Morgunblaðið - 15.01.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Utanríkisráðherrar Bretlands,
Frakklands og Þýskalands tilkynntu í
gær að þeir hygðust vísa brotum Ír-
ana á kjarnorkusamkomulaginu frá
2015 í sérstakt úrlausnarferli, þar
sem Íran hefði ítrekað gerst brotlegt
við ákvæði þess. Lýstu þeir því jafn-
framt yfir að ríkin þrjú hefðu þrátt
fyrir allt áfram trú á gildi samkomu-
lagsins við Íran og að þau vildu varð-
veita það ef kostur væri á.
Brot Írana þýddu hins vegar að
ríkin hefðu engan valkost annan en að
vísa deilunni áfram, en samkomulagið
gerir ráð fyrir að hægt sé að vísa deil-
um um framkvæmd samningsins til
sameiginlegrar nefndar. Ef ekki tekst
að finna lausn þar fer deilan á end-
anum til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna, sem gæti þá ákveðið að
beita Írana refsiaðgerðum.
Í yfirlýsingu ráðherranna eru
samningsbrot Írana tíunduð, en þeir
hafa gengið lengra í auðgun úrans á
síðustu mánuðum, og segir þar að að-
gerðir Írana geti haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir takmörkun á út-
breiðslu kjarnorkuvopna.
Stjórnvöld í Íran fordæmdu aðgerð
Evrópuríkjanna þriggja í gær og
sögðu að ef þau vildu „misnota“ deilu-
úrræði samkomulagsins yrðu þau
einnig að „taka afleiðingunum“.
Opinn fyrir „samningi Trumps“
Í yfirlýsingu ríkjanna þriggja var
sérstaklega tekið fram að vonir þeirra
stæðu til að hægt yrði að sannfæra Ír-
ana um að fylgja samkomulaginu á
ný. Þá lýstu ríkin því yfir að þau
myndu ekki taka þátt í tilraunum Do-
nalds Trump Bandaríkjaforseta til
þess að beita Írana „hámarksþrýst-
ingi“.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, lýsti því hins vegar yfir í
gær að hann væri opinn fyrir því að
vinna að nýju samkomulagi sem
byggði á hugmyndum Trumps. „Ef
það þarf að henda samkomulaginu
ættum við að fá nýtt í staðinn og fáum
þá Trump-samkomulag í staðinn,“
sagði Johnson og bætti við að núgild-
andi samkomulag væri gallað frá
sjónarhóli Bandaríkjamanna.
Josep Borrell, utanríkismálastjóri
Evrópusambandsins, sagði hins veg-
ar að það skipti nú öllu máli að bjarga
samkomulaginu frá 2015.
Enn mótmælt í Íran
Stjórnvöld í Íran tilkynntu í gær að
búið væri að handtaka nokkra af þeim
sem bæru ábyrgð á því að úkraínsk
farþegaflugvél var skotin niður í mis-
gripum á miðvikudaginn í síðustu
viku. Ekki kom fram í tilkynningu
yfirvalda hverjir eða hversu margir
hefðu verið handteknir. Þá voru hald-
in mótmæli fjórða daginn í röð vegna
mistakanna, en háskólastúdentar
virðast vera í miklum meirihluta mót-
mælenda.
Um 200 grímuklæddir stúdentar
söfnuðust saman við háskólann í
höfuðborginni Teheran og hrópuðu
vígorð gegn klerkastjórninni. Gegnt
þeim stóð annar hópur mótmælenda,
hliðhollur stjórnvöldum, sem for-
mælti Bretlandi, en Rob Macaire,
sendiherra Bretlands í Íran, var
handtekinn um helgina fyrir meinta
þátttöku í mótmælum. Brenndu þeir
mótmælendur pappaspjald með út-
prentaðri mynd af Macaire. Lög-
reglumenn héldu mótmælenda-
hópunum tveimur í sundur.
Talsmaður íranska dómskerfisins
lýsti því yfir í gær að Macaire væri að
þeirra áliti „persona non grata“ í Ír-
an, sem er fyrsta skrefið að því að vísa
sendiherranum úr landi. Utanríkis-
ráðuneyti landsins mun hins vegar
taka lokaákvörðunina um brottvísun
Macaire.
Þá þvertóku stjórnvöld í Íran fyrir
að lögreglumenn hefðu skotið á mót-
mælendur í Teheran á mánudaginn,
en sjónarvottar sögðu að gúmmí-
kúlum hefði verið beitt til þess að
dreifa mannfjöldanum. Sérfræðingar
í málefnum Írans sögðu við AFP-
fréttastofuna að lögreglan þyrfti að
gæta sín að enginn létist í átökum við
hana, þar sem það gæti orðið kveikjan
að enn fjölmennari mótmælum.
Vísa Íran til Sameinuðu þjóðanna
Bretar, Frakkar og Þjóðverjar krefjast þess að Íranar fylgi ákvæðum kjarnorkusamkomulagsins
Mótmælt í Íran fjórða daginn í röð Stjórnvöld hefja handtökur vegna árásarinnar á farþegavélina
AFP
Mótmæli Stúdentar komu saman við háskólann í Teheran og mótmæltu klerkastjórninni í Íran.
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
DEKKJAVEISLA
ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR AF GÆÐA DEKKJUM
15. - 24. JANÚAR