Morgunblaðið - 15.01.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stórfjölgun læknismeðferða erlendis
Fjölgun umsókna og auknar endurgreiðslur vegna langra
biðlista 43 milljónir fyrstu átta mánuðina á síðasta ári
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Sífellt fleiri Íslendingar leita sér
læknismeðferðar erlendis vegna
langra biðlista eftir aðgerðum hér á
landi og hafa greiðslur vegna þeirra
stóraukist.
Endurgreiðslur Sjúkratrygginga
Íslands (SÍ) á fyrstu átta mánuðum
síðasta árs voru álíka miklar og á öllu
árinu þar á undan. Fram kemur í
svari SÍ til Morgunblaðsins um end-
urgreiðslur vegna lækniskostnaðar
erlendis að þær námu rúmum 43
milljónum á fyrstu átta mánuðum
seinasta árs en voru 43,8 milljónir á
árinu á undan. Árið 2017 voru greidd-
ar út tæpar 26 milljónir króna til sjúk-
linga sem þurftu að leita sér lækn-
ismeðferðar erlendis í kjölfar þriggja
mánaða biðar hér heima þar sem talið
var að bið eftir nauðsynlegri meðferð
væri óviðunandi af læknisfræðilegum
ástæðum.
329 umsóknir frá 2015
Afgreidd voru alls 32 mál á tíma-
bilinu janúar til ágústloka í fyrra en
26 mál á öllu árinu 2018. Aðeins voru
fjögur slík mál afgreidd árið 2016 og
þrjú 2015.
Umsóknum hefur stórfjölgað. Frá
2015 hafa SÍ borist 329 umsóknir um
endurgreiðslur vegna læknismeð-
ferðar erlendis eftir langa bið á bið-
listum hér. Þær voru 145 á fyrstu átta
mánuðunum í fyrra, aldrei verið fleiri
innan eins árs.
Heilbrigðiskerfi Aðsetur Sjúkra-
trygginga Íslands er í Grafarholti.
Endurgreiðslur vegna lækniskostnaðar erlendis
50
40
30
20
10
0
150
120
90
60
30
0
Endurgreiðslur, m.kr.
Fjöldi umsókna
Fjöldi greiddra mála
*Tölur fyrir 2019 eru frá jan. til ágúst
Heimild: Sjúkratryggingar Íslands
2015 2016 2017 2018 2019*
7,8 6,0
26,0
43,9 43,2
Milljónir króna Fjöldi
145
32
jan.-
ágúst
Það var strekkingsvindur að norðan á Lauga-
veginum í gærkvöldi þegar þessar ungu konur
voru þar á ferð og eins gott að halda fast um
höfuðfötin svo þau færu ekki á flug. Það er
ekkert vorveður í kortunum enda janúar rétt
hálfnaður og aðalvetrartíminn eftir. Áfram
verður kalt í veðri næstu daga, frost 0-4 stig,
og snýst í austanátt með nokkrum vindi. Enn er
gul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu eins
og víðar á landinu. Verst er veðrið á Norður-
landi og Vestfjörðum og verður svo eitthvað
áfram.
Vetrarveður í höfuðborginni
Morgunblaðið/Eggert
Rok í Reykjavík
Um 400 börn eru
sótt eftir klukkan
16.30 úr leikskól-
um borgarinnar á
hverjum degi en
það mun nú
breytast.
Meirihluti
skóla- og frí-
stundaráðs
Reykjavíkur-
borgar samþykkti
í gær að stytta starfstíma leikskóla
þannig að þeir verði opnaðir klukkan
7.30 og lokað klukkan 16.30.
Þessi breyting á að taka gildi 1.
apríl.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins mótmæltu þessari ákvörðun og
lögðu fram tillögu um sveigjanlegri
viðverutíma barna á leikskólum og
starfsfólks leikskólanna.
Marta Guðjónsdóttir, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, segir að
ekki sé nóg með að breytingin komi
niður á fjölda fólks heldur sé for-
eldrum einnig gefinn of skammur
tími til að gera aðrar ráðstafanir.
„Ég held að þetta komi sérstaklega
niður á þeim foreldrum sem hafa ekki
sveigjanlegan vinnutíma eða geta
ráðið sínum vinnutíma sjálfir. Sömu-
leiðis er hætt við því að styttingin
leiði til kynjahalla á kostnað kvenna.“
ragnhildur@mbl.is
Stytting
gæti valdið
kynjahalla
Daglegur starfs-
tími leikskóla styttur
Marta
Guðjónsdóttir
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Heildstæð endurskoðun kosninga-
laga, úrbætur í heilbrigðiskerfinu,
samgönguáætlun, fjármálaáætlun
og fleira eru á meðal þeirra stóru
verkefna sem Alþingi stendur
frammi fyrir á komandi vikum og
mánuðum.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti
Alþingis, fundaði með þingflokks-
formönnum í gær og segir að þing-
menn virðist hafa komið vel undan
jólum. Þinghald hefst að nýju næst-
komandi mánudag.
Samgönguáætlun og heilbrigðis-
kerfið verða með stærstu málum
þingsins, að mati Loga Einarssonar,
formanns Samfylkingarinnar.
„Það verður mikil umræða um
heilbrigðiskerfið okkar og þann van-
búnað sem það býr við,“ segir Logi.
Hann segir að flokkana greini á
um það hvernig fjármagna eigi sam-
gönguáætlun og á þessu þingi sé
einnig mikilvægt að taka sjávar-
útvegsmálin og auðlindaákvæðið
föstum tökum.
Logi telur að umræðan á þessu
þingi verði tengdari gildum flokk-
anna en áður.
„Nú fer að líða að kosningum og
þá fara flokkarnir að sýna fyrir hvað
þeir standa. Ríkisstjórnin mun ekki
komast áfram upp með að tefla bara
fram lægsta samnefnara, sem er af-
leiðing þess að það eru ólíkir flokkar
í stjórn, og mun þurfa að sýna sitt
rétta andlit.“
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Miðflokksins, segir
að mörg mál verði umdeild, helst þá
heilbrigðis- og velferðarmál og fjár-
málaáætlun. Gunnar segir að hún
muni líklega ekki gera ráð fyrir
skattalækkunum eða ívilnunum fyr-
ir atvinnulífið. Hann telur einnig að
lítill friður verði um stefnu
umhverfisráðherra þar sem hann
boði að „umhverfisvæn orka á Ís-
landi verði ekki nýtt til fulls“ og
einnig stefnu hans um miðhálend-
isþjóðgarð.
Ríkisstjórnin þurfi að „sýna
sitt rétta andlit“ á Alþingi
Heilbrigðismál og samgöngumál líklega í brennidepli