokkuð áberandi hjá helstu tískudrottningunum síðasta árið. Bæði er hægt að nota belti í svipuðum tón og sjálfur jakkinn, eða velja eitthvað litríkt belti til að gera heildarútlitið skemmtilegra. Það er um að gera að prófa sig áfram með ólík belti og leyfa öxlunum að vera áberandi breiðum, en taka á móti jakkann saman í mittinu. steingerdur@frettabladid.is Belti yfir jakkann Jakkar í yfirstærð hafa verið vinsælir um nokkurt skeið. Helstu tískumiðlar spá því að í haust verði heitasta trendið að vera með flott belti yfir jakkann. Þar með nýtast stóru jakk- arnir áfram, en hafa þá kvenlegra yfirbragð. Belt- ið er í sama tón og sam- festingurinn undir jakkanum, en það kemur mjög vel út. MYNDIR/GETTY Füsun Lind- ner glæsileg í alklæðnaði og með belti frá Dior á tískuvik- unni í París. Klass- ískur svartur jakki með Gucci- belti. Það er flott að vera í hjólabuxum við þó íslensk veðrátta leyfi það eflaust ekki í haust. Gestur á tísku- vikunni í París með Dior-belti og tösku. Beltið kemur einstaklega vel út yfir flottan jakka í yfirstærð. Anna Rosa Vitiello sést hér með belti frá Chanel og frábæra tösku í stíl. Keðjubelti geta líka komið ein- staklega flott út yfir klassískan dragtarjakka. Þunnt belti getur líka komið vel út eins og sést hérna á Gitta Banko. Beltið er frá Bottega Veneta. Tamara Kalinic með Valentino- belti á tísku- vikunni í París. Gott dæmi um hvernig beltið getur gefið heildarútlitinu skemmtilegra yfirbragð. 2 9 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.