Morgunblaðið - 11.02.2020, Side 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grindavíkurhöfn Það gekk mjög vel að sigla varðskipinu Þór inn í Grindavík í gær þótt skipið sé í stærri kantinum fyrir höfnina. Skipið lagðist svo við Miðgarð þar sem er spennistöð.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Varðskipið Þór kom í fyrsta sinn
til hafnar í Grindavík um kl. 11 í
gærmorgun. Skipið lagðist við Mið-
garð þar sem það var stillt af mið-
að við bestu staðsetningu ef til
þess kemur að varðskipið þurfi að
framleiða rafmagn fyrir Grindvík-
inga, líkt og gert var á Dalvík fyrir
jólin.
„Þeir teiknuðu hér í bryggjuna
og ef við þurfum að koma í þetta
verður búið að undirbúa allt sem
þarf,“ sagði Páll Geirdal Elvarsson,
skipherra á Þór. Hann sagði að
spennistöðin sem rafstöðvar skips-
ins yrðu tengdar við væri ekki
langt frá þar sem þeir lögðust að
bryggju. Þaðan myndi rafmagnið
svo fara inn á dreifikerfi HS
Veitna. Þór getur framleitt tvö
megavött af rafmagni, sem er nóg
til að halda meðalstóru sveitar-
félagi gangandi í neyðartilvikum,
að sögn Landhelgisgæslunnar.
Tengikaplar eru um borð
Varðskipið fór nýlega til Dalvík-
ur og sótti þangað kapla sem not-
aðir voru til að tengja skipið við
veitukerfið þar. Kaplarnir eru nú
um borð og spennirinn til staðar í
Grindavík. „Nú er allt klárt hjá
okkur og við ekki nema þrjá til
fjóra tíma að tengja ef það þarf,“
sagði Páll. Vel gekk að sigla skip-
inu inn í Grindavíkurhöfn, að sögn
Páls. „Það er frekar þröngt hérna,
við erum í stærri kantinum fyrir
höfnina en það gekk samt mjög vel
að koma inn,“ sagði Páll. Þór rís
hátt úr sjó og tekur því á sig vind
ef hann blæs auk þess sem innsigl-
ingin er þröng. Þegar siglt var inn
í gær var NA 20-25 hnúta vindur
og SV tveggja metra alda á duflinu
fyrir utan.
„Þetta var í fyrsta sinn sem Þór
kom hingað inn og var ekki í boði
fyrr en eftir að þeir breyttu inn-
siglingunni,“ sagði Páll skipherra.
Sjómælinga- og siglingaöryggis-
deild Landhelgisgæslunnar vinnur
nú að gerð nýs hafnarkorts fyrir
innsiglinguna og höfnina í Grinda-
vík. Þór fór svo frá Grindavík um
kvöldmatarleytið í gær.
Mátuðu vs. Þór við Grindavíkurhöfn
Allt klárt ef til þess kemur að nota
þarf skipið sem rafstöð fyrir bæinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skipherrann Páll Geirdal Elvarsson skipherra sagði að þetta hefði verið í
fyrsta sinn sem varðskipið Þór kom til hafnar í Grindavík.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Verkfall félagsmanna Eflingar, sem
starfa hjá Reykjavíkurborg, á að
hefjast kl. 12.30 í dag og ljúka á mið-
nætti fimmtudaginn 13. febrúar. Hjá
borginni starfa um 1.850 félagsmenn
í Eflingu á um 129 starfsstöðvum.
Verkfallið mun hafa áhrif á rúm-
lega 3.500 leikskólabörn og 1.650
notendur velferðarþjónustu. Sorp-
hirða frestast þar sem tæming á að
fara fram þessa daga, samkvæmt
fréttatilkynningu frá Reykjavíkur-
borg.
Fundi samninganefnda Eflingar
og Reykjavíkurborgar sem halda
átti í gær hjá ríkissáttasemjara var
frestað um óákveðinn tíma. „Það var
mat sáttasemjara sem er með málið
að það myndi ekki skila miklum
árangri að halda fundinn í dag [í
gær]. Það þyrfti aðeins að undirbúa
þetta betur,“ sagði Elísabet Ólafs-
dóttir, skrifstofustjóri ríkissátta-
semjara. Viðar Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Eflingar, sagði
samninganefnd félagsins sátta við
frestun fundarins og treysta mati
sáttasemjarans.
Vinnu við útfærslu á styttingu
vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki
hjá borginni lauk um helgina. Mikil-
vægt var að sú vinna kláraðist, enda
einn af útgangspunktum Eflingar að
ljúka henni áður en skrifað verður
undir nýjan kjarasamning.
„Það er ákveðið skref í því að ná
lausn við Eflingu sem og aðra við-
semjendur. Það er mjög mikil breyt-
ing sem verið er að teikna þarna upp.
Hjá Reykjavíkurborg er um fjórð-
ungur starfsmanna í vaktavinnu.
Þetta skiptir því miklu máli,“ sagði
Harpa Ólafsdóttir, formaður samn-
inganefndar Reykjavíkurborgar.
Hún sagði mjög ánægjulegt að þetta
væri komið þangað að verið væri að
kynna málið í baklandinu. Ætlunin
væri að skrifa undir samkomulagið í
dag, að sögn Hörpu í gær. »8
Tæplega 60 stunda verk-
fall Eflingar hefst í dag
Stytting vinnu-
viku hjá vakta-
vinnufólki kynnt
Morgunblaðið/Eggert
Sáttafundur Fundi Eflingar og Reykjavíkurborgar í gær var frestað.
Slökkviliðsmenn í Skagafirði dældu út vatni úr kjötafurðastöð Kaupfélags
Skagfirðinga á Sauðárkróki í um fjórar klukkustundir í gær þegar vatn
flæddi yfir sjávargarða og vegi og inn í fyrirtæki.
„Það flæddi töluvert. Við höfum ekki séð þetta svona áður, þetta var
óvenju mikið,“ segir Svavar Atli Birgisson, slökkviliðsstjóri hjá brunavörn-
um Skagafjarðar. „Við vorum að dæla þarna í einhverja þrjá til fjóra
klukkutíma og höfðum varla undan því flaumurinn var það mikill. Svo fór
að draga úr þessu og sjávarhæðin minnkaði svo aðstæður urðu aðeins hag-
stæðari.“
Strandvegi á Sauðárkróki var lokað vegna sjógangs fyrr um daginn.
Flæddi yfir vegi og inn í fyrirtæki