Morgunblaðið - 11.02.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 11.02.2020, Síða 1
AFP Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut í fyrrakvöld Óskars- verðlaunin í flokki kvikmyndatónlistar fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker. Hún er fyrsti Íslendingurinn til að hljóta þessi virtu verðlaun Akademíunnar. Hildur hefur nú hlotið Óskarsverðlaun, Golden Globe-verðlaun og BAFTA-verðlaun fyrir tónlist sína í Joker og einnig Grammy- og Emmy-verðlaun fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl. » 4, 14 & 28 og 29 Fékk Ósk- arinn fyrst Íslendinga Þ R I Ð J U D A G U R 1 1. F E B R Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  35. tölublað  108. árgangur  Betolvex Fæst án lyfseðils 1mg (cyanocobalamin) filmuhúðaðar töflur Betolvex inniheldur 1 mg af cyanocobalamin (B12-vítamíni). Betolvex er gefið við B12-vítamínskorti og þegar hætta er á slíkum skorti. Viðhaldsskammtar/ fyrirbyggjandi meðferð: Venjulega 1 tafla á dag. Töflurnar skal helst taka á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfja- fræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upp- lýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is B-12 A c ta v is 9 1 4 0 3 2 Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Einkareknar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu komu best út í könnun meðal þeirra sem hafa nýtt sér þjónustu heilsugæslustöðva. Könnunin, sem var gerð af fyrir- tækinu Maskínu fyrir Sjúkratrygg- ingar Íslands, hefur ekki verið gerð opinber en Morgunblaðið hefur nið- urstöður hennar undir höndum. Alls eru 19 heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Voru þátttak- endur í könnuninni spurðir hversu mikið eða lítið traust þeir bæru al- mennt til heilsugæslunnar. Gátu þeir svarað á fimm vegu, þ.e. mjög mikið, fremur mikið, í meðallagi, fremur lít- ið og mjög lítið. Þegar vegin heildareinkunn var tekin saman á skalanum 1-5 skoruðu tvær stöðvar hæst og fengu ein- kunnina 4,15. Það voru Heilsugæsl- an Höfða og Heilsugæslan Sala- hverfi. Fast á hæla þeim kom Heilsu- gæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ með 4,08 og Heilsugæslan Lágmúla með 4,06. Allar stöðvarnar, að þeirri sem þjónustar Seltjarnarnes og Vesturbæ undanskilinni, eru einka- reknar. Fjórða einkarekna stöðin, Heilsugæslan Urðarhvarfi, fékk ein- kunnina 4 og kom skammt á eftir Heilsugæslunni Árbæ og Heilsu- gæslunni Efra-Breiðholti. Einkareknar hæstar  Mest traust borið til einkarekinna heilsugæslustöðva á höf- uðborgarsvæðinu samkvæmt könnun á meðal skjólstæðinga Meðaleinkunn » Meðaleinkunn allra heilsu- gæslustöðvanna var 3,95. » Meðaleinkunn einkareknu stöðvanna var 4,09 en þeirra sem reknar eru af hinu opin- bera 3,91. MEinkareknar … »9 Nálægt 500 umsóknir um bætur til handa þolendum ofbeldisbrota bár- ust bótanefnd ríkisins í fyrra. Hefur umsóknum fjölgað um 60% frá ár- unum 2015 og 2016, skv. upplýs- ingum Halldórs Þormars Halldórs- sonar, ritara bótanefndar. Afbrot á samfélagsmiðlum eru orðin mun tíðari og er þar oftast um að ræða að ungar stúlkur eru tældar til að senda myndir af sér sem eru svo notaðar sem kúgunartæki. Um- sóknum erlendra ríkisborgara hef- ur einnig fjölgað og eru í dag 25- 30% allra umsókna. Þá hefur sú breyting orðið að nær allar um- sóknir eða 99,5% berast í dag frá lögmönnum í umboði brotaþola en á árunum 2006-2010 komu 10-12% þeirra frá þolendum sjálfum. »14 500 sóttu um bætur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.