Morgunblaðið - 11.02.2020, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2020
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Guðrún Hafsteinsdóttir, stjórnarformaður
Samtaka iðnaðarins, verður gestur á
hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn
12. febrúar kl. 12 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Húsið opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi, 1000
krónur.
Allir velkomnir.
Með kveðju,
stjórnin.
Félag sjálfstæðismanna í
Skóga- og Seljahverfi
Almennur stjórnmálafundur
fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20 í sal
sjálfstæðisfélaganna, Álfabakka í Mjódd.
Alþingismennirnir í Reykjavík suður, þau
Sigríður Andersen og Brynjar Níelsson ,
koma á fundinn og ræða stöðu stjórnmála
í dag.
Allt áhugafólk um stjórnmál og Reykjavík
velkomið á fundinn.
Stjórn Sjálfstæðisfélags
Skóga- og Seljahverfis.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfisalur-
inn er opinn milli kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur.
Botsía kl. 10.15-Bíó í miðrými kl. 13. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun
kl. 13. Vatnslitun kl. 13, leiðbeinandi, ókeypis og allt til staðar. Í dag er
ekki kaffi vegna vinnustöðvunar starfsfólks. Nánari upplýsingar í síma
411-2702. Allir velkomnir.
Árskógar Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með
Guðmundi kl. 10. Leshringur kl. 11. Brids kl. 12. Handavinnuhópur kl.
12-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 12.45. MS fræðslu- og félagsstarf kl.
14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kirkj-
unnar kl. 20. Allir velkomnir, Safnaðarfélag Áskirkju.
Boðinn Fuglatálgun kl. 13. Brids kl. 13. Kanasta kl. 13.
Borgir Listmálun með Marteini kl. 9 í Borgum, postulínsmálun kl.
9.30 í Borgum og botsía kl. 10 og 15 í Borgum. Helgistund kl. 10.30 í
Borgum og leikfimishópur Korpúlfa kl. 11 í dag í Egilshöll. Spjallhópur
í listamiðju Borgum kl. 13, sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl.
13.30 í dag. Allir hjartanlega velkomnir í Borgir, þar sem gleðin býr.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Saumastofan kl.
10.30, ýmislegt í farvatninu. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Botsía kl. 10.40-
11.20. Leshópur kl. 13. Leikfimi með Silju kl. 13-13.40. Qi-gong kl. 17-
18. Kaffihús eftir hádegi fellur niður ef ósamið er við Eflingu.
Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera í vinnustofu kl. 9. Félagsvist í
borðsal kl. 13.30. Bónusrúta við aðalinngang kl. 15.05.
Dalbraut 27 Bænastund í bókaherbergi kl. 9.30. Djákni í setustofu 2.
hæð kl. 14.
Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð á vægu
verði eftir stundina. Við fáum góðan gest til okkar; rithöfundinn
Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur sem les upp úr bók sinni Jakobína:
saga skálds og konu. Verið velkomin.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Mynd-
listarnámskeið kl. 9-12. Thai chi kl. 9. Spekingar og spaugarar kl.
10.30-11.30. Hádegismatur kl. 11.30. Kríur myndlistarhópur kl. 13. Brids
kl. 13. Tölvur kl. 13.10. Enska kl. 13. Ekkert síðdegiskaffi kl. 14.30 vegna
verkfalls starfsmanna Eflingar. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Glerlist kl. 9. Bútasaumshópur hittist kl.
9. Hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10.30. Bókband kl. 13. Frjáls spila-
mennska kl. 13. Opin handverksstofa kl. 13-16. Söngstund kl. 13.30.
Bókaklúbbur kl. 15. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Velkomin á Vitatorg.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá
Jónshúsi kl. 14.45. Vatnsleikfimi kl. 7.30/15.15. Qi-gong í Sjálandi kl. 9.
Liðstyrkur Ásgarði kl. 11.15. Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía í Ás-
garði kl. 12.45. Línudans Sjálandi kl. 13.30/14.30.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl.
9-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl.
10.30. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, kl. 13.30 alkort.
Grafarvogskirkja Starf eldri borgara fer í óvissuferð. Brottför er frá
Grafarvogskirkju kl. 13.
Grensáskirkja Kl. 12 á þriðjudögum er boðið upp á kyrrðarstund í
Grensáskirkju. Stundin hefst með orgelleik og síðan er nærandi orð
og kyrrðarbæn. Eftir samveruna í kirkjunni er samfélag yfir léttri
máltíð gegn vægu gjaldi.
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm- og silfur-
smíði, kanasta og tréskurður kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30. Hádegismatur kl. 11.30.
Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl. 8-12. Dansleikfimi kl. 9.
Qi-gong kl. 10. Brids kl. 13. Leikfimi Hjallabraut kl. 10.45. Leikfimi
Bjarkarhúsi kl. 11.30. Vatnsleikfimi í Ásvallalaug kl. 14.40.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Zumba með Carynu kl. 10. Brids í handavinnustofu kl.
13. Helgistund kl. 14, prestur frá Fossvogsprestakalli þjónar.
Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum, frjáls postulínsmálun kl. 9.30 í
Borgum. Botsía kl. 10 og 15 í Borgum í dag. Helgistund kl. 10.30 og
leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11 í dag. Spjallhópur kl. 13 í
Borgum, listamiðja. Sundleikfimi kl. 13.30 í Grafarvogssundlaug. Allir
hjartanlega velkomnir.
Neskirkja Krossgötur kl. 13. Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og svefn-
ráðgjafi, talar um svefn og hvernig við getum öðlast betri svefn.
Söngur og kaffiveitingar
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja 9-12, trésmiðja kl. 9-
16, opin listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
kaffihúsaferð kl. 14, Bónusbíllinn kl.15, hugleiðslan kl.15.30. Uppl í s.
4112760
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 7.10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30.
Ath. púttið í Risinu er kl. 10 í dag. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30.
Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Karlakaffi kl. 14 í safnaðarheimilinu. Í dag
kl. 14 verður kynningarfundur í hátíðarsal Gróttu um nýtt hreyfingar-
úrræði fyrir fólk 60+; FARSÆL ÖLDRUN. Skráning á staðnum. Fólk er
hvatt til að fjölmenna.
Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir í hópinn.
Rað- og smáauglýsingar
mbl.is
alltaf - allstaðar
Nú
þú það sem
þú eia að FINNA.is
Hjartkær móður-
systir mín er farin
frá okkur eftir
snörp veikindi.
Frá því ég man eftir mér hefur
Ása verið mér svo kær, oft fór ég
á Hornafjörð sem barn og gisti
þá á Kirkjubrautinni, þangað var
alltaf svo gott að koma og vel
tekið á móti mér hvort sem ég
var ein eða með fjölskyldunni.
15 ára kom ég svo til að vera
heilt sumar að vinna í humri og
búa hjá Ásu og Gunnari, þetta
var erfitt fyrir óharðnaðan ung-
ling úr Reykjavík. Ekki hefði ég
getað verið á betri stað og naut
þess að vera hjá þeim; fara á
rúntinn, út í Ósland og fylgjast
með bátum koma og fara, heim-
sækja ömmu Gróu og passa fyrir
Ásgeir og Eygló. Það kom ekkert
annað til greina en að fara aftur
næsta sumar og þarnæsta líka.
Ég á svo margar góðar minning-
Ásgerður
Arnardóttir
✝ Ásgerður Arn-ardóttir fædd-
ist 9. september
1946. Hún lést 19.
janúar 2020.
Útför Ásgerðar
fór fram 25. janúar
2020.
ar og eignaðist líka
góða vini og vinkon-
ur í leiðinni ásamt
því að rækta frænd-
skap við flesta ætt-
ingja mína á Höfn.
Í gegnum tíðina
hefur varla átt sér
stað nokkur við-
burður í lífi mínu og
fjölskyldunnar allr-
ar sem Ása og
Gunnar hafa ekki
verið partur af og alltaf fékk ég
símtal frá Ásu þegar ég eða
börnin mín áttu afmæli. Ég mun
sakna hennar sárt.
Mig langar þakka elsku Ásu
frænku fyrir allar samveru-
stundirnar, elsku, hlátur og
gleði.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Sofðu rótt,
Lovísa Dröfn Lúðvíksdóttir.
Ari Rögnvalds-
son, vélstjóri á Ak-
ureyri, er látinn 87
ára að aldri. Kynni
okkar Ara hófust
undir lok áttunda áratugar síð-
ust aldar. Hann var þá orðinn
dælustjóri hjá Hitaveitu Akur-
eyrar en ég nýkominn úr námi
og að taka við jarðhitarannsókn-
um í Eyjafirði sem varð drjúgur
hluti af starfi mínu næstu ára-
tugi. Þetta voru erfiðir tímar
fyrir Hitaveituna á Akureyri,
jarðhitasvæðin í Eyjafirði höfðu
ekki staðið undir þeim vænt-
ingum sem menn höfðu þegar
hitaveitan var byggð og stöð-
ugur orkuskortur blasti við.
Verð heita vatnsins hækkaði
stöðugt og sífellt var leitað
nýrra staða þar sem ná mætti í
meira vatn. Verst var þó óvissan
á veturna um það hvort tækist
að anna orkuþörfinni – ég held
að ástandið hafi oft verið mun
tæpara en bæjarbúar gerðu sér
grein fyrir. Þetta mæddi meðal
annarra mjög á Ara sem stýrði
dælingu úr hinum mismunandi
hitaveituholum til bæjarins en
það þurfti að gera með vissum
hætti til að tryggja orkudreif-
inguna og öryggið. Þetta gerði
Ari allt með miklum sóma og
samviskusemi. Óteljandi voru
þau símtöl sem við áttum á
þessum árum um hvernig best
væri að haga dælingunni.
Vatnsborð féll óvenjumikið í
borholum hitaveitunnar við
vinnslu og því varð að dæla
vatninu upp af meira dýpi en
annars staðar á Íslandi og því
Ari Rögnvaldsson
✝ Ari Rögnvalds-son fæddist 20.
nóvember 1932.
Hann lést 20. jan-
úar 2020. Útför Ara
var gerð 3. febrúar
2020.
fylgdu ýmis tækni-
vandamál sem leysa
þurfti. Það hvíldi
mest á Ara enda er
hann sagður
„brautryðjandi í
notkun djúpdælna á
Norðurlandi“ í
Jarðhitabók Guð-
mundar Pálmason-
ar er kom út árið
2005.
Ari framkvæmdi
einnig mikið af þeim mælingum
í borholum sem mat á jarðhita-
forðanum og stýring vinnslunn-
ar hvílir á og gerði það af mikilli
natni og samviskusemi. Þá var
hann iðulega sá sem kynnti hita-
veituna af miklum áhuga fyrir
nemendum Jarðhitaskólans sem
komu á hverju sumri norður í
kynnisferð. Einnig er mér sér-
staklega minnisstæð þátttaka
hans í merkri tilraun með nið-
urdælingu jarðhitavatns á
Laugalandi í Öngulstaðahreppi
um miðjan tíunda áratuginn sem
leiddi til þess að Hita- og vatns-
veita Akureyrar varð fyrsti að-
ilinn á Íslandi til að gera nið-
urdælingu í jarðhitakerfi að
föstum þætti í rekstri sínum.
Hann hafði lifandi áhuga á því
sem var verið að gera og vinna
hans átti mikinn þátt í þeim
árangri sem náðist. Eftir alla
erfiðleikana búa Akureyringar
nú við einna lægsta verðið á
heitu vatni til húshitunar –
árangur sem Ari og annað
starfsfólk hitaveitunnar má vera
stolt af.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst Ara, það var alltaf ein-
staklega þægilegt og ánægjulegt
að vinna með honum. Ég sendi
Sigríði konu hans og öðrum að-
standendum innilegar samúðar-
kveðjur. Megi hann hvíla í friði
að góðu lífsstarfi loknu.
Ólafur G. Flóvenz.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein.
Minningargreinar