Fréttablaðið - 18.08.2020, Side 2

Fréttablaðið - 18.08.2020, Side 2
Veður Norðaustanátt 5-13 og skýjað að mestu í dag, hvassast vestan til. Líkur á þoku við ströndina á Norður- og Austurlandi, og síðdegisskúrum suðvestan til. Heldur kólnandi veður. SJÁ SÍÐU 14 Sumardagarnir vel nýttir Þessi ofurhugi nýtti blíðviðrið sem ríkti á suðvesturhorninu í gær til þess að láta vélbát draga sig á sjóbretti í sjónum skammt frá Sólfarinu við Sæbraut. Í bakgrunninum gengur lífið sinn vanagang og byggingarframkvæmdir á Kirkjusandsreitnum eru í fullum gangi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ára H E I L B R I G Ð I S M Á L E it t hel s t a umræðuef ni helgar innar var færsla inn á Matartips!, einum vinsælasta Facebook-hóp lands- ins. Í færslunni var fullyrt að 120 einstaklingar leituðu á bráða- móttöku árlega vegna óhappa sem orsakast af að skera í sundur frosnar beyglur. Óhætt er að segja að umræðan hafi vakið mikla athygli og í kjöl- farið rigndi inn reynslusögum frá Íslendingum sem margir hverjir höfðu meitt sig illa við að skera í sundur brauðmetið og sumir oftar en einu sinni. Beindust spjótin sérstaklega að beyglum frá Myllunni sem voru sagðar illa skornar og af leiðing þess væri sú að fólk væri að slasa sig við að ná þeim í sundur. Svo fór að Myllan sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Í henni kom fram að starfsfólki Myllunnar þætti afar leitt að heyra af slysunum en að illmögulegt væri að skera beyglurnar betur. Þá myndi þurfa að handpakka þeim í poka sem myndi þýða mikinn aukakostnað fyrir fyrirtækið. Betri skurður myndi því mögulega þýða hærra verð á vörunni. Þá hvatti Myllan viðskiptavini til að af þíða beyglurnar áður en þær væru skornar, til dæmis með því að taka þær úr frysti nokkrum mínútum fyrir neyslu. Helga Rósa Másdóttir, hjúkr- unardeildarstjóri bráðamóttöku Landspítalans, segir að spítalinn haldi ekki nákvæma tölfræði yfir hvað það sé sem valdi hvers konar slysum. Hins vegar sé það tilfinn- ing hennar að 120 beygluslys á ári sé ekki fjarri sannleikanum. „Þetta eru því miður mjög algeng óhöpp,“ segir Helga Rósa. Hún segir að beyglur séu þó ekki eini sökudólgurinn, það sama gildi líka um hinn vinsæla ávöxt avó- kadó. „Fólk er ekki síður að skera sig á honum. Hann og beyglurnar eru auðvitað mjög vinsælir hlutir á morgunverðarborðum lands- manna. Ég myndi segja að var- ahugaverðasti tíminn fyrir slík slys séu fyrir hádegi á sunnudögum. Þá eru puttar landsmanna í hættu,“ segir Helga Rósa. bjornth@frettabladid.is Beyglur og avókadó skeinuhætt fingrum Algeng ástæða þess að fólk leitar sér hjálpar á bráðamóttöku er vegna slysa sem verða við að skera í sundur beyglur og avókadó. Einkum eru það sunnu- dagsmorgnar sem eru varhugaverður tími að sögn hjúkrunardeildarstjóra. Helga Rósa Másdóttir hjúkrunardeildarstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI STJÓRNSÝSLA Áætlað er að um þrjú hundruð alþjóðasamningar sem Ísland hefur fullgilt að þjóðarétti frá árunum 2007-2018 bíði þess að vera birtir í Stjórnartíðindum. Þetta kemur fram í svari utanríkisráð- herra við fyrirspurn þingmannsins Andrésar Inga Jónssonar. Í svarinu kemur fram að síðasta áratug hafi dregið úr birtingu þjóð- réttarsamninga í C-deild Stjórnartíð- inda. Helsta ástæðan er sögð að eftir efnahagshrunið hafi dregið verulega úr fjárveitingum til slíkra verkefna. Þó sé forgangsraðað og samning- ar til dæmis um upplýsingaskipti og tvísköttunarmál verið birtir. Allir samningar sem hafi verið fullgiltir hafi verið þýddir á íslensku en þeir séu að meðaltali 25 til 30 á ári. – sar Fjöldi óbirtra samninga SAMFÉLAG „Ég er búinn að svipast um eftir honum í meira en mánuð. Ég er afar ánægður með að hafa náð honum loksins,“ segir Ólafur Örn Ólafsson sem í gær handsamaði jap- anskan koi-fisk í Elliðaánum. Í júnílok var greint frá því að blaðamaðurinn Svavar Hávarðar- son hefði rekið augun í koi-fisk í ánni og vöktu þau tíðindi nokkra athygli. Sérstaklega hjá Ólafi en hann þekkir tegundina vel. „Ég er með 100 þúsund lítra tjörn í garðinum og einhverja sextíu fiska þar. Ég tók því þennan, setti hann í smá lyfjabað og núna er hann kom- inn í tjörnina og unir sér vel.“ Ólafur segir að koi-fiskar geti gert mikinn usla í lífríki eins og Elliða- ánum. „Þeir eru frekir og ryksuga upp hrogn og seiði annarra fiska. Það hefur einhver vitleysingur sleppt honum í ána og mér brá við þau tíðindi,“ segir Ólafur. – bþ Handsamaði koi-fisk í Elliðaánum Fiskurinn sem Ólafur Örn Ólafsson handsamaði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þá eru puttar landsmanna í hættu. 1 8 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.