Morgunblaðið - 11.02.2020, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
GLÆSILEGIR „PLUG IN
HYBRID“ TIL SÖLU
AUDI A3 E-TRON, VW GOLF GTE,
VW PASSAT GTE OG M. BENZ E350E
M.BENZ E 350E
AVANTGARDE EQ POWER
nýskr. 02/2018, ekinn 22 Þ.km, bensín/
rafmagn, sjálfskiptur, stafræntmælaborð.
Glæsilegt eintakmeð fullt af aukahlutum!
Verð 7.450.000 kr.
TILBOÐ 6.999.000 kr. Raðnúmer 259893
Sonja Sif Þórólfsdóttir
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Ragnhildur Þrastardóttir
„Vá, þetta er svo hjartnæmt,“ sagði Hildur
Guðnadóttir tónskáld í upphafi þakkarræðu
sinnar er hún hafði tekið við Óskarnum á
sunnudagskvöldið var. Verðlaunin fékk hún
fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker. Það
leyndi sér ekki að Hildur var djúpt snortin yfir
að fá þessi eftirsóttu verðlaun. Hún hlaut
dynjandi lófaklapp og fagnaðarlæti viðstaddra
sem stóðu upp og hylltu hana.
„Ég vil þakka Akademíunni fyrir að taka
svo hlýlega á móti mér. Ég veit ekki hvað ég á
að segja. Til ykkar sem voruð tilnefndir með
mér, meistarar listarinnar, það hefur verið
mikill heiður að kynnast ykkur öllum, það hef-
ur verið svo sérstakt. Höfundur kvikmynda-
tónlistar getur aðeins verið jafn skapandi og
samtalið við leikstjórann,“ sagði Hildur enn-
fremur og þakkaði síðan Todd Phillips, leik-
stjóra Joker, fyrir að hafa boðið sér í „þetta
ferðalag“ og að hafa hlustað á sig allan tímann.
Einnig þakkaði hún framleiðandanum Bradley
Cooper. Síðan sagði Hildur:
„Látið í ykkur heyra“
„Fjölskyldan mín, fallega fjölskyldan mín,
sem er hér með mér í kvöld. Minn ótrúlegi
eiginmaður, Sam, ástin mín, besti vinur
minn, hin eyrun mín. Ég væri týnd án þín.
Móðir mín, sonur minn, Kári, ég sé þig ekki
en ég elska þig svo mikið. Ég elska þig.
Stúlkur, konur, mæður og dætur sem heyrið
tónlistina brjótast um innra með ykkur; látið
í ykkur heyra. Við þurfum að heyra raddir
ykkar.“
Að lokinni verðlaunaafhendingu sat Hildur
fyrir svörum á blaðamannafundi. Þar var hún
m.a. spurð hvernig hún hefði fengið innblástur
við tónsmíðar fyrir myndina Joker:
„Ég reyndi bara eins og ég gat að vera inni í
höfðinu á honum [Jókernum] og reyndi að
ímynda mér hvernig það hljómaði. Það var
minn helsti innblástur.“
„Til hamingju, Hildur!“
Strax að lokinni athöfn í Hollywood rigndi
heillaóskum og hamingjuskeytum yfir Hildi.
Meðal þeirra sem sendu henni kveðju voru
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Lilja
Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra,
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti.
„Til hamingju Hildur, til hamingju Ísland.
Við hljótum öll að vera stolt af velgengni landa
okkar á erlendri grundu. Og óskarsstyttan er
bara síðasta viðbótin í safn margra gripa sem
Hildur hefur safnað að sér verðskuldað á síð-
ustu árum og megi henni bara ganga áfram
sem allra best,“ sagði Guðni m.a.
Hann sagði við mbl.is í gær að Hildur hefði
verið glæsileg í hógværð sinni í þakkarávarp-
inu á hátíðinni „en skilaboðin til stúlkna að
láta rödd sína hljóma voru eins sterk og hún er
sjálf auðmjúk“.
Bjuggust öll við þessum úrslitum
„Það voru miklar væntingar og við bjugg-
umst öll við þessu en það dregur ekki úr þessu
magnaða afreki sem þetta er. Við erum bara
hrikalega stolt af henni,“ segir Þórarinn
Guðnason, bróðir Hildar og gítarleikari hljóm-
sveitarinnar Agent Fresco, við mbl.is spurður
hvort hann hafi verið bjartsýnn á að Hildur
hlyti Óskarsverðlaunin.
Systkinin hafa unnið mikið saman undan-
farin ár og hefur Þórarinn verið Hildi innan
handar í hennar stærstu verkefnum. Hann
segir það magnað að vera loks farinn að sjá
rödd hennar skína í gegn eftir allt harkið.
„Hún er ein sú duglegasta og hún er alltaf
með mjög skýra sýn á hvað hún vill. Stundum
skilur maður ekki alveg hvert hún er að fara
en hún er alltaf með eitthvert markmið í huga
sem hún stefnir að og hún kemst alltaf þangað
á endanum,“ segir Þórarinn.
2018
Journey‘s End
VERÐLAUN Tiantian
Award, Best Music.
Mary Magdalene
VERÐLAUN Asia Pacifi c
Screen Award, Best
Original Score.
TILNEFNING AACTA
Award, Best Original
Music Score.
Atelier
(stuttmynd)
TILNEFNING Ekko
Shortlist Award,
Bedste originale musik
(Best Original Score).
Strong Island
TILNEFNING Cinema
Eye Honors Award,
Outstanding Achievem-
ent in Original Music
Score.
2019
Joker
VERÐLAUN Satellite
Award, Best Original
Score. Sierra Award,
Best Score. Soundtrack
Stars Award, Best
Soundtrack. HMMA Award, Best
Original Score – Feature Film. HCA
Award, Best Score. PCC Award, Best
Score. TILNEFNINGAR Seattle Film
Critics Award, Best Original Score.
FFCC Award, Best Score. OFCC
Award, Best Score. SFFCC Award,
Best Original Score. WAFCA
Award, Best Original Score
Chernobyl
VERÐLAUN Primetime Emmy, Out-
standing Music Composition for a
Limited Series, Movie, or Special
(Original Dramatic Score). World
Soundtrack Award, Television
Composer of the Year. TILNEFN-
INGAR HMMA Award, Best Original
Score – TV Show/Limited Series.
2020
Joker
VERÐLAUN Óskarsverðlaun, Best Achievement
in Music Written for Motion Pictures (Original
Score). Golden Globe, Best Original Score
– Motion Picture. BAFTA Film Award, Original
Music. MCFCA Award, Best Score. DFCS Award, Best
Original Score. Critics Choice Award, Best Score. HFCS
Award, Best Original Score. SCL Award, Outstanding
Original Score for a Studio Film. Gold Derby Award,
Original Score. HCA Award, Best Score.
TILNEFNINGAR COFCA Award, Best Score, HFCS
Award, Best Original Score. IFMCA Award, Film
Score of the Year. IFMCA, Best Original Score for a
Drama Film. IFMCA, Film Music Composition of the
Year. IFC Award, Best Original Score. GAFCA Award,
Best Original Score. LEJA Award, Best Music. OFCS
Award, Best Original Score. OFTA Film Award, Best
Music, Original Score. ACCA, Best Original Score.
Chernobyl
VERÐLAUN Grammy, Best Score Soundtrack for
Visual Media. TILNEFNINGAR SCL Award, Out-
standing Original Score for a Television or Stream-
ing Production. IFMCA Film Composer of the
Year, Best Original Score for a Television Series.
2013
Kapringen
TILNEFNING
Robert, Årets
score (musik).
Jîn
TILNEFNING
Turkish Cinema
Award, Best
Original Music.
2016
Ófærð
VERÐLAUN Edduverð-
launin, Besta tónlist
í kvikmynd/sjónvarpi.
2017
Eiðurinn
VERÐLAUN Edduverð-
launin, Besta tónlist
í kvikmynd/sjónvarpi.
„Vá, þetta er svo hjartnæmt“
Hildur Guðnadóttir fékk Óskarsverðlaunin fyrir bestu tónlistina Hvatti eldri sem yngri konur til
að láta í sér heyra Hamingjuóskum rigndi yfir Hildi Miklar væntingar rættust á sunnudagskvöld
AFP
Óskarsverðlaun Hildur Guðnadóttir með Óskarinn; styttuna sem marga listamenn er tengjast
kvikmyndagerð dreymir um að fá. Hún er fyrsti Íslendingurinn til að hreppa verðlaunin.
Hildur hreppti Óskarinn