Morgunblaðið - 15.01.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.01.2020, Blaðsíða 27
Morgunblaðið/Golli Fyrirliðinn Guðjón Valur í sigurleik gegn Ungverjum á EM 2008. Kristján Jónsson kris@mbl.is Leikurinn gegn Ungverjum í dag er mikilvægur fyrir margra hluta sakir. Vinni Ísland þá fer Ísland með tvö stig í milliriðil og er þá tveimur stig- um á undan Ungverjalandi, sem er í kapphlaupi við Íslendinga og fleiri um að komast í undankeppni Ólymp- íuleikanna í apríl. Vinni Ungverjar snýst dæmið við og þeir fara þá með tvö stig í milliriðil en Ísland ekkert. Skýringin er sú að liðin taka ekki með sér stigin gegn liðunum sem ekki komast áfram. Í því tilfelli væru það Danir og Rússar en ljóst er að Rússar munu sitja eftir. Fari svo að Ísland og Ungverja- land geri jafntefli fara þau með sitt stigið hvort í milliriðil og Danir sitja eftir. Þá væru Ungverjarnir búnir að safna fjórum stigum í riðlinum en Danir geta í besta falli náð þremur stigum með því að vinna Rússa. Ís- land og Ungverjaland tækju þá með sér hvort sitt stigið, jafnvel þótt Ís- land verði þá í efsta sæti riðilsins með fimm stig af þeim ástæðum sem áður var minnst á. Ungverjaland vann Rússland með eins marks mun og sá leikur þróaðist á allt annan hátt en leikur Íslands og Rússlands. Ungverjar höfðu frum- kvæðið gegn Dönum lengi vel en tókst ekki að landa sigri og liðin gerðu jafntefli, 24:24. Vörn og markvarsla virtist vera í góðu lagi hjá Ungverjum gegn Dön- um. Segja má að liðið hafi varist Dön- um enn betur en Íslendingar gerðu en sóknarleikur Ungverja gegn Dön- um var ekki eins góður og sóknar- leikur Íslands gegn Dönum. Hafa oft tekist á Karlalandslið Íslands og Ung- verjalands hafa mæst glettilega oft á stórmótum en þessi lið hafa oft verið á svipuðu getustigi. Fyrst mættust þjóðirnar á stórmóti árið 1958 þegar Ísland var með í fyrsta skipti á HM og Ungverjar unnu 19:16. Ekki verð- ur hjá því komist að nefna þá stað- reynd að Ungverjar hafa tvívegis slegið Íslendinga út í 8-liða úrslitum á stórmótum eftir mikla spennuleiki. Í báðum tilfellum hafði Ísland spilað mjög vel. Annars vegar á HM í Japan 1997 og hins vegar á Ólympíu- leikunum í London 2012. Íslendingar hafa líka oft haft betur í viðureignum liðanna. Í fyrsta leikn- um á HM 2011 vann Ísland góðan sigur og sigurinn á HM 1993 var sæt- ur eftir frábæran lokakafla. Þá vann Ísland einnig sigur á Ungverjalandi þegar HM fór fram á Íslandi 1995 þótt niðurstaðan í mótinu hafi verið vonbrigði. Einn mikilvægasti sig- urinn gegn Ungverjalandi kom lík- lega á ÓL 1992 en þá lék Ísland um verðlaun í framhaldinu. Hér hafa nokkur dæmi verið nefnd um sigra og ósigra gegn Ungverjum en er ekki tæmandi upptalning. Mikilvæg stig í boði gegn Ungverjum ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2020 Arnar Davíð Jónsson endaði í 7.-8. sæti á Brunswick Ballmaster Open- mótinu í keilu, en það er fyrsta mót- ið sem hann tekur þátt í á nýju ári. Arnar Davíð skilaði frábæru skori í undankeppninni og var hársbreidd frá því að komast í undanúrslit. Arnar fór ekki tómhentur heim því hann fékk 3.000 evrur í verðlauna- fé. Andrés Páll Júlíusson, Einar Már Björnsson, Guðjón Júlíusson, Gunnar Þór Ásgeirsson, Gústaf Smári Björnsson og Marika Lönn- roth tóku einnig þátt á mótinu en ekkert þeirra fór áfram úr undan- keppni mótsins. sport@mbl.is Góður árangur hjá Arnari Ljósmynd/KLÍ Góður Arnar Davíð Jónsson byrjar nýja árið á góðum nótum. og þá hafði Slóvenía betur, 26:25. Í síð- ustu fjórum leikjum þjóðanna hefur Ísland unnið tvo leiki, einu sinni hafa þau gert jafntefli og einu sinni hefur Slóvenía unnið. Á þeim tíma hefur aldrei munað meira en einu marki á liðunum. Norðmenn unnu alla leiki sína í D- riðli og líta afar vel út. Þeir hafa endað í öðru sæti á síðustu tveimur heims- meistaramótum og ætla sér ekkert annað en verðlaun. Það verður verðugt verkefni að mæta þeim. Noregur hafði betur gegn Portúgal í gær, 34:28. Mik- ill uppgangur er í portúgölskum hand- bolta, eins og sigurinn á Frökkum í fyrstu umferðinni gefur til kynna. Það verður því alls ekki auðvelt að eiga við Portúgal. Noregur verður fyrsti and- stæðingur Íslands og Portúgal sá síð- asti, vinni Ísland E-riðilinn. Það er sama hvert litið er í milliriðl- inum; Ísland á erfiða leiki fyrir hönd- um. Það er því afar mikilvægt að vinna Ungverjaland í dag og taka með sér tvö stig í riðilinn. Verður hann leikinn í Malmö, líkt og leikir Íslands á mótinu til þessa. Í milliriðil I taka Króatía, Spánn og Austurríki með sér tvö stig. Tékkland, Þýskaland og Hvíta-Rússland byrja án stiga. Spánverjar ættu að fara nokkuð örugglega í undanúrslit á meðan Kró- atía og Þýskaland berjast væntanlega um hitt undanúrslitasætið, en millirið- ill I fer fram í Vín í Austurríki. EM 2020 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Aðeins eitt laust sæti er í boði í milli- riðlum á EM karla í handbolta þegar lokadagur riðlakeppninnar fer fram í dag. Það hlýtur annaðhvort Danmörk eða Ungverjaland, en þau bítast um síðasta sætið í milliriðli II, sem Ísland hefur þegar tryggt sér sæti í. Norð- menn og Slóvenar taka tvö stig með sér í riðilinn en Svíþjóð og Portúgal byrja án stiga. Lærisveinar Kristjáns Andréssonar hjá Svíþjóð unnu 28:26- sigur á Póllandi í gær. Varnartröllið Jesper Nielsen meiddist í upphitun og er óttast að hann verði ekki meira með á mótinu. Það yrði mikið áfall fyrir Svía, sem hafa ekki verið sérstaklega sannfærandi til þessa. Þeir verða að spila mun betur til að eiga einhvern möguleika á að fara í undanúrslit á heimavelli. Hnífjafnir leikir við Slóveníu Vinni Ísland gegn Ungverjalandi í dag verður Slóvenía annar andstæð- ingur íslenska liðsins í milliriðli á sunnudag. Slóvenarnir líta mjög vel út undir stjórn Ljubomirs Vranjes, en hann gerði á sínum tíma garðinn fræg- an með sænska landsliðinu og var Ís- lendingum oftar en ekki erfiður. Ísland og Slóvenía mættust síðast á HM 2017 AFP Svíþjóð Sænskir lærisveinar Kristjáns Andréssonar eru komnir í milliriðla.  Ísland mætir sterkum þjóðum í milli- riðli  Barist um síðasta sætið í dag Barist um síðasta lausa sætið í milliriðli Íslands  Knattspyrnumaðurinn Oliver Sigur- jónsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið sitt Breiðablik. Hann kemur til félagsins frá Bodø/Glimt í Noregi. Oliver hefur leikið 66 leiki með Breiðabliki í efstu deild og skorað fimm mörk. Hann er 24 ára og á að baki tvo A-landsleiki. Oliver lék aðeins samanlagt 36 mín- útur með Bodø/Glimt í efstu og næst- efstu deild Noregs.  Frederik Schram, einn af landsliðsmark- vörðum Íslands undanfarin ár, er genginn til liðs við danska knatt- spyrnufélagið Lyngby en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni. Frederik skrifar undir samning við danska úrvalsdeildarliðið sem gildir út leiktíðina. Samningur Frederiks við SønderjyskE rann út um áramótin en markmaðurinn eyddi fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Lyngby og þekkir því vel til hjá félaginu. Lyngby er í áttunda sæti dönsku úrvalsdeild- arinnar með 28 stig eftir 20 leiki.  Elvar Már Friðriksson og samherjar hans hjá Borås unnu afar sannfærandi 86:60-sigur á Nässjö í sænsku úrvals- deildinni í körfubolta í gær. Elvar hefur leikið mjög vel á leiktíðinni og hélt hann góðu gengi sínu áfram og skor- aði 15 stig, tók fjögur fráköst og gaf níu stoðsendingar á 22 mínútum. Bor- ås hefur unnið þrjá leiki í röð og tíu af síðustu ellefu og er liðið í toppsætinu með 38 stig. Elvar gekk í raðir Borås frá Njarðvík fyrir tímabilið.  LeBron James er kominn í 8. sæti á listanum yfir þá leikmenn sem gefið hafa flestar stoðsendingar í NBA- deildinni í körfuknattleik frá upphafi. Aðfaranótt þriðjudags fór James upp fyrir Isiah Thomas, leikstjórnanda Detroit Pistons, NBA-meistaranna 1989 og 1990, en James er sá eini á meðal efstu manna sem ekki spilar í leikstjórnandastöðunni. James er með 9.067 stoðsendingar á þessum tíma- punkti. Hann hefur jafnframt gefið flestar stoðsendingar í deildinni á þessu keppnistímabili. Langefstur frá upphafi er að sjálfsögðu John Stock- ton með 15.806 sendingar en Jason Kidd, sem nú er einn af þjálfurum James hjá LA Lakers, er í 2. sæti með 12.091. Næstir koma: Steve Nash, Mark Jackson, Magic John- son, Oscar Robertsson og Chris Paul. Sá síðast- nefndi er því efstur þeirra sem spila í dag. Eitt ogannað C-deildarliðið Shrewsbury tryggði sér í gær sæti í 4. umferð ensku bik- arkeppninnar í fótbolta með 1:0- sigri á heimavelli gegn Bristol City úr B-deildinni í endurteknum leik úr 3. umferð. Shrewsbury er eitt minnsta félagið í C-deildinni og fær liðið sannkallaðan draumaleik gegn Liverpool á heimavelli í næstu um- ferð hinn 26. janúar. Lærisveinar Josés Mourinhos hjá Tottenham eru einnig komnir áfram eftir sigur á Middlesbrough úr B-deildinni, 2:1, og Newcastle vann sannfærandi 4:1 sigur á C- deildarliði Rochdale. Draumaleikur gegn Liverpool AFP Bikarinn Tottenham lenti í erf- iðleikum gegn Middlesbrough.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.