Fréttablaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 14
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652
Element ehf. f lytur inn kross-límt timbur frá austurríska framleiðandanum KLH
Massivholz GmbH og býður upp á
heildstæða þjónustu við ráðgjöf,
hönnun, teikningagerð, efnisöflun
og uppsetningu burðarvirkja úr
krosslímdu timbri. Fyrirtækið
hefur aflað sér mikillar sérþekk-
ingar og reynslu sem nýtist við-
skiptavinum, en forsvarsmenn
þess hafa marga ára reynslu úr
byggingargeiranum og leggja
áherslu á að skapa traust og skila
góðum verkum.
„KLH opnaði verksmiðju sína
árið 1999 og er brautryðjandi í
framleiðslu á krosslímdu timbri á
heimsvísu og einn stærsti fram-
leiðandi þeirra í Evrópu. Fyrir-
tækið hefur framleitt krosslímt
timbur í tugi þúsunda verkefna, en
það er gríðarlegur vöxtur í þessum
geira um allan heim,“ segir Sverrir
Steinn Ingimundarson, iðnaðar-
tæknifræðingur og framkvæmda-
stjóri Element. „KLH er rótgróið
fjölskyldufyrirtæki sem leggur
gríðarlegan metnað í að framleiða
gæðavöru til hagsbóta fyrir sína
viðskiptavini og það er vistvænt
að byggja úr krosslímdu timbri frá
KLH, þar sem notast er við endur-
nýjanlega skóga við framleiðsluna.
Það er oft talað um krosslímt
timbur sem byggingarefni 21.
aldarinnar.“
Svansvottað byggingarefni
„Krosslímt timbur opnar frábæra
möguleika fyrir húsbyggjendur,“
segir Sverrir. „Það er framleitt í
plötum sem eru byggðar upp af
timburlögum sem eru límd saman
þvert á hvert annað undir miklum
þrýstingi og þannig fæst bygg-
ingarefni með hátt burðarþol sem
nýtist í burðarvirki bygginga í loft,
þök, veggi og stiga.
Krosslímt timbur frá KLH
er Svansvottað og við erum
eini aðilinn á Íslandi sem selur
timbureiningar með þessari
vottun. Við erum virkilega stoltir
af því að geta boðið viðskipta-
vinum okkar upp á þessa vottun,
enda eiga strangar kröfur Svansins
að tryggja að varan sé bæði betri
fyrir umhverfið og heilsuna,“ segir
Sverrir.
„Það er líka verið að vinna LCA-
vistferilsgreiningu fyrir okkur hjá
Eflu til að meta umhverfisáhrif
og reikna út vistspor og kolefnis-
spor byggingar sem við erum að
vinna að. Slík greining tekur til
alls líftíma byggingarinnar, allt
frá hönnun og þar til hún er tekin
niður. Niðurstaðan liggur ekki
endanlega fyrir, en þær upplýs-
ingar sem við höfum fengið gefa til
kynna að þetta efnisval sé umtals-
vert umhverfisvænna en að gera
hús úr steypu. Ég held það sé ekki
nokkur vafi á því að notkun kross-
límds timburs muni koma til með
að eiga stóran þátt í því að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda frá
byggingariðnaðinum hér á landi á
næstu árum.“
Styttri framkvæmdatími
og meira frelsi í hönnun
„Element var stofnað árið 2015 í
kjölfar þess að forsvarsmenn fyrir-
tækisins tóku að sér að byggja yfir
100 herbergja hótel á Hnappavöll-
um í Öræfum, sem heitir Fosshótel
Jökulsárlón, úr efni frá KLH,“ segir
Sverrir. „Það var fyrsta svona stóra
verkefnið á Íslandi þar sem kross-
límt timbur var notað og hótelið er
stærsta timburbygging sem reist
hefur verið á Íslandi. Þessi bygg-
ingaraðferð var valin þar vegna
þess að þetta var hagkvæmasta
leiðin til að byggja á þessum stað.
Hún gerir hönnuðum líka kleift
að hafa bygginguna örlítið frá-
brugðna frá því sem hefðbundið
er, en einn af kostum byggingar-
efnisins er að það gefur ákveðið
frelsi. Í þessu verkefni var til
dæmis mikið af hallandi veggjum
sem auðvelt var að leysa með
krosslímdum timbureiningum.
Krosslímt timbur hefur fleiri
góða kosti. Það er til dæmis hægt
að reisa burðarvirki úr krosslímdu
timbri á um 20-25% af tímanum
sem fer í að steypa það,“ segir
Sverrir. „Svo þarf að einangra og
klæða að utan með efni að eigin
vali, en það er f ljótlegra og hljóð-
legra að skrúfa í timbur en brjóta
og bora í steypu.
Öll vinna í kringum þetta veldur
miklu minna raski en þegar unnið
er með steypu og þetta er hreinleg
og fyrirferðarlítil byggingaraðferð
sem hentar mjög vel á þéttingar-
reitum. Við vorum til dæmis að
byggja fjögurra hæða hús á Hverf-
isgötu og komum með fimm vagna
af krosslímdu timbri og reistum
úr því burðarvirki. Ef þetta hefði
verið uppsteypt hefði þurft svona
60 steypubíla plús dælubíla. En
þetta var í bakgarðinum hjá fólki,
þannig að það munar mikið um
að losna við allt þetta auka rask,“
útskýrir Sverrir.
Þjónusta eftir þörfum
„Við fáum arkitektateikningar frá
viðskiptavinum og gerum tilboð
út frá þeim. Við bjóðum ekki upp
á staðlaðar lausnir, heldur eru
timbureiningarnar sérframleiddar
fyrir hvert verkefni með tíma-
stilltri afhendingu, sem þýðir að
efnið fer beint frá verksmiðju á
byggingarstað,“ segir Sverrir. „Þar
sem einingarnar koma tilsniðnar
á byggingarstað er mikið lagt
upp úr skipulagi, svo hægt sé að
reisa burðarvirkið á f ljótlegan og
skilvirkan máta. Búið er að skera
út fyrir öllum gluggum, hurðum
og lagnagötum í samræmi við
hönnun og yfirleitt þarf ekkert að
eiga við einingarnar eftir að þær
koma á verkstað.
Við veitum þjónustu við allt
þetta skipulag og aðra ráðgjöf og
verkefnastýringu eftir þörfum.
Viðskiptavinir okkar eru ein-
staklingar, verktakar og fyrirtæki
og það er mismunandi hvað við
tökum mikinn þátt í verkefnum,“
segir Sverrir. „Við sinnum alltaf
burðarvirkishönnuninni og
komum efni á byggingarstað en
svo er misjafnt hver sér um upp-
setninguna.“
Mikill og vaxandi áhugi
„Við erum hluthafi í fyrirtæki sem
er að byggja fyrstu Svansvottuðu
raðhús landsins í Urriðaholti,
en það eru um leið fyrstu Svans-
vottuðu íbúðarhúsin á almennum
Element býður heildstæða þjónustu við ráðgjöf, hönnun, teikningagerð,
efnisöflun og uppsetningu burðarvirkja úr krosslímdu timbri og hefur aflað
sér mikillar sérþekkingar og reynslu á því sviði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Krosslímt timbur gerir hönnuðum kleift að hafa byggingar örlítið frá-
brugðnar frá því sem hefðbundið er og einn af kostum byggingarefnisins er
að það gefur ákveðið frelsi. Í þessu verkefni var til dæmis mikið af hallandi
veggjum sem auðvelt var að leysa með krosslímdum timbureiningum.
Timbureiningarnar eru sérframleiddar fyrir hvert verkefni um sig og koma
tilsniðnar á byggingarstað. Mikið er lagt upp úr nákvæmu skipulagi, svo að
hægt sé að reisa burðarvirkið á fljótlegan og skilvirkan máta.
Krosslímt
timbur frá KLH
er Svansvottað
og Element er
eini aðilinn á Ís-
landi sem selur
timbureiningar
með þessari
vottun. Fyrir-
tækið er stolt
af vottuninni,
en strangar
kröfur Svansins
eiga að tryggja
að varan sé
bæði betri fyrir
umhverfið og
heilsuna.
Framhald af forsíðu ➛
markaði. Við skynjum mikinn
áhuga á krosslímdu timbri hjá
almenningi. Margir hafa kynnt sér
þetta og hafa áhuga á að byggja sér
hús úr þessu efni,“ segir Sverrir.
„Ósjaldan fáum við símtöl frá fólki
sem hefur verið að skoða þetta
byggingarefni og er forvitið og vill
vita meira. Oft er það vegna þess
að þetta er umhverfisvænt, en líka
vegna þess að þetta er f ljótlegt og
vegna þess að margir hafa heyrt
góða hluti um verkefni sem við
höfum unnið. Okkur hefur gengið
mjög vel og fólk tekur eftir því og
það spyrst út.“
Að lokum vill Sverrir hvetja fólk
til að kíkja á vefinn element. is.
„Ef fólk skoðar verkefnasíðuna
okkar er hægt að sjá að það er
búið að byggja allar mögulegar
tegundir af byggingum úr kross-
límdu timbri, meðal annars
íbúðarhús, sumarhús, hótel,
söfn og þjónustuhús, gagnaver
og skólabyggingar. Enn fremur
erum við alltaf tilbúnir til að hitta
fólk, svara spurningum eða halda
kynningar.“
2 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U REININGAHÚS