Fréttablaðið - 18.08.2020, Síða 15
Síminn hjá mér hefur ekki stoppað í allt sumar og um allt land hafa risið ný hús
og reynst einstaklega vel,“ segir
Sveinn Enok Jóhannsson, vöru-
stjóri hjá Húsasmiðjunni, um
ný og vönduð einingahús sem
afhendast fullkláruð, bæði að
utan og innan, ásamt 20 fermetra
sólpalli.
„Nýju sumarhús Húsasmiðjunn-
ar eru frábær kostur fyrir þá sem
vilja eignast kot í íslenskri sveit.
Það er meira að segja hægt að sofa
fyrstu nóttina í nýja húsinu því
þegar undirstöður undir húsið eru
komnar er húsið einfaldlega híft
ofan á þær og tilbúið til notkunar,“
útskýrir Sveinn Enok.
Hægt er að velja lit á hús og
glugga að eigin vali og allir
gluggar eru með tvöföldu einangr-
unargleri. „Allar innréttingar
og gólfefni er vandað og fallegt.
Í húsunum er eldhúsinnrétting
með ísskáp, örbylgjuofni, eldavél,
bökunarofni, vaski og blöndunar-
tækjum. Þá er baðinnrétting með
vaski og blöndunartækjum ásamt
salerni og sturtuklefa,“ upplýsir
Sveinn Enok.
Húsin uppfylla allar kröfur
íslenskrar byggingarreglugerðar
og fást í mismunandi stærðum og
gerðum en hægt er að aðlaga húsin
þörfum hvers og eins.
„Við seljum sumarhúsin í fjórum
stærðum, 31,5 fermetra, 35 fer-
metra og 40 fermetra og líka sem
64 fermetra hús en þá eru tvær
einingar settar saman í L-laga hús.
Húsunum fylgir 20 fermetra sól-
pallur sem er f luttur ofan á þaki
hússins. Þetta er því eins einfalt og
þægilegt og hugsast getur,“ segir
Sveinn Enok.
Í húsunum eru einnig rafmagns-
ofnar, vatnshitari fyrir neysluvatn,
innfelld ljós, yfirfelldar fulninga-
hurðir og fleira.
„Auðvelt er að skipta rafmagns-
ofnum út fyrir miðstöðvarofna þar
sem það á við og sömuleiðis er ein-
falt að tengja þriggja fasa rafmagn
inn í húsið. Ef rotþróin er tilbúin er
líka hægt að tengja hana strax við
húsið,“ útskýrir Sveinn Enok.
„Það er enginn falinn kostnaður
í þessum húsum og engin áhætta
tekin því húsið kemur tilbúið með
öllu. Við getum líka hjálpað við
flutning á húsunum og aðstoðað
með undirstöður og fleira. Þetta
eru því einstök sumarhús og á
frábæru verði,“ segir Sveinn Enok,
en afhendingartími er átta til tólf
vikur.
40 fermetra sýningarhús er stað-
sett í Húsasmiðjunni í Skútuvogi.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn
Enok, vörustjóri, í síma 848 3103
eða á netfanginu sveinnj@husa.is
Rómantísk kot - eitt með öllu
Fullbúin heilsárs- og orlofshús hafa slegið í gegn í Húsasmiðjunni í sumar. Þau eru einfaldlega hífð
ofan á undirstöðurnar og því strax hægt að byrja að njóta sveitasælunnar í einstökum húsum.
Orlofshús Húsasmiðjunnar eru
vönduð og afhendast fullkláruð
með innréttingum, baði og eldhúsi.
Sveinn Enok vörustjóri við sýningarhúsið í Húsasmiðjunni. Sjón er sögu ríkari. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það er enginn
falinn kostnaður í
húsunum og engin
áhætta tekin því húsið
kemur tilbúið með öllu.
Húsin afhendast fullkláruð að innan og utan ásamt palli
Lóðrétt tvímáluð furuklæðning í lit að eigin vali - PVC gluggar og útihurðir í dökkgráum lit, tvöfalt einangrunargler. Vönduð gólfefni - Eldhúsinnrétting með ísskáp, örbylgjuofni, bökunarofni,
vaski og blöndunartækjum. Baðinnrétting með vaski og blöndunartæki, ásamt salerni og sturtuklefa. Rafmagnsofnar, vatnshitari fyrir neysluvatn, innfelld ljós, yfirfelldar fulningahurðar
fylgja ásamt fleiru. Húsin eru tilbúin til notkunar frá framleiðanda.
Fullbúin og vönduð heilsárshús/orlofshús sem uppfylla kröfur íslenskrar byggingareglugerðar.
Húsin koma fullkláruð að innan sem að utan ásamt fullbúnu eldhúsi og baðherbergi. Húsin fást
í mismunandi stærðum og gerðum en hægt er að aðlaga húsin að þörfum hvers og eins.
Nýtt í Húsasmiðjunni
Fullbúin orlofs- eða íbúðarhús
Vönduð gólfefniHúsið fer beint á undirstöður
Baðinnrétting með vaski PVC gluggar og hurðir
Auðvelt í flutningum
Eldhúsinnrétting með ísskápVönduð viðarklæðning
Fullbúið að innan
Afhendingartími 8-12 vikur
Hús 35 m2 með 20 m2 palli
Sjá nánar á husa.is
Hús 40 m2 með 20 m2 palli
Sjá nánar á husa.is
Kynningarverð (m.v. EUR = 152 kr.)
8.900.000kr
Kynningarverð (m.v. EUR = 152 kr.)
Kynningarverð (m.v. EUR = 152 kr.)
7.900.000kr
8.390.000kr
Hús 31,5 m2 með 20 m2 palli
Sjá nánar á husa.is
B
irt
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
llu
r
og
m
yn
da
ví
xl
.
40 m2 húsið
er til sýnis í
Skútuvogi
KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 8 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 EININGAHÚS