Morgunblaðið - 11.02.2020, Side 12

Morgunblaðið - 11.02.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020 11. febrúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.62 126.22 125.92 Sterlingspund 162.39 163.17 162.78 Kanadadalur 94.32 94.88 94.6 Dönsk króna 18.399 18.507 18.453 Norsk króna 13.523 13.603 13.563 Sænsk króna 13.011 13.087 13.049 Svissn. franki 128.67 129.39 129.03 Japanskt jen 1.1438 1.1504 1.1471 SDR 172.11 173.13 172.62 Evra 137.52 138.28 137.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.8043 Hrávöruverð Gull 1568.3 ($/únsa) Ál 1693.0 ($/tonn) LME Hráolía 55.14 ($/fatið) Brent ● Lansdowne European Struct- ural Recovery Fund, sem er sjóð- ur í stýringu breska fjármálafyrirtæk- isins Lansdowne Partners seldi á föstudaginn var tæplega 18,7 millj- ónir hluta í tryggingafélaginu TM. Með því fór eignarhlutur sjóðsins í félaginu niður fyrir 5% og stendur nú í 2,07%. Eftir viðskiptin á sjóðurinn tæplega 16 milljónir hluta í félaginu. Miðað við gengi bréfa TM að undan- förnu má gera ráð fyrir að andvirði söl- unnar nemi ríflega 670 milljónum króna. Eign sjóðsins eftir viðskiptin er sömuleiðis um 570 milljónir króna. Þetta eru ekki fyrstu stóru viðskipti Lansdowne Partners í íslensku trygg- ingafélagi á þessu ári. Hinn 20. janúar síðastliðinn seldi sjóðurinn 92 milljónir hluta í VÍS og má gera ráð fyrir að heildarvirði þeirra viðskipta hafi numið um 1,1 milljarði króna. Lansdowne hefur gert sig gildandi á íslenska hlutabréfamarkaðnum frá árinu 2017. Stjórnarformaður félagsins sagði þá í samtali við Reuters að mikill vöxtur í ferðaþjónustu gerði Ísland að ákjósanlegum fjárfestingarkosti. Lansdowne selur fyrir hundruð milljóna í TM STUTT Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir ferðamenn frá Bandaríkjunum og Bretlandi hafa haldið uppi ferðaþjónustu utan há- annar. Það sé því áhyggjuefni að færri ferðamenn frá Bandaríkjun- um og Bretlandi skuli hafa heim- sótt landið í jan- úar en í fyrra. „Þetta bendir til að árstíða- sveiflan í grein- inni sé að aukast,“ segir Skarphéðinn Berg um þróunina í byrjun ársins. Hefur það verið eitt meginmark- mið íslenskrar ferðaþjónustu síð- ustu ár að jafna árstíðasveifluna og nýta þannig fjárfestinguna betur. Ferðamálastofa birti síðdegis í gær tölur um brottfarir erlendra ferðamanna í janúar, sundurliðað eftir þjóðerni, og er heildarfækkun erlendra ferðamanna 13%. Alls voru tæplega 121 þúsund brottfarir í jan- úar, eða um 18 þúsund færri en í sama mánuði í fyrra. Það eru jafn- framt fæstu brottfarirnar frá 2016, eins og lesa má úr grafi hér til hlið- ar. Fall WOW skilur eftir skarð Þar má líka sjá hlutfallslega breytingu á fjölda brottfara eftir þjóðerni. Breskum ferðamönnum fækkaði um 12,2% og bandarískum ferðamönnum um 39,4%. Hins veg- ar fjölgaði kínverskum ferðamönn- um um 25,7% en þeir eru færri. Skarphéðinn segir aðspurður að áhrifanna af niðurskurði WOW air í árslok 2018 gæti í því að ferða- mönnum fækkaði milli janúar 2018 og 2019. Áhrifin af gjaldþroti félags- ins 28. mars sl. birtist svo í meiri fækkun milli janúar 2019 og 2020. „Nú eru liðnir um 10 mánuðir frá því að WOW air hætti starfsemi en önnur flugfélög eru ekki farin að bæta upp þá sætisfækkun sem varð. Þótt Icelandair hafi aukið framboðið eru önnur flugfélög ekki að stoppa upp í gatið sem WOW skildi eftir sig. Það er áhyggjuefni að aðrir að- ilar séu ekki að koma inn á mark- aðinn. Við þurfum að sjá fleiri félög en Icelandair bjóða fleiri flugsæti til landsins,“ segir Skarphéðinn Berg. Veiran ekki haft áhrif Kórónuveiran hafi ekki haft áhrif á janúartölurnar. Það birtist skýr- ast í fjölgun kínverskra ferða- manna. Hins vegar muni veiran og ferðabannið í Kína að óbreyttu hafa áhrif á fjölda brottfara í febrúar. Nærri 30% samdráttur Samkvæmt talningu Isavia fóru 29,8% færri farþegar um Kefla- víkurflugvöll í janúar en í sama mánuði í fyrra. Það var 6,6% minna en Isavia áætlaði í spá sinni í des- ember. Alls fóru 375.723 farþegar um Keflavíkurflugvöll í janúar en 535.210 í janúar 2019. Þá fóru 311.762 farþegar til og frá landinu í janúar en 353.883 í jan- úar í fyrra, sem er 11,9% fækkun. Isavia áætlaði í farþegaspá að þeir yrðu 319.527 talsins í janúar og voru þeir því 2,4% færri en áætlað var. Aukin árstíðasveifla í ferða- þjónustu mikið áhyggjuefni Brottfarir frá Kefl avíkurfl ugvelli í janúar Fjöldi brottfara í janúar 2016-2020 Fjöldi brottfara í janúar 2020 eftir þjóðerni 160 140 120 100 80 60 40 20 0 35 30 25 20 15 10 5 0 100% 90% 80% 60% 40% 20% 0% -20% -30% Janúar 2019 Janúar 2020 2016 2017 2018 2019 2020 Frakkland Þýskaland Pólland Kína Bandaríkin Bretland Þúsundir brottfara Þúsundir brottfaraBreyting frá fyrra ári 78 136 148 139 120 23,6% 75,3% 8,5% -5,8% -13% 5,65,4 8,4 5,3 10,2 29,5 34,7 6,66,6 12,8 30,5 17,9 Heimild: Ferðamálastofa 219 ferðum aflýst » Isavia telur óveður kunna að eiga þátt í fækkun ferðamanna milli ára í janúar og miðað við uppfærðar áætlanir félagsins. » Átta daga í janúar hafi þurft að fresta, flýta eða aflýsa flug- ferðum á Keflavíkurflugvelli vegna vindhraða og veðurofsa. » Alls hafi 219 flugferðum verið aflýst á Keflavíkur- flugvelli en 31 í janúar í fyrra en það er um sjöföldun.  Ferðamálastjóri bendir á fækkun ferðamanna frá Bandaríkjunum og Bretlandi Skarphéðinn Berg Steinarsson Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands stóð í tæpum 835,2 milljörðum króna í lok janúar. Jókst virði hans um tæpa 13 milljarða króna í fyrsta mánuði ársins. Mest munaði þar um verðbréfa- eign bankans sem jókst um 25,5 milljarða í mánuðinum. Stóð hún í 594,2 milljörðum króna í lok janúar. Á móti dróst seðlaeign og innstæður bankans saman um 13,5 milljarða króna og voru 196,7 milljarðar króna. Verðhækkanir á gulli urðu til þess að eign bankans í góðmálminum jókst um 664 milljónir króna. Stóð gullforðinn því í rúmum 12,4 millj- örðum í mánaðarlok. Hefur gjaldeyrisforði Seðlabank- ans haldist vel yfir 800 milljörðum króna allt frá júnímánuði í fyrra þegar hann var 841 milljarður króna. Morgunblaðið/Golli Gjaldeyrisforðinn óx um 13 milljarða í janúar Ekkert félag hækkaði í viðskiptum í Kauphöll í gær. Aðeins fjögur fé- lög lækkuðu ekki. Það voru Brim, Eimskipafélagið, Hagar og Heima- vellir. Mest lækkuðu bréf Eikar fasteignafélags, um 2,2% í tæplega 54 milljóna viðskiptum. Þá lækkuðu bréf Icelandair Group um 1,9% í tæplega 52 milljóna króna við- skiptum. Höfðu bréf félagsins tekið skarpa dýfu fyrr um daginn en réttu nokkuð úr kútnum þegar líða tók á. Bréf Marels lækkuðu um 1% í ríf- lega 61,7 milljóna króna við- skiptum. Hafa bréf félagsins nú lækkað um ríflega 3,9% það sem af er ári. Bréf TM lækkuðu um 1,2% í 75 milljóna viðskiptum. Bréf Sýnar, Símans, Reita og Regins lækkuðu um ríflega 1%. Önnur félög lækkuðu minna. Ekkert félag hækkaði í Kauphöll Íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.