Fréttablaðið - 29.07.2020, Side 18
Við fæðumst með augu sem eru um 16 millimetrar í þvermál. Um þriggja ára
aldur munu þau hafa stækkað
upp í um 23 millimetra í þvermál.
Og við kynþroska munu augun
hafa náð fullri stærð, eða um 24
millimetrum í þvermál. Efnið sem
er að finna í augum okkar er eins
konar glært gel sem kallast augn-
hlaup. Ljós ferðast frá augasteini og
linsu til augnbotns sem er þakinn
sérstökum, ljósnæmum frumum,
keilum og stöfum, sem saman
nefnast sjónhimna. Þaðan berast
upplýsingar frá sjóntaug til heila,
þar sem þær eru túlkaðar.
Hvað er þetta 20/20 sem fólk
talar um þegar það ræðir um full-
komna sjón? Þessar tölur eiga við
20 fet og merkja í raun að sá sem
er verið að prófa sjón hjá, geti séð
sömu textalínu á sjónprófi í 20 feta
fjarlægð og manneskja með full-
komna sjón getur séð í sömu fjar-
lægð. Þá er maður með fullkomna
20/20 sjón. En sá sem er með 20/40
sjón getur eingöngu séð textalínu á
sjónprófi í 20 feta fjarlægð sem ein-
hver með fullkomna sjón getur séð
úr 40 feta fjarlægð. Viðmiðin um
þá sem eru með fullkomna sjón eru
þó ekki þau að um sé að ræða bestu
sjónina. Margir ungir einstaklingar
geta til dæmis séð minni textalínu
á sjónprófi en manneskja sem er
með 20/20 sjón. Á Íslandi er talað
um 6/6 sjón sem á við sex metra,
fremur en 20 fet.
Litur augnanna á uppruna sinn í
því hversu mikið melanín litarefni
er að finna í lithimnunni. Það er
þó ekki eini tilgangur melaníns í
augunum, því litarefnið er það sem
hjálpar okkur að verja augun gegn
sólargeislum. Ljós augu eru af þeim
völdum mun viðkvæmari fyrir
skaðlegum sólargeislum, því þau
hafa einfaldlega minna magn af
litarefni en dökk augu.
Litur augna þinna getur vel
breyst, bæði í samræmi við tilfinn-
ingar og birtuskilyrði. Litarefnin
í lithimnunni dragast saman og
breiða úr sér, eftir því sem auga-
steinninn stækkar og minnkar.
Þetta verður til þess að augun
Augun mín og augun þín
Augun eru gluggar sálarinnar og uppspretta heilu ljóðabálkanna. En þessir leyndardómsfullu
líkamshlutar eru sérlega merkileg fyrirbæri og hér birtast nokkrar áhugaverðar staðreyndir.
Augun hafa löngum heillað manninn og ekki að ástæðulausu.
Augun geta sagt margt um
persónuna. MYND/GETTY IMAGES.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
LAXDAL
SUMARSALAN
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
skoðið laxdal.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
NÚ ENN MEIRI
AFSLÁTTUR
40%-60%
GÆÐAFATNAÐUR
SEM ENDIST
VELKOMIN
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
Fæst í öllum helstu matvöruverslunum, apótekum
og heildsöluvöruverslunum.
dökkna oft þegar augasteinninn
stækkar, þar sem litarefnið í himn-
unni þéttist, og lýsast sömuleiðis
þegar augasteinninn minnkar og
litarefnið breiðir úr sér yfir stærra
svæði.
Ákveðnar tilfinningar geta orðið
til þess að augasteinninn stækkar
eða minnkar og geta tilfinningar
því haft áhrif á lit augna þinna.
Því er harla ólíklegt að augun geti
breytt algerlega um lit.
Víða má finna upplýsingar um
það hvernig hægt er að þjálfa
augun til þess að bæta sjónina og
laga nærsýni. Þannig er þó í pott-
inn búið að við getum ekki lagað
sjónina án hjálpar sérfræðinga og
ekki er til nein einföld aðferð til
þess að laga sjónvandamál. Með
góðu og hollu mataræði má þó
styðja við sjónina.
Rannsóknir á genamengi fólks
með blá augu hafa sýnt fram á að
allir bláeygðir eiga sameiginlegan
forföður. Uppruni blárra augna
er rakinn til genastökkbreytingar
sem átti sér stað fyrir um 6.000-
10.000 árum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R