Vísbending - 24.01.2017, Side 4
4 V Í S B E N D I N G • 3 . T B L . 2 0 1 7
Aðrir sálmar
Merkjasendingar
Ritstjóri: Bjarni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Jóhannes Benediktsson
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík.
Sími: 512 7575.
Net fang: joiben@heimur.is.
Prentun: Heimur. Upp lag: 700 eintök.
Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita
án leyfis út gef anda.
Atferli allt og æði einstaklings hefur mikil áhrif á skynjun samferðar-
manna á viðkomandi. Í viðskiptum,
stjórnmálum og annars staðar þar sem
hagsmunir hlutaðeigenda eru í húfi
skiptir traust milli gagnaðila höfuð-
máli, skipar þá atferlisgreining ekki
minnstan sess í að koma á þessu trausti.
Alla jafna vilja menn frekar eiga við-
skipti við þá sem eru hvað líkastir þeim
sjálfum, með öðrum orðum þá sem þeir
treysta að muni haga sér á svipaðan hátt
við hagsmunamat.
Hópar verða til um ákveðin gildi og
hegðun. Þeir sem víkja frá hinu viður-
kennda atferli gætu þurft að hafa meira
fyrir því að ávinna sér traust hinna.
Thorstein Veblen lýsir því í riti sínu
The theory of the leisure class að þau
skilaboð sem felast í tiltekinni neyslu
og athöfnum skipta einstaklinginn oft
á tíðum meira máli en hlutlægur ábati
neyslunnar eða athafnanna. Menn
gangi þó mislangt í því eins og öðru.
Golflöngun grípur margan, nú þegar
vorað hefur jafnsnögglega og haustaði.
Þó því sé ekki að neita að íþróttin geti
verið afar gefandi, þegar menn hafa
komist upp á lagið, gæti verið áhuga-
vert að ráða í þau skilaboð sem iðkun
hennar hefur í för með sér.
Að ná upp færni í íþróttinni krefst
gríðarlegs tíma, jafnvel þannig að
vinnuálag má ekki trufla iðkunina um
of. Útbúnaður allur er kostnaðarsamur
og sérhæfður. Iðkun og útbúnaður
er þó hvort um sig ákveðin aðgangs-
hindrun, upp á hvorugt má skorta til
að menn geti slegið svo vel sé. Utan
frá mætti því ætla að íþróttin hentaði
best þeim sem ættu vel til hnífs síns og
skeiðar, án þess að þurfa að sinna dag-
launavinnu. Svo er þó alls ekki, eins og
vinsældir íþróttarinnar vitna um, og
við hin reynum áfram að öngla saman
fyrir árgjöldunum og koma börnunum
í pössun. bg
framh. af bls. 2
voru um 7% af öllum nýjum bílum.
Sökum þess hve útbreiðsla er tak-
mörkuð hefur enn sem komið er ekki
reynst hagkvæmt að reka víðtækt
þjónustunet fyrir rafbíla. Fyrirtækið
Orka náttúrunnar starfrækir þrett-
án hraðhleðslustöðvar, þar af sex á
höfuðborgarsvæðinu. Alls eru fimm-
tíu hleðslustöðvar á landinu öllu, þar
af einungis fjórar norðan Borgarness
og austan Selfoss. Margar þeirra eru
skráðar í einkaeigu.4
Það hefur hins vegar yfirleitt verið
svo, á hinu strjálbýla Íslandi, að ferða-
langar hafa þurft að skipuleggja ferðalög
sín með tilliti til eldsneytisframboðs á
leiðinni. Svo er einnig með rafbílana.
Drægni þeirra er oft einungis 100-150
km. og því þarf að skipuleggja ferðalag-
ið vel um gisnustu kafla hleðslunetsins.
Orka náttúrunnar hefur nú fengið
styrk frá Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytinu til þess að setja upp fjórt-
án hraðhleðslustöðvar við hringveginn,
með það að markmiði að hægt verði að
komast hringinn á hvaða rafbíl sem er.
Vonir standa einnig til þess, að und-
ir lok áratugarins verði drægni rafbíla
komin upp fyrir 400 km. á einni
hleðslu.
Bent hefur verið á að bílaleigur og
Búrfellsvirkjun hóf starfsemi árið 1972.
Hún er búin sérstökum útbúnaði til
varnar þess að ís lendi í virkjunum
Þjórsár. Búrfellsvirkjun hefur sex Francis
túrbínur (6 x 45 MW), og uppsett afl
er 270 MW með framleiðslugetu á árs-
grundvelli upp á 2.300 GWh. Lóðrétt
fallhæð er 115 metrar og hámarksflæði
300 m3/s.
Vatnajökull er stærsti jökull Evrópu
og í grennd hans starfrækir Landsvirkjun
stærstu vatnsaflsvirkjun á Íslandi, Fljóts-
dalsstöð, sem náði fullum afköstum árið
2007.
Fallgöng Landsvirkjunar sem liggja
að Fljótsdalsstöð og færa vatn af lónum á
hálendi eru um 72 km að lengd, þar sem
vatnið fellur um 600 metra áður en það
knýr sex túrbínur í stöðvarhúsinu. Upp-
sett afl er 690 MW, sex Francis túrbínur
(6 x 115 MW), og framleiðslugeta á árs-
grundvelli 4.800 GWh. Lóðrétt fallhæð
er 599 m, og hámarksflæði 144 m3/s.
Landsvirkjun starfrækir sextán virkj-
anir á landinu. Þar af eru eftirtaldar
vatnsaflsvirkjanir: Blanda, Búðarháls,
framh. af bls. 3
Goðafoss í Bárðardal í vetrarbúningi. Fossinn er
dæmi um vatnsfall sem ekki stendur til að virkja.
Mynd höfundar (2014).
aðrir stórkaupendur að bílum geti leikið
hlutverk í að hraða rafbílavæðingu
hérlendis; þar eru á ferð fyrirtæki sem
þarfnast mikillar árlegrar fjárfestingar í
nýjum bílum, sem á endanum stýrir að
nokkru leyti framboði á markaði með
notaða bíla. Jafnvel má hugsa sér að
einhvers konar fjárhagslegir hvatar verði
sérstaklega veittir bílaleigunum umfram
aðra, þannig að í stað þess að þeim hafi
áður verið hyglað óháð orkugjöfum í
formi niðurfellingar vörugjalda verði
þeim eftirleiðis umbunað fyrir að velja
umhverfisvænni kosti.
Verði rafbílar í auknum mæli fyrir
valinu við flotaendurnýjun bílaleiga
muna þeir fyrr komast í umferð hjá
hinum almenna notanda í gegnum
endursölu. Eigi bílarnir að nýtast
kúnnum leignanna sem skyldi þurfa
þeir þó að geta notað þá óhindrað um
land allt og aukin notkun bílaleiga því
einnig stuðlað að hraðari uppbyggingu
þjónustunetsins. Þegar búið er að
stoppa í helstu götin er hinum almenna
borgara ekkert að vanbúnaði.
Heimildir:
1. Global Auto Report, 19. janúar 2017.
Scotiabank.
2. Útreikningar Vísbendingar.
3. Morgunblaðið, 14. janúar 2017.
4. www.plugshare.com kortleggur útbreiðslu
hleðslustöðva.
Búrfell, Fljótsdalur, Hrauneyjafoss,
Írafoss, Laxá I, Laxá II, Laxá III, Ljósa-
foss, Sigalda, Steingrímsstöð, Sultar-
tangi og Vatnsfell. Jarðvarmavirkjanir
eru Bjarnarflag og Krafla.2
Heimildir:
1. Nukissiorfiit Grønlands Energiforsyning
(2014).
2. Frekari heimildir: Kristjánsdóttir (2015).
Sustainable Energy Resources and Economics
in Iceland and Greenland. Springer. New
York.