Morgunblaðið - 15.01.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.01.2020, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. J A N Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  12. tölublað  108. árgangur  SJÓNRÆN UPPLIFUN AF SMÁBÆJUM ÞÚSUND ÍBÚÐIR VIÐ KRINGLUNA FORSTJÓRI HEILSUGÆSLU SEXTUGUR VIÐSKIPTAMOGGINN SJÚKLINGAR Í ÖNDVEGI 24LJÓSMYNDASÝNING 28 Ragnhildur Þrastardóttir Sigurður Bogi Sævarsson Mikil snjóflóðahætta er á norðan- verðum Vestfjörðum og utanverð- um Tröllaskaga. Þá er töluverð hætta á snjóflóðum á suðvestur- horninu sem og á Austfjörðum. Á norðanverðum Vestfjörðum er farið að bera á vöruskorti vegna ófærðar og óveðurs síðustu daga. „Ástandið er ferlegt og langt síð- an við höfum lent í svona ófærð marga daga í röð,“ segir Hafþór Halldórsson, svæðisstjóri Eim- skips á Ísafirði. Sjávarafurðir eru farnar að safn- ast upp í fiskvinnslustöðvum á svæðinu og er nú orðið aðkallandi að koma þeim í flutning. Útlit er fyrir að veður verði betra í dag og fram á sunnudag, að sögn Eiríks Arnar Jóhannessonar, veðurfræðings hjá Veðurstofu Ís- lands. Aðspurður segir hann því ekki útlit fyrir að fleiri viðvaranir vegna veðurs verði gefnar út á næstu dögum, en gular og appelsínugular viðvaranir hafa gilt á flestum stöð- um landsins síðustu daga. Víða hefur verið mjög hvasst en hvassasta hviðan í undangengnu óveðri mældist á Sandfelli í Öræf- um í gærmorgun, 57,9 m/s. Veður verður rólegt fram á sunnudag, stöku él en hægur vind- ur og úrkoma takmörkuð. Að- spurður segir Eiríkur að þessa daga verði því ágætis ferðaveður. Mikil hætta á snjóflóðum  Íbúar á norðanverðum Vestfjörðum hafa þurft að sætta sig við vöruskort vegna óveðurs  Draga fer úr óveðrinu í dag en önnur lægð skellur á landinu á sunnudag Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Annasamt Snjómokstursmaður á Siglufirði brosti framan í heiminn þrátt fyrir allt þegar ljósmyndari Morgunblaðsins kom auga á hann við vinnu í gær. Önnur lægð á sunnudag » Á sunnudag fer aftur að draga til tíðinda. » Þá er von á lægð með hvassri sunnan- og suðvestan- átt og hlýindum. » Henni mun fylgja rigning en engin snjókoma nema til fjalla, að sögn veðurfræðings. MVöruskortur og vandi í … »4  „Maður er óneitanlega orðinn pirraður. Við sitjum bara uppi með snjóbolta sem stækkar og stækkar,“ segir Berglind Krist- insdóttir, framkvæmdastjóri Sam- bands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Aukinnar óþolinmæði gætir nú meðal sveitarstjórnarmanna á Suðurnesjum með það afskiptaleysi sem þeir telja sig mæta af hálfu ríkisvaldsins. Íbúum á Suðurnesjum hefur fjölgað um 30,8% síðan 2013. Telja sveitarstjórnarmenn þar óhæft að fjárveitingar til innviða samfélagsins, til að mynda heilsu- gæslu, hafi ekki verið auknar í sam- ræmi við þetta. Á sama tíma fái aðr- ir landshlutar hækkun framlaga þótt fólki þar fækki. »14 Telja fordæmalausri fjölgun ekki mætt Baldvin Már Hermannsson, for- stjóri flugfélagsins Atlanta, segir að það hafi verið gríðarlegt högg fyrir félagið að þurfa að greiða jafnvirði næstum eins milljarðs króna í skatt í Sádi-Arabíu á síðasta ári. Þrátt fyrir það hafi rekstur félagsins gengið vel á síðasta ári. Atlanta hefur starfað í Sádi-Arabíu í 25 ár og allan þann tíma hafa engir skatt- ar verið lagðir á. „Við mættum ýmsum áskorunum á árinu 2019 og ein sú stærsta var að við borguðum í fyrsta skipti vörsluskatta í Sádi-Arabíu, en þeir hafa aldrei fyrirfundist þar áður og enginn tvísköttunarsamningur. Það er gríðarlegt högg fyrir okkur að horfa nú á eftir fimm prósentum af afkomunni verða eftir í konung- dæminu en koma ekki inn í rekst- urinn.“ Flugu umtalsvert meira Hann segir að þrátt fyrir þetta hafi félaginu tekist að fljúga um- talsvert meira en gert var ráð fyrir á síðasta ári. „Þannig að rekstrar- niðurstaða ársins verður góð,“ segir Baldvin í ViðskiptaMogganum. Skattur í Sádi-Arabíu högg fyrir Atlanta Félagsmenn í Félagi flugumferðar- stjóra samþykktu verkfallsaðgerðir á fundi síðastliðinn sunnudag. Kári Örn Óskarsson, formaður félagsins, segir í samtali við Morgunblaðið að 144 hafi verið á kjörskrá og 122 hafi greitt atkvæði. 96% þeirra sem greiddu atkvæði kusu með verkfalls- aðgerðum. Samningar félagsins hafa verið lausir síðan 31. desember 2018. Kári segir að síðan þá hafi félagið fundað með Isavia og átt fundi hjá ríkis- sáttasemjara síðan í apríl á síðasta ári. Kári segir að bókaður sé fundur hjá ríkissáttasemja í dag, miðviku- dag, og er vongóður um að árangur náist þar. „Samningar eru á við- kvæmu stigi og við viljum klára þetta við samningaborðið.“ Morgunblaðið/Ernir Deila Flugumferðarstjórar eiga fund í dag hjá ríkissáttasemjara. Verkfalls- aðgerðir samþykktar Ísland mætir Ungverjalandi á EM karla í handknattleik klukkan 17:15 í Malmö í dag. Ísland hefur þegar tryggt sér sæti í milliriðli II, en enn á eftir að koma í ljós hvort Ung- verjaland eða Danmörk fylgir okk- ar mönnum. Með sigri í dag tekur Ísland tvö stig með sér í millirið- ilinn og þá fara Danir áfram, takist þeim að sigra Rússa. Fyrir gærdaginn höfðu Noregur og Portúgal þegar tryggt sér sæti í milliriðli Íslands og Slóvenía og Sví- þjóð bættust við í gær. Noregur og Slóvenía taka tvö stig með sér í rið- ilinn en Svíþjóð og Portúgal byrja án stiga. Tvö efstu lið milliriðilsins fara áfram í undanúrslit. Línur eru því farnar að skýrast og á aðeins eftir að koma í ljós hversu mörg stig Ísland tekur með sér í milliriðil og hvort Danir eða Ungverjar koma með. Milliriðill Íslands: Noregur Slóvenía Ísland Svíþjóð Portúgal Danmörk eða Ungverjaland. Óvissa um stigin í milliriðlinum  Ísland mætir Noregi, Svíþjóð, Slóveníu og Portúgal Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson Handbolti Strákarnir okkar leika gegn Ungverjum í Malmö í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.