Morgunblaðið - 15.01.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.01.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020 F á k a f e n i 9 1 0 8 R e y k j a v í kF á k a f e n i 9 1 0 8 R e y k j a v í k ÚT SAL AN ER HA FIN 3 0 - 7 0 % A f s l á t t u r Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Biskup Íslands hefur skipað sr. Sig- rúnu Óskarsdóttur sem fangaprest þjóðkirkjunnar. Hún er fyrsta konan sem gegnir því starfi en áður hafa þrír karlar sinnt því. Sérstakt fangaprestsemb- ætti var sett á laggirnar um ára- mótin 1970. Síðast gegndi embættinu sr. Hreinn Há- konarson. Starf fanga- prests var auglýst laust til umsóknar fyrir nokkru og sóttu átta um. Um- sóknir fóru til matsnefndar, svo sem reglur gera ráð fyrir, og skilaði hún niðurstöðu sinni til biskups, að því er fram kemur á heimasíðu kirkjunnar. Sr. Sigrún Óskarsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1965. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1985 og guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1991. Síðar lauk hún sálgæslunámi í Ósló. Sr. Sigrún var vígð árið 1991 til Laugarnessprestakalls sem aðstoðar- prestur og leysti af sem sjúkrahús- prestur á Landspítalanum um hríð. Þá var hún framkvæmdastjóri Æsku- lýðssambands kirkjunnar í Reykja- víkurprófastsdæmum frá 1994-1995. Hún var prestur í norsku kirkjunni 1996-1997 og síðan ráðin sem prestur íslenska safnaðarins í Ósló frá 1997 til 2001. Síðan var hún skipuð prestur í Árbæjarsókn í Reykjavík árið 2001 og lét af þeim störfum árið 2015. Þá rak hún um skeið ásamt öðrum sæl- keraverslun á Selfossi, Fjallkonuna, en verslunin seldi meðal annars mat- vöru beint frá býli. Undanfarin ár hefur hún verið starfsmaður Útfar- arstofu kirkjugarðanna. Eiginmaður hennar er Einar Már Magnússon byggingatæknifræðingur. sisi@mbl.is Fyrsta konan í starf fangaprests  Séra Sigrún Óskarsdóttir skipuð Sigrún Óskarsdóttir Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Komum fiskiskipa í hafnir Faxaflóa- hafna, í Reykjavík og á Akranesi, hefur farið fækkandi undanfarin ár og í fyrra voru þær færri en nokkru sinni fyrr í sögunni. Samkvæmt yfirliti á heimasíðu Faxaflóahafna sf. voru komur fiski- skipa í fyrra 331 í samanburði við 449 komur árið 2018. Er fækkunin 26%. Árið 2010 voru skipakomur 754 og er því um 56% fækkun að ræða síðasta áratuginn. Þessar tölur vekja athygli því í Reykjavík eru nokkur öflug út- gerðarfyrirtæki með starfsemi sína. „Það eru nokkrar samverkandi ástæður fyrir því að komum fiski- skipa fækkaði í fyrra,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóhafna. Fyrst nefnir hann breytingar á skipa- stól. Skip hafi verið seld og öðrum flaggað til Grænlands. Einum togara hafi verið lagt, Sturlaugi H. Böðvars- syni. Síðan hafi millilandanir fyrir vestan og norðan haft einhver áhrif á komur skipa til Reykjavíkur. Fisk- kaup, sem gera út Kristrúnu RE, hafi að mestu landað fyrir norðan og flutt fiskinn landleiðina í vinnslu. „Síðan hafa nokkrir smærri báta ekki skilað sér til okkar, m.a. þar sem ekki hefur verið veiddur humar í Faxaflóa a.m.k. 2019. Að ógleymdu loðnuleysi, sem þýðir að uppsjávar- skipin hafa ekki verið að veiðum hér vestanlands,“ segir Gísli. Fækkar í skipastólnum Hann bætir því við að þetta séu reyndar óvenju miklar breytingar á stuttum tíma og spurning hvernig þróunin verði á næstu misserum. Ekki líti vel út með loðnuveiðar á næstunni. Til lengri tíma litið bendir Gísli á að eftirtalin skip hafi horfið úr skip- stól Reykvíkinga án þess að önnur hafi komið í staðinn: Ásbjörn, Ing- unn, Ottó N. Þorláksson, Sturlaugur H. Böðvarsson (nú Mars), Þerney og Brimnes. Þá hafi Venus aðeins komið tvisvar í höfn í fyrra og Víkingur þrisvar. Fram kemur á heimasíðunni að á árinu 2019 komu samtals 1.378 skip til Faxaflóahafna. Er það fækkun um 97 skipakomur milli ára, eða rúmlega 7%. Mest fjölgaði komum farþega- skipa á árinu 2019, eða um rúmlega 25%. Tankskip komu 10% oftar og flutningaskip 3% oftar. Hins vegar fækkaði mest í komum annarra skipa (þ.e. skúta, snekkja og skipa sem flokkast ekki undir ofangreindar teg- undir), eða um rúmlega 49%. Komum rannsóknar- og varðskipa fækkaði um 27%. Samanlögð stærð skipa sem komu til Faxaflóahafna árið 2018 var 12.143.107 brúttótonn. Hins vegar var heildarstærðin komin upp í 13.592.129 brúttótonn árið 2019. Hér munar mestu um að stórum skemmtiferðaskipum hefur fjölgað mikið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Uppskipun Áhugasamir áhorfendur á Þúfunni fylgjast með löndun afla úr skipi Brims við Norðurgarð á Granda. Löndunum fiskiskipa hefur stórfækkað  Komur fiskiskipa til Faxaflóahafna voru 331 í fyrra Ákvæði um keðjuábyrgð sem sporna á við mögulegri misnotkun á vinnu- afli hér á landi hefur verið innleitt í lög um opinber innkaup, en það er þáttur í aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn félagslegum undirboðum og brotum á vinnumarkaði. Samkvæmt upplýsingum frá fjár- málaráðuneytinu hafa jafnframt ver- ið unnar leiðbeiningar, þar sem fjallað er um keðjuábyrgð og hvern- ig verktakar og opinberir aðilar geti uppfyllt lagalegar skyldur sem stuðla að ábyrgum vinnumarkaði á Íslandi. Hið nýja ákvæði um keðjuábyrgð á einnig að koma í veg fyrir undirboð og óeðlilega samkeppnishætti á vinnumarkaði. Það er sagt í sam- ræmi við stefnuyfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar þar sem lýst er yfir vilja til að vinna með aðilum vinnu- markaðarins að ábyrgum vinnu- markaði. Keðjuábyrgðin snýr fyrst og fremst að verklegum framkvæmd- um. Hún felur í sér að aðalverktaka er gert skylt að tryggja og bera ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn hans, undirverktaka eða starfsmanna- leigna, sem koma að framkvæmd samnings fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi í samræmi við gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni. Opinberum aðila sem kaupanda ber skylda til að gera grein fyrir ábyrgð aðalverktaka í útboðs- gögnum. Honum er einnig heimilt, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að greiða vangoldnar verktaka- greiðslur til undirverktaka og ann- arra starfsmanna, sem svara til launatengdra greiðslna, á kostnað aðalverktaka, standi hann ekki í skil- um með greiðslur. Spornað gegn mis- notkun á vinnuafli  Ákvæði um keðjuábyrgð komið í lög Morgunblaðið/Kristinn Vinnumarkaður Sporna á gegn misnotkun á vinnuafli hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.