Fréttablaðið - 18.08.2020, Side 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
105
KOFFÍNVATN
330 ML
149
KR/STK
452 KR/L
NÓA
EITT SETT
30 G
149
KR/STK
4967 KR/KG
SNICKERS
CLASSIC
80 G
99
KR/STK
1980 KR/KG
TOPPUR
DÓS - 330 ML
129
KR/STK
391 KR/L
KLAKI
BLÁR/GRÆNN
500 ML
149
KR/STK
298 KR/L
STJÖRNU
POPP/OSTAPOPP
90/100 G
249
KR/STK
2490/2767 KR/KG
Eddu Lúvísu Blöndal er heldur betur margt til lista lagt: hún er salsadansari, karetekona, sjúkra og markþjálfari, móðir og eiginkona.
„Ég lít á mig sem lukkunnar
pamfíl, þar sem ég elska flest af því
sem ég geri á „vinnutíma“. Ég elska
tónlist og hreyfingu. Ég þarf mögu
lega að æfa mig í að slaka á og gera
ekkert. Það stendur svo sem allt til
bóta,“ segir Edda brosandi.
Edda kynntist salsadansi þegar
hún var á keppnisferðalögum
erlendis og var enn að reyna að
verða heimsmeistari í karate.
„Þessi blanda af skemmtilegri
tónlist og hreyfingu er óviðjafnan
leg. Auk þess hafði hörkutólið sem
ég þróaði í karatekeppni gott af
að kynnast mýkri hliðinni á mér í
þessum skemmtilegu hreyfingum í
salsa,“ segir hún
Hún segir salsadansinn vera lífs
stíl.
„Með salsadansi færðu nýja týpu
af félagslífi. Auk þess er ákveðin
hugleiðsla í salsa, því þú dettur
ósjálfrátt inn í núið við að dansa
við annan aðila og fylgja eða stýra
í dansinum. Þá er salsaumheimur
inn stéttlaust samfélag. Þar kynnist
þú alls konar fólki og þjóðfélags eða
félagsleg staða þarf ekkert að fylgja
þér. Salsa er nokkuð einfaldur dans
og gæðakröfurnar eru fáar, sem
þýðir að við þurfum ekkert að hafa
lært dans áður, eða vera einhverjir
snillingar í salsa til að geta notið
þess að dansa saman,“ segir Edda.
Fékk salsafráhvörf
Edda stofnaði Salsa Iceland árið
2006.
„Salsa Iceland er fyrsta barnið
mitt, ástríðuleikvöllur og vett
vangur fyrir mig og alla þá sem hafa
gaman af að dansa og njóta sín. Salsa
Iceland er félag áhugasamra um
salsadans á Íslandi og salsadans
skóli. Ég stofnaði Salsa Iceland árið
2006 í salsafráhvörfum eftir að ég
kom heim að utan þar sem ég hafði
kynnst og lært salsa. Síðan þá hef ég,
ásamt góðum vinum og samstarfs
félögum, rekið Salsa Iceland dans
skólann sem er eini skólinn á Íslandi
sem sérhæfir sig í salsadanskennslu.
Við bjóðum reglulega í ókeypis
prufutíma í salsa til að kynna
Íslendinga fyrir þessum dásamlega
dansi og lífsstíl,“ segir hún.
Hjá Salsa Iceland er ekki ætlast til
að maður sé með fastan dansfélaga.
„Flestir nemendur koma til okkar
stakir. Við sjáum um að jafna kynja
hlutföllin á öllum námskeiðum með
aðstoð lengra kominna nemenda. Á
paranámskeiðum hjá okkur er alltaf
róterað á milli félaga, enda er salsa
þannig dans að allir dansa við alla,
það er ekki hefð fyrir föstum dans
félögum.“
Vanalega stendur Salsa Iceland
fyrir vikulegum salsakvöldum, sem
nú liggja í dvala vegna COVID19. Af
sömu ástæðu eru því námskeið og
kennslustundir bara í sólódansi um
þessar mundir, en ekki paradansi. Í
tímanum í dag verður því boðið upp
á sólódans.
„Allir eru stakir og í tveggja
metra fjarlægð, við sýnum ábyrgð
og gætum fyllsta öryggis. Salurinn
í Þórshamri er bjartur og risastór,
svo það fer vel um okkur. Tíminn
er ætlaður dömum sem langar að
prófa að dansa salsasporin við
geggjaða latíntónlist í hópi góðra
kvenna. Tilvalið fyrir vinkonuhópa,
konur á öllum aldri, og líka þær
óvönu. Það eru allir bara í sínum
ramma og njóta sín þar. Við erum
ekki í samanburði, bara í kærleika
og gleði,“ segir hún.
Mótefni við vanlíðan
Edda hefur kennt líkamsrækt og
salsa í ein 20 ár.
„Ég er enn hugfangin og full
lotningar yfir gleðinni við að sjá
nemendur mína koma og falla fyrir
salsadansi líkt og ég gerði. Þetta
er dýrmætt mótefni skapsveiflna,
skammdegis og slens, sem er enn
dýrmætara nú á tímum COVID. Svo
er þetta besta líkamsræktin, svona
í ljósi þess að þú gleymir því að þú
sért að stunda líkamsrækt,“ segir
Edda.
Er eitthvað sem fólk veit ekki um
salsadans?
„Ekki eftir þetta viðtal,“ segir hún
hlæjandi og heldur svo áfram: „Jú,
kannski það að eftir öll þessi ár er
salsadansinn einn af mínum bestu
og traustustu vinum.“
Prufutíminn hefst í dag klukkan
18.15 í húsnæði Karatefélags Þórs
hamars í Brautarholti 22.
steingerdur@frettabladid.is
Salsadans er lífsstíll
Edda stofnaði Salsa Iceland en í dag er boðið upp á ókeypis
prufutíma fyrir dömur í sólósalsa hjá Karatefélaginu Þórshamri.
Edda Blöndal féll fyrir salsa þegar hún var á keppnisferðalögum í karate á sínum tíma . FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ÉG ER ENN HUGFANGIN
OG FULL LOTNINGAR
YFIR GLEÐINNI VIÐ AÐ SJÁ
NEMENDUR MÍNA KOMA OG
FALLA FYRIR SALSADANSI LÍKT
OG ÉG GERÐI.
EFTIR ÖLL ÞESSI ÁR ER
SALSADANSINN EINN
AF MÍNUM BESTU OG
TRAUSTUSTU VINUM.
1 8 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð