Morgunblaðið - 11.02.2020, Side 11

Morgunblaðið - 11.02.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Reykjavíkurborg tilkynnti í síðustu viku að vegna athugasemda íbúa og annarra hagsmunaaðila hefði verið ákveðið að gera breytingar við uppbyggingu á sjómannaskóla- reit. Vinir Saltfiskmóans, sem eru samtök íbúa á svæðinu, hafa marg- víslegar athugasemdir við tilkynn- ingu borgarinnar og segja m.a. að meginbreytingarnar sem gerðar hafi verið á skipulagi reitsins séu allar vegna krafna frá opinberum aðilum. „Við mótmælum því að borgaryfirvöld skuli reyna að slá sig til riddara fyrir að hafa tekið tillit til athugasemda íbúa, þegar sú var ekki raunin,“ segir í yfirlýs- ingu frá Vinum Saltfiskmóans. Íbúðum fækkað og græn svæði stækkuð Yfirskrift á tilkynningu borgar- innar var „Íbúðum fækkað og græn svæði stækkuð“ og þar voru raktar helstu breytingar á reitn- um. Þar kemur fram að létta eigi á byggingamagni með því að taka út íbúðir fyrir námsmenn og minnka byggingarreit hagkvæms húsnæðis við stakkstæði. Stækka eigi opin græn svæði frá auglýstri tillögu og festa þau til frambúðar sem opin svæði til leikja og útivistar í aðal- skipulagi. Setja eigi hverfisvernd á Stakkstæðið og Vatnshólinn, jafn- framt því að tryggja ásýnd að byggingu Sjómannnaskólans. Í yfirlýsingu Vina Saltfiskmóans kemur fram að borgin hafi stækk- að lóð Sjómannaskólans að kröfu framkvæmdasýslunnar fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneyt- isins. Borgin hafi ákveðið að fjar- lægja námsmannaíbúðir framan við Sjómannaskólann að kröfu Minjastofnunar Íslands. Borgin hafi ákveðið að Vatnshóllinn og stakkstæðið í Saltfiskmóanum njóti hverfisverndar samkvæmt tilmæl- um frá Borgarsögusafni Reykja- víkur, en eftir sem áður virði borg- in enn ekki 15 metra helgunar- svæði stakkstæðisins í samræmi við lög um menningarminjar. Ekki tekið tillit til neinna athugasemda Vinir Saltfiskmóans sendu inn fjölmargar athugasemdir í skipu- lagsferlinu sem hófst vorið 2018 og segir í yfirlýsingunni að borgin hafi ekki tekið tillit til neinna þeirra athugasemda. Því er and- mælt að öll uppbygging á sjó- mannaskólareitnum sé á vegum óhagnaðardrifinna félaga. Í gögn- um megi t.d. sjá að framkvæmdar- aðili uppbyggingar vestan við Sjó- mannaskólann muni geta hagnast um hundruð milljóna króna á fram- kvæmdunum. Gerð er athugasemd við myndræna framsetningu borg- arinnar í skipulagsferlinu og hún sögð villandi. Því er fagnað að Minjastofnun og Borgarsögusafn hafi staðið vörð um menningarminjar á reitnum, „en [við] erum verulega hugsi yfir algjöru samráðsleysi borgarinnar við íbúa“, segir í yfirlýsingunni. Skorað er á borgarráð að sam- þykkja ekki fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi sjómannaskóla- reits. Tillögurnar verða teknar til staðfestingar í borgarráði næsta fimmtudag. Breytingar á sjómannaskóla- reit að kröfu opinberra aðila  Íbúasamtök segja borgaryfirvöld reyna að slá sig til riddara  Samráðsleysi Myndefni/Vinir Saltfiskmóans Breyting Nýjar byggingar munu skyggja á vesturhlið Sjómannaskólans samkvæmt áformum um framkvæmdir þar. Lilja Alfreðs- dóttir, mennta- og menningar- málaráðherra, hefur skipað Jón Atla Benedikts- son í embætti rektors Háskóla Íslands til næstu fimm ára. Embætti rekt- ors var auglýst laust til umsóknar í desember og var Jón Atli eini umsækjandinn um embættið. Hann var upphaflega kjörinn rektor Háskóla Íslands vor- ið 2015. Hann er 29. rektorinn sem gegnir embættinu frá því að Há- skólinn var stofnaður árið 1911. Skipaður rektor Háskóla Íslands Jón Atli Benediktsson Bókin Stúlkan hjá brúnni eftir Arnald Indriðason var sú bók fyrir fullorðna sem oftast var lánuð út af bókasöfnun landsins á síðasta ári, en bók Arnalds sem kom út haustið 2018 rataði 3.166 sinnum heim með bókasafnsgestum. Skammt á hæla Arnaldi kemur Þorpið eftir Ragnar Jónasson og Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur var þriðja mest lánaða bókin á bókasöfn- um landsins í fyrra. Þetta sést í nýjum tölum um útlán sem nú eru aðgengilegar á vef Lands- kerfis bókasafna. Sú barnabók sem oftast var lánuð í ár var Dagbók Kidda klaufa: Leyni- kofinn, en sú var raunar lánuð oftar en nokkur önnur bók á bókasöfnum landsins í fyrra, eða 5.448 sinnum. Bók Arnaldar lánuð oftast út í fyrra Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook ALGJÖRT VERÐHRUN Á ÚTSÖLUNNI Str. 36-52 Útsölubuxur kr. 3.900.- Aðeins 5 verð 2.000.- 3.000.- 4.000.- 5.000.- 6.000.- Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands 2020 er komin út Ferðafélag Íslands www.fi.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.