Vísbending


Vísbending - 22.11.2019, Blaðsíða 1

Vísbending - 22.11.2019, Blaðsíða 1
Vikurit um viðskipti, efnahagsmál og nýsköpun V Í S B E N D I N G • 4 3 . T B L . 2 0 1 9 1 Sundabraut og Sundahöfn 22. nóvember 2019 43. tölublað 37. árgangur ISSN 1021-8483 Páll Hermannsson Verkfræðingur Spár hingað og þangað. Skipaflutningar. Verðbólgan í skefjum. Vaxtaverkir. framh. á bls. 4 Það hefur staðið lengi til að stytta leiðina frá meginhluta höfuðborgarsvæðisins til héraða norðan borgarinnar með svokallaðri Sundabraut. Ein ástæða fyrir drætti á að koma þessu í framkvæmd er val á leið yfir í Gufunes og þaðan til norðurs. Brú var talin vænlegur kostur, en til að Samskip gætu lagt skipum að bryggju fyrir framan vöruhús sitt þurfti það háa brú að kostnaðurinn jókst. Brúin yrði kennileiti í borginni, sem gerir sjónrænar og listrænar kröfur og ekki væri víst að göngu- og hjólreiðafólk gæti notað brúna. Síðan hefur komið fram tillaga frá nefnd samgönguráðherra og Samtaka sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu um að byggja lágbrú, sem myndi leiða til þess að skip Samskipa þyrfti að afgreiða norðan brúarinnar. Fjarlægð er óveruleg. Eimskip hefur ítrekað flutt meginviðlegu sína lengra frá meginvöruhúsinu. Sumir vilja þetta ekki. Af hverju veit greinarhöfundur ekki. Rökin gegn lágbrúnni halda ekki vatni. Stjórn Faxaflóahafna hefur sent frá sér yfirlýsingu sem leiddi til þessarar fyrirsagnar í Morgunblaðinu: Hafnarstjórnin hafnar lágbrú, og er þar vitnað í formann stjórnarinnar. Því er haldið fram að „lágbrú hafi almennt áhrif á þróunarmöguleika Sundahafnar, tekjuþróun og leiði af sér fjárfestingaþörf, sem ekki er tímabær í dag“. Þessi yfirlýsing kemur eftir fund stjórnar Faxaflóahafnar þar sem 7 síðna minnisblað hafði verið lagt fram. Í minnisblaðinu er á einum stað minnst á mjög gott yfirlit Ráðgjafarsviðs KPMG frá því í október 2018 þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að gnótt lands sé til gámaafgreiðslu í Sundahöfn í marga áratugi miðað við vöxt í gámaflutningum. Byggt er á spá þar sem gert er ráð fyrir að gámafjöldi um Sundahöfn vaxi um 78% á 23 ára tímabili. Í minnisblaðinu er gert mikið úr hættu á að lágbrú dragi úr nýtingarmöguleikum og að leiguhafar lóða geti mögulega átt rétt á bótum vegna slíkrar brúar. Nefndar eru lóðir vítt og breitt og ýmsar upphæðir. Uppi eru tvær hugmyndir um brúarstæði, sitt hvorum megin Holtagarða. Brúarstæði norðan Holtagarða mundi vissulega draga mjög úr notkunarmöguleikum Vogabakka. Hann nýta nú Samskip. Þar kemur að auki stöku frystiskip og frystitogari, og lítil stórflutningaskip sem losa nálægt vörugeymslum byggingarvöruinnflytjenda. Ef brúarstæðið yrði norðan Holtagarða þyrfti að færa gámaafgreiðslu Samskipa norður fyrir, sem gerir að fjarlægð frá skipi að Holtagarðar er stóra húsið neðan bygginga Kleppsspítala. Nyrðri leið liggur sunnan Klepps og norðan Holtagarða yfir flæmi óseldra bíla. Syðri leiðin liggur sunnan Holtagarða yfir gámasvæði Samskipa í 10–20 metra hæð. Skemman neðst til hægri og sú næsta fyrir norðan missa nálægð við skipalægi, nema að farmurinn komi með skipum með lága yfirbyggingu.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.