Vísbending - 01.11.2019, Side 4
Aðrir sálmar
Ritstjóri: Magnús Halldórsson
Ábyrgðarmaður: Magnús Halldórsson
Útgefandi: Kjarninn miðlar ehf.,
Laugavegi 3,101 Rvk.
Sími: 551 0708. Net fang: visbending@kjarninn.is.
Prentun: Kjarninn. Upp lag: 700 eintök.
Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita
án leyfis út gef anda.
Þörf á breytingum
4 V Í S B E N D I N G • 4 1 . T B L . 2 0 1 9
tæknigeiranum, líkt og IBM, Microsoft
og Nokia.
Hagfræðingurinn og
nóbelsverðlaunahafinn Jean Tirole tekur
undir það sjónarmið og bætir við að
eðlilegt sé að fyrirtæki sem hefðu mikla
stærðarhagkvæmni yrðu stór. Það sem
skipti mestu máli fyrir neytendur væri
hvort auðvelt væri fyrir fyrirtæki að
komast inn á markaðinn. Í því samhengi
nefndi Tirole einnig að hingað til hafi
verið tiltölulega mikil hreyfing á stærstu
fyrirtækjunum á tæknimarkaðnum, til
að mynda tók Google við af AltaVista
sem helsta leitarvélin og Facebook
tók við af MySpace sem vinsælasti
samfélagsmiðillinn.8
Slagorðið „ekki vera vondur“ er ekki
enn notað hjá Google og óvíst er hvort
eigendur fyrirtækisins séu jafneinbeittir
í að „gera heiminn að betri stað“
eins og þeir voru þegar fyrirtækið var
skráð á markað fyrir 15 árum síðan.
Leitarvélin, ásamt tæknirisunum
Amazon og Facebook hafa nýtt sér
markaðsráðandi stöðu sína til að auka
umsvif sín og koma í gegn vafasömum
starfsháttum, en vegna þess hafa fræði-
og stjórnmálamenn kallað eftir strangara
regluverki á tæknimarkaðnum eða
jafnvel beina íhlutun hins opinbera
í fyrirtækin. Hins vegar er ekki víst
hversu mikið regluverk þarf til að halda
valdi tæknirisanna í skefjum, þar sem
mögulegt er að markaðsráðandi staða
þeirra á tæknimarkaðnum sé ótrygg.
Heimildir
1) https://www.sec.gov/Archives/edgar/
data/1288776/000119312504142742/
ds1a.htm#toc59330_1
2) https://www.ft.com/content/
a2118338-4669-11e9-b168-
96a37d002cd3
3) https://www.nytimes.com/2017/07/01/
technology/yelp-google-european-union-
antitrust.html
4) https://www.theguardian.com/technol-
ogy/2018/nov/13/amazon-hq2-second-
headquarters-new-york-city-virginia
5) https://www.bloomberg.com/news/
articles/2016-04-20/got-a-hot-seller-on-
amazon-prepare-for-e-tailer-to-make-
one-too
6) https://medium.com/@teamwarren/
heres-how-we-can-break-up-big-tech-
9ad9e0da324c
7) https://www.project-syndicate.org/com-
mentary/platform-economy-digital-feu-
dalism-by-mariana-mazzucato-2019-10
8) https://qz.com/1310266/nobel-win-
ning-economist-jean-tirole-on-how-to-
regulate-tech-monopolies/
Myndin á síðu tvö í síðasta tölublaði
Vísbendingar var ranglega merkt. Rétt
merking er „Stýrivextir (repo) sænska
seðlabankans 2007-2017 og vaxtaferlar
seðlabankans 2010-2017.“ Vísbending
biðst velvirðingar.
Í þessari viku komu fram nýjar
upplýsingar um stöðu mála hjá kerfislægt
mikilvægu bönkunum þremur, Arion
banka, Íslandsbanka og Landsbankanum.
Þeir skiluðu allir uppgjörum sínum,
og nú liggur fyrir staða mála fyrir fyrstu
níu mánuði ársins. Arðsemi bankanna
telst nú vera í lægra lagi, í alþjóðlegum
samanburði.
Arðsemi eigin fjár var á bilinu 1,6
prósent til 9 prósent. Lægst hjá Arion
banka en hæsta hlutfallið var hjá
Landsbankanum. Þannig hefur það verið
um nokkurt skeið, en svo virðist sem
Landsbankinn sé lengst kominn í því að
treysta rekstrargrunninn til framtíðar litið.
Kostnaðarhlutfall bankans er áberandi
lægst, rúmlega 41 prósent, en það er mun
hærra hjá bæði Íslandsbanka og Arion
banka, eða á bili 55 til 65 prósent.
Í þessum uppgjörum, eins og þeim
sem sést hafa undanfarin misseri, þá
kemur berlega fram að nokkuð er að
hægjast á hagkerfinu frá því sem áður
var. Í hagspá Landsbankans, sem birtist
á miðvikudaginn, kemur fram sú spá að
atvinnuvegafjárfesting muni draga saman
um rúmlega 21 prósent á þessu ár, og
gerir spáin ráð fyrir samdrætti upp á 0,4
prósent í hagkerfinu.
Þrátt fyrir þetta, þá hafa flestar hagspár
átt eitt sameiginlegt. Í þeim er talað um
trausta stöðu þjóðarbússins vegna þess
að skuldirnar eru ekki óviðráðanlegar
núna eins og þær voru fyrir hrun
fjármálakerfisins.
En það er sár vöntun á því að það
skapist aðstæður fyrir viðspyrnu í
atvinnulífinu. Samdráttur í innflutningi
hefur verið mikill það sem af er ári,
eða yfir 6 prósent. Þetta sýnir að
einkaneyslan er að dragast mikið saman.
En allar forsendur ættu að vera fyrir því að
fyrirtæki nái vopnum sínum á nýjan leik,
og hlutirnir snúist til betri vegar. Það þarf
hins vegar umtalsvert átak til, frá því sem
nú er.